ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur desembermánaðar 2003

Jólarokkmessa ÆSKR í Neskirkju

án ummæla

Sunnudaginn 21.desember kl. 20.00 stendur ÆSKR fyrir Jólarokkmessu í Neskirkju. Þetta er annað árið í röð sem haldinn er jólarokkmessa og tókst vel til í fyrra. Hljómsveitin Perlan spilar undir og hefur útsett hefðbundin jólalög í rokkuðum stíl. Hljómsveitin sér einnig um forsöng ásamt stelpum frá æskulýðsfélagi Seltjarnarneskirkju. Prestar eru sr. Arna Grétarsdóttir og sr. Sigfús Kristjánsson.

Á eftir messu verður boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur og jólasveinn kemur í heimsókn.

Messan er haldinn fyrir unglinga og leiðtoga í æskulýðsfélögum en er opin öllum og hvetjum við ungt fólk á öllum aldri til að gefa sér tíma í jólaundirbúningnum og taka þátt í jólamessu í rokkuðum stíl.

Dagný Halla Tómasdóttir

17. desember 2003 at 10:48

Fært undir Óflokkað

Keilumót ÆSKR

án ummæla

11. nóvember verður keilumót ÆSKR haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. Keppnin verður einstaklingskeppni og hvetjum við alla núverandi og verðandi keilusnillinga í æskulýðsfélögunum til að mæta. Mæting og skráning er klukkan 19.15 og byrjað verður að spila klukkan 19.30. Umferðin kostar 300 krónur.

Starfsmaður 04. nóvember 2003, 13:32

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:26

Fært undir Óflokkað

Aðalfundur EYCE

án ummæla

Formaður ÆSKR og starfsmaður eru nýkomnar frá Rúmeníu þar sem 34. aðalfundur EYCE (Ecumenical Youth Council in Europe) var haldinn. Helstu verkefni samtakana er að standa fyrir námskeiðum fyrir ungt fólk í Evrópu um ýmis málefni sem snerta samkirkjulegt starf. Á aðalfundinum voru fulltrúar margra Evrópuríkja og jafnframt margra kirkjudeilda s.s Lútherana, Kaþólskra, rússnensku rétttrúnaðarkirkjunnar og Hvítasunnukirkjunnar. Á fundinum var fjallað um komandi verkefni, þátttöku aðildarfélaganna og fjárhag EYCE svo eitthvað sé nefnt.

Starfsmaður 04. nóvember 2003, 13:26

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:22

Fært undir Óflokkað

Hádegisfyrirlestur á miðvikudaginn

án ummæla

Miðvikudaginn 15.október mun Scott Carroll prestur frá S-Karólínu halda fyrirlestur um leiðtogaþjálfun á vegum ÆSKR. Fyrirlesturinn fer fram í Grensáskirkju og hefst klukkan 12.00. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Starfsmaður 13. október 2003, 12:36

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:21

Fært undir Óflokkað

Nýr vefur fyrir æskulýðsstarfið

án ummæla

Á vefsíðu kirkjunnar, kirkjan.is er að finna vef sem er ætlaður fyrir leiðtoga sem starfa með unglingum og ungmennum í kirkjunni. Annálnum er einkum ætlað að auðvelda leiðtogum undirbúning starfsins og stuðla þannig að góðu og kröftugu starfi.

Á annálnum verður að finna á einum stað allar helstu dagsetningar og upplýsingar yfir uppákomur, mót, keppnir, námskeið, fundi, málþing o.fl. Einnig er annállinn vettvangur að benda á gott fundarefni og hugmyndir o.fl. sem koma að gagni í starfi með unglingum og ungmennum. Annállinn er samstarfsverkefni ÆSKR, æskulýðsnefndar Kjalarnessprófastsdæmis, fræðslusviðs Biskupsstofu og FÆF (Félags æskulýðsfulltrúa). Slóðin er http://www.kirkjan.is/aeskulydsstarf.

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:20

Fært undir Óflokkað

Ferð á Jugendtag

án ummæla

Dagana 25.-29.september fór þriggja manna hópur frá Íslandi til Stuttgart í Þýskalandi til að kynna sér æskulýðsdag kirkjunnar í Wurttemberg. Einn af þeim sem fóru var starfsmaður ÆSKR. Á föstudeginum hittum við aðra erlenda gesti og var áhugavert að heyra um unglingastarf til dæmis í Nígeríu og Palestínu, þar sem aðstæður eru mjög ólíkar því sem við eigum að venjast.

