Færslur janúarmánaðar 2004
Leiðtogasamvera í Grensáskirkju
Næsta sunnudag þann 1.febrúar er leiðtogasamvera í Grensáskirkju kl.20.00. Tilgangur leiðtogasamveru ÆSKR er að gefa leiðtogum kost á að hittast og eiga samfélag saman. Leiðtogasamveran er opin öllum leiðtogum og aðstoðarleiðtogum sem starfa í kristilegu æskulýðsstarfi. Að þessu sinni verður byrjað á því að taka þátt í unglingamessu hjá Grensássöfnuði en að henni lokinni verður boðið upp á léttar veitingar. Sjöfn Þór mun síðan kynna EYCE sem eru evrópsk samkirkjuleg samtök fyrir ungt fólk og ÆSKR er aðili að og segja frá í máli og myndum námskeiðum sem hún hefur tekið þátt í.
Skýrsla frá námskeiði í Eystlandi
Sjöfn Þór hefur skrifað skýrlsu um námskeið sem hún tók þátt í á vegum ÆSKR. Námskeiðið var haldið af EYCE og var fyrir leiðtoga í kristilegu starfi. Efni námskeiðsins er áhugavert og því gott fyrirþá sem hafa áhuga á æskulýðsstarfi að lesa þessa skýrslu. Það má jafnvel næla sér í hugmyndir að verkefnum og leikjum úr skýrslunni. EYCE (Ecumenical Youth Council in Europe)
-námskeið fyrir leiðtoga í kristilegu starfi
Tete C Get Active (Training Ecumenical Trainers in Europe)
Suruupi Eistlandi 30. nóvember 7. desember 2003
Sunnudagur Við komum til Suruupi seint á sunnudags eftirmiðdegi 30. nóvember. Við vorum með fyrstu þátttakendum sem komu á svæðið. Þegar flestir þátttakendur voru komnir var farið í nokkra leiki til þess að brjóta ísinn. Ég læt nokkra leiki fylgja með til gamans og gangs fyrir þau sem eru að leita að skemmtilegum samkvæmisleikjum.
Allir drógu miða úr hatti. Á miðunum var nafn á frægri persónu og við áttum að para okkur saman eftir því hvort persónurnar pössuðu saman. Dæmi um persónur voru; Bonnie og Clyde, Tweety og Silvester, Faðir, sonur og Heilagur andi og svo framvegis.
Aftur voru dregnir miðar úr hatti og í þetta sinn voru dýranöfn á miðunum. Fólk átti svo að finna aðra sem höfðu fengið sama dýranafn með því að gefa frá sér hljóðið sem dýrin gefa frá sér. Þetta reyndist mjög fyndið því í hópi þar sem fólk talar ólík tungumál, tala dýrin líka ólík tungumál. Það var því ekki alveg ljóst hver munurinn var á hljóðinu sem hani gefur frá sér og hljóðinu sem kalkúnn gefur frá sér!!!
Sunnudagskvöldið fór að mestu í það að spjalla og kynnast hinum þátttakendunum en vegna þess hversu seint margir komu til Suruupi var ekki mikið tækifæri til þess að kynnast þetta fyrsta kvöld.
Mánudagur Námskeiðið hófst á samkirkjulegri helgistund sem skipulagsnefndin leiddi. Farið var í nokkra leiki í upphafi dags.
Fyrst á dagskrá eftir samkirkjulega helgistund var kynning á Biblíuskólanum í Suruupi en hann er rekinn af Pentacostal kirkjunni í Eistlandi. Biblíuskólinn var áður herstöð. Næsti liður á námskeiðinu var kynning á sögu og menningu Eistlands. Formaður EYCE og varaformaður kynntu því næst EYCE og starfsemi þess. EYCE Ecumenical Youth Council in Europe eru samtök sem stofnuð voru 1968 með það að markmiði að stuðla að samstarfi ólíkra kirkjudeilda. Stjórn EYCE er skipuð 7 aðilum úr ólíkum kirkjudeildum og heldur EYCE úti skrifstofu í Brussel með launuðum framkvæmdastjóra og sjálfboðaliðum. EYCE heldur 2-3 ráðstefnur á ári auk námskeiða fyrir leiðtoga. Því næst var verkefnum úthlutað til þátttakenda en þátttakendur báru ábyrgð á að skrifa fundargerð fyrir hvern dag fyrir sig og hver og einn tók tvisvar þátt í að skipuleggja helgistund. Því næst voru væntingar til námskeiðsins ræddar og ótti. Þátttakendur höfðu þessar væntingar:
Að mynda ný tengsl
Að finna svör
Að fá hjálp við að sækja um styrk vegna verkefna
Að auka orðaforðann í ensku
Að finna styrki til verkefna
Að læra meira um menningu annarra þjóða
Að fá hugmyndir um hvernig á að byggja upp teymi
Að læra að skrifa umsóknir
Að læra hópefli
Að njóta helgihaldsins
Þátttakendur óttuðust
Að tala ensku
Að upp kæmi eldur
Hópandann
Að skrifa á ensku
Að tala opinberlega
Að leiðast
Einangrun
Að missa samband við aðra þátttakendur að móti loknu
Að fá ekki kaffi
Að brenna út
Að vera kalt
Eins og sjá má á óttanum var mikið grínast með óttann og var margt þar í takti við það sem þátttakendur höfðu upplifað þennan hálfa sólarhring sem þeir voru búnir að vera á staðnum. Það var kalt alls staðar og ekki boðið upp á kaffi nema endrum og eins.
Því næst voru þátttakendur beðnir að hafa nokkrar spurningar í huga:
Hvaða gagnlegu upplýsingar vona ég að ég fái á þessu námskeiði? Hvaða samböndum vonast ég til að koma á utan við kennslustundirnar? Hvaða þekkingu og reynslu hef ég sem ég get boðið öðrum?
Námskeiðshaldarar fóru yfir dagskrá námskeiðsins og útskýrðu hvað væri framundan.
Daniel Muller framkvæmdastjóri EYCE kynnti stuttlega Ungt fólk í Evrópu sem er styrkjaáætlun Evrópusambandsins, en það var kynnt ítarlegar á þriðjudegi. Programmið skiptist í
Ungmennaskipti Sjálfboðaþjónusta Frumkvæðisverkefni Samstarfsverkefni Stuðningsverkefni
Við hvern á að hafa samband:
Landsskrifstofu Evrópusambandsins í hverju landi fyrir sig og skrifstofu sem sér um tæknilega hjálp í Brussel.
Þau sem geta tekið þátt eru: samtök sem sjá um óformlega menntun, æskulýðshópar og frjáls félagasamtök eða Non Governmental Organizations.
Hvaða lönd geta tekið þátt?
Öll 15 ríki Evrópusambandsins
EFTA löndin Ísland, Lichtenstein og Noregur
Þriðjaheims lönd
Jákvæð gagnrýni
Alicia sagði okkur frá mikilvægi jákvæðrar gagnrýni. Hún benti einnig á að það er munur á afköstum og framkomu og voru dæmi um það rædd. Hún ræddi um þá þætti sem hafa áhrif á afköst. Hún talaði um hvað jákvæð gagnrýni er og hvