Ársfundur ÆSKR 2010 verður í Kópavogskirkju miðvikudaginn 14. apríl kl. 17.00. Á ársfundi er farið yfir liðið starfsár og hofrt til framtíðar. Kjósa á um tvo aðalmenn og tvo varamenn í æskulýðsráð ÆSKR.
Á fundinum sitja með atkvæðisrétt tveir fulltrúar frá hverjum söfnuði en auk þess eiga þjónandi prestar og djáknar í söfnuðum prófastsdæmanna atkvæðisrétt á fundinum. Ársfundur er öllum opinn.
Hér má nálgast ársskýrslu ÆSKR fyrir veturinn 2009-2010.
Janúarnámskeið ÆSKR
Janúarnámskeið ÆSKR árið 2010 verður að venju haldið í Skálholti en að þessu sinni verður námskeiðið í tvær nætur.
Á námskeiðinu mun Halla Jónsdóttir fjalla um bænina, út frá bókinni Stórt og smátt um bænina, en í henni eru margvíslegar bænaæfingar sem henta mjög vel í æskulýðsstarfinu.
Þá mun Pétur Björgvin Þorsteinsson kenna yngri leiðtogunum leiki og fræða eldri leiðtoga um óformlega menntun.
Þátttakendur á námskeiðinu munu síðan sjá um messu í Skálholtsdómkirkju kl. 11 á sunnudagsmorgninum sem verður undirbúin undir handleiðslu Höllu Jónsdóttur.
Janúarnámskeið ÆSKR hafa í mörg ár verið afar vel sótt enda er mikið lagt upp úr góðum viðurgjörningi og lögð áhersla á samfélagið. Janúarnámskeiðið er því tilvalið til að byggja sig upp þegar haldið er inn í nýtt ár í æskulýðsstarfinu.
Erla Björk Jónsdóttir, Gunnar Einar Steingrímsson, Margrét Rós Harðardóttir og Þráinn Haraldsson, annast undirbúining námskeiðsins ásamt undirritaðri.
Við hvetjum presta og æskulýðsfulltrúa til að gefa leiðtogum sínum kost á að sækja námskeið fyrir æskulýðsleiðtoga í kirkjunni, en vel upplýstir leiðtogar eru grunnurinn að því faglega æskulýðsstarfi sem kirkjan stendur fyrir.
Námskeiðið er opið öllum frá 16 ára aldri sem eru leiðtogar og aðstoðarleiðtogar í æskulýðsfélögum kirkjunnar.
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl.18.00 föstudaginn 15. janúar og komið til baka í Grensáskirkju ca. kl.14.00 laugardaginn 17. janúar.
Þátttaka á námskeiðnu kostar kr. 12.000.- og innifalið í því eru rútuferðir, gisting með uppbúnu rúmi og matur.
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 528 4427 eða á netfanginu aeskr@kirkjan.is .
Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 11. janúar.
Dagskrá ÆSKR 2009-2010
Dagskrá ÆSKR fyrir veturinn 2009-2010 ber yfirskriftina Lát trú þína bera ávöxt og að venju inniheldur hún fjölmörg spennandi tilboð fyrir æskulýðsfélögin og leiðtoga þeirra. Nánar má lesa um dagskrána undir þeim lið hér á heimasíðunni.
Ársfundur ÆSKR
Ársfundur ÆSKR verður haldinn 15. apríl í Langholtskirkju kl.17.00. Fundurinn er opinn öllum en tveir fulltrúar frá hverjum söfnuði hafa atkvæðisrétt, auk vígðra starfsmanna safnaðar.
Janúarnámskeið 2009
Janúarnámskeið ÆSKR árið 2009 verður í Skálholti dagana 9.-10. janúar. Að venju er vandað til námskeiðsins og lagt upp úr góðu samfélagi. Á föstudagskvöldinu verður áherslan á persónulega uppbyggingu leiðtoganna með helgihaldi, fræðslu og samveru. Á laugardeginum verður annars vegar boðið upp á fræðslu sem miðar við yngri leiðtogana og hins vegar fræðslu fyrir eldri og reyndari leiðtoga og æskulýðsfulltrúa sem bera ábyrgð á starfinu.