Einnig skoðuðum við höfuðstöðvar æskulýðsstarfsins i Wurttemberg og var fróðlegt að sjá hversu öflugt starfið hjá þeim er. Æskulýðsdagurinn sjálfur var sunnudaginn 28.september og var mjög tilkomumikið að koma á markaðstorgið í miðborg Stuttgrart og sjá það troðfullt af unglingum að taka þátt í upphafsmessu dagsins.

Eftir messuna vor boðið upp á ýmiskonar fyrirlestra en einnig voru uppákomur út um allan miðbæ, s.s. tónleikar og danskeppni. Það var líka hægt að ganga á milli kynningabása frá ýmsu kirkjustarfi og svo var hægt að velja úr mörgum afþreyingum eins og klettaklifri, trumbuslætti eða spurningakeppni. Við fengum fullt af góðum hugmyndum og komum heim með þá von að geta notað eitthvað af þeim í íslensku æskulýðsstarfi.

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:19

Fært undir Óflokkað

Nýr starfsmaður og ný skrifstofa

án ummæla

Nýr starfsmaður, Dagný Halla Tómasdóttir tók til starfa 1. september. Eitt af fyrstu verkefnunum var að flytja skrifstofu ÆSKR sem nú er komin í Grensáskirkju. Grensáskirkja stendur við Háaleitisbraut og er því mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.

Skrifstofa ÆSKR verður opin mánudaga til fimmtudaga milli klukkan 9-13 og á þriðjudögum verður hún líka opin á milli 16 og 18. Síminn okkar er ekki tengdur eins og er en gsm síminn er virkur sem aldrei fyrr og er númerið í honum 861 1625. Einnig er möguleiki að skilja eftir skilaboð til starfsmanns hjá starfsfólki Grensáskirkju í síma 553 2750.

Plaköt með vetrardagskrá ÆSKR eru í prentun og verða þau vonandi komin í kirkjur í næstu viku. Hægt er að nálgast vetrardagskrána undir liðnum dagskrá hér á síðunni.

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:18

Fært undir Óflokkað

Samvera í upphafi vetrar

án ummæla

Mánudagskvöldið 1. sept kl: 20:00 ætla æskulýðsleiðtogar að hittast og fara yfir dagskrá vetrarins. Gott væri ef þið kæmuð með ykkar dagskrá svo við getum deilt hugmyndum.
Staður: Setrið í Háteigskirkju
Tilefni: Dagskrá vetrarins
Hvati: Léttar veitingar
Vonandi getum við átt saman góða stund og kynnst aðeins betur starfi hvers annars. Þarna er einnig frábært tækifæri til að hitta nýjan starfsmann ÆSKR.

Skrifað 28. ágúst 2003, 20:26

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:14

Fært undir Óflokkað

Æskulýðsfulltrúi ÆSKR

án ummæla

Nýverið gengu Reykjavíkurprófastsdæmin frá ráðningu nýs æskulýðsfulltrúa ÆSKR. Alls sóttu fimm um stöðuna en fyrir valinu varð Dagný Halla Tómasdóttir uppeldisfræðingur. Dagný hefur starfað að æskulýðsmálum innan kirkjunnar í mörg ár og hefur mikla reynslu af starfi með börnum og unglingum. Dagný mun taka til starfa á komandi hausti.

Skrifað 07. júlí 2003, 11:44

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:12

Fært undir Óflokkað

Málþing í Moskvu

án ummæla

Námskeiðið Perspectives in overcoming violence verður haldið á vegum EYCE (Ecumenical Youth Counsil in Europe) í Moskvu 14.-21.september 2003.

Umsókn um þátttöku berist fyrir 25.júní n.k. stílað á æskulýðsráð ÆSKR á netfangið: arna@seltjarnarneskirkja.is. Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar eru á slóðinni www.eyce.org.

Skrifað 7. júní 2003

Dagný Halla Tómasdóttir

9. desember 2003 at 11:11

Fært undir Óflokkað