Halla Jónsdóttir aðjúnkt við menntavísindasvið HÍ fjallar um hvernig á að halda utan um fólkið í starfinu, deila verkefnum, hafa starfsaðstæður hvetjandi og hlúa að starfsfólkinu. Áhersla verður á sjálfboðaliða og hvernig kirkjan getur brugðist við nýjum aðstæðum þar sem söfnuðir hafa úr minni pening að moða eins og ástandið í þjóðfélaginu er núna en á sama tíma hefur aðsókn í starf kirkjunnar verið að aukast.
Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju á Akureyri kennir leiki, en hann hefur viðað að sér mikið af leikjum í gegnum árin og kynnt sér leikjafræði. Pétur Björgvin hefur verið með nokkur leikjanámskeið á vegum ÆSKEY sem hafa hlotið mjög góðar undirtektir.
Námskeiðið er opið öllum frá 16 ára aldri sem eru leiðtogar og aðstoðarleiðtogar í æskulýðsfélögum kirkjunnar.
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl.17.00 föstudaginn 9. janúar og komið til baka í Grensáskirkju kl.18.30 laugardaginn 10. janúar.
Þátttaka kostar kr. 10.900 fyrir þátttakendur frá söfnuðum innan Reykjavíkur-prófastsdæma en 12.900 fyrir þátttakendur frá öðrum prófastsdæmum. Innifalið í því eru rútuferðir, gisting með uppbúnu rúmi og matur.
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 528 4427 eða á netfanginu aeskr@kirkjan.is og er síðasti skráningardagur þriðjudaginn 6. janúar.
Í hendi Guðs
Næsta starfsár hjá ÆSKR verður fullt af ýmsum skemmtilegum atburðum. Yfirskrift vetrarins er “Í hendi Guðs” og munu helgistundir og fræðsla á atburðum ÆSKR taka mið af yfirskriftinni. Hægt er að skoða dagskrána fyrir unglingana og leiðtogana hér á síðunni. Í hendi Guðs
Unglingar
2. okt Óttist ekki hræðslumót ÆSKR
11. nóv Keilumót ÆSKR
30. nóv Hjálparstarfsverkefni (fer fram í söfnuðum)
13.15. feb. Vormót
21. mars Atburður gegn kynþáttafordómum (í samstarfi við ÆSKÞ o.fl.)
9. apríl Vaktu með Kristi (í samstarfi við ÆNK og ÆSKÞ)
20. maí Útivistarferð
Leiðtogar
27. ágúst Dagskrárfundur
23. sept Morgunverður leiðtoga
25. sept Haustnámskeið
5. nóv Leiðtogasamvera jólaföndur
7. nóv Æskulýðsfulltrúanámskeið
18. des Morgunverður fyrir leiðtoga
9.-10. jan. Janúarnámskeið ÆSKR
7. feb. Sólheimanámskeið
17. mars Morgunverður leiðtoga
15. apríl Ársfundur ÆSKR
16. maí Vorhátíð leiðtoga
Föst verkefni verða grunnnámskeið fyrir leiðtoga og farskóli leiðtogaefna . Einnig höldum við áfram kyrrðarstundum fyrir ungt fólk í samstarfi við miðborgarprest og starfi fyrir þroskahamlaða í samstarfi við prest fatlaðra.
Námskeið um mannréttindi í ágúst
Námskeiðið ber yfirskriftina “Mannréttindi fyrir ungt fólk á Norðurlöndum og verður haldið 17.-22. ágúst í Espoo í Finnlandi sem er rétt fyrir utan Helsinki.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Lúterska heimssambandið en samskonar námskeið hafa verið haldin í öðrum heimshlutum. Á námskeiðinu verða alþjóðleg mannréttindi kynnt fyrir þátttakendum og ræddar aðferðir til að bregðast við brotum á mannréttindum. Áhersla er á lögð á að skoða mannréttindi út frá sjónarhóli guðfræðinnar.
Gert er ráð fyrir 40 þátttakendum á aldrinum 18-30 ára frá öllum Norðurlöndunum en ÆSKR sendir tvo þátttakaendur.
Þátttakendur þurfa að greiða 150 evrur í þátttökugjöld og 30% af fargjaldinu. ÆSKR styrkir fulltrúa sína með því að greiða þátttökugjöldin.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin má fá á skrifstofu ÆSKR í síma 5284427.
EYCE námskeið í júní
EYCE heldur námskeið á Norður-Írlandi nú í júní.
Yfirskrift námskeiðsins er “Tearing down the walls, hvernig á að leysa ágreining og hvetja til sátta í Evrópu
Námskeiðið er haldið á Corrymeela, Ballycastle, Norður Írlandi 22.-27. júní 2008
Áherslan á námskeiðinu verður meðal annars á því að kynna kenningar um hvernig eigi að taka á vandamálum, hvaða hlutverki kirkjur geta gengt í friðarumræðum og kynna sálfræðina sem notuð er í sáttarumleitunum.
Sérstök áhersla verður á umfjöllun um Norður-Írland og hvernig tekið hefur verið á deilunum þar.
EYCE hefur mikla reynslu af að halda námskeið um samtöl ólíkra trúarhópa og þar með ólíkrar menningar
Það er því mjög áhugavert að taka þátt í námskeiðunum þeirra og kynnast í leiðinni ungu fólki sem býr við mjög ólíkar aðstæður en á samt svo margt sameiginlegt með okkur.
Námskeiðið er fyrir ungt fólk á aldrinum 20-30 ára og æskulýðsleiðtoga.
Fulltrúar ÆSKR verða að skila skýrslu um námskeiðið til ÆSKR eigi síðar en tveimur vikum eftir að heim er komið.
Námskeiðsgjaldið er 200 sem er fyrir húsnæði, uppihaldi og skoðunarferð. Íslendingar fá 50% af fargjaldinu endurgreitt.
ÆSKR styrkir þátttakendur sem fara á vegum sambandsins og starfa í kirkju innan Reykjavíkurprófastsdæma um 25% af fargjaldi og helming þátttökugjalds.
Sækja þarf um hjá ÆSKR í síðasta lagi 2. maí næstkomandi.
Ársfundur ÆSKR
Ársfundur ÆSKR verður haldinn þann 16. apríl n.k. í Grafarvogskirkju og hefst kl.18.00.
Á ársfundinum er rædd árskýrsla ÆSKR, kosið í æskulýðsráð og valið í nefndir á vegum sambandsins. Á ársfundi er tækifæri til að kynna sér betur starfsemi ÆSKR og koma skoðunum sínum á framfæri.
Tveir fulltrúar frá hverjum söfnuði hafa atkvæðisrétt á ársfundi ÆSKR en auk þess hafa þjónandi prestar og djáknar í söfnuðum prófastsdæmanna atkvæðisrétt á fundinum. Ársfundur er öllum opinn.
Kyrrðardagar fyrir ungt fólk í Skálholti
Kyrrðardagar fyrir ungt fólk í Skálholti verða haldnir dagana 19.-20. apríl.
Löng hefð er fyrir kyrrðardögum í Skálholti en þetta er í fyrsta sinn sem haldnir eru kyrrðardagar sérstaklega fyrir ungt fólk. Kyrrðardagarnir eru opnir öllu ungu fólki sem hefur áhuga á að upplifa þögnina og það sem henni fylgir.
“Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Fólk leitar líka á kyrrðardaga til að takast á við erfiða ákvörðun eða þungbærar fréttir með stuðningi starfsfólksins í hlýrri þögn. Boðin eru trúnaðarsamtöl og fyrirbænir.(skalholt.is)
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju laugardaginn 19. apríl kl.11.00, hádegismatur verður á borðum þegar komið er á staðinn en formleg dagskrá hefst kl. 14.00. Kyrrðardögum líkur í messu kl.11.00 á sunnudeginum en dagskránni lýkur svo kl.14.00 með útskrift nemenda úr grunnnámskeiði fyrir leiðtoga í barna- og unglingastarfi. Áætluð koma í Grensáskirkju er kl.15.30. Umsjón með kyrrðardögum hefur Sigríður Hrönn Sigurðardóttir guðfræðingur og kristniboði og samstarfshópur um leiðtogaþjálfun.
Þátttaka á kyrrðardögum kostar 9000.- kr og er innifalið í því gisting, fæði og ferðir til og frá Skálholti. Aðeins er rúm fyrir 20 þátttakendur þar sem allir eru í sérherbergi og því um að gera að skrá sig sem fyrst.
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 5284427 eða á netfangið aeskr@kirkjan.is til 14.apríl.
Kyrrðardagarnir eru samstarfsverkefni fræðslusviðs Biskupsstofu, ÆNK, ÆSKR og ÆSKÞ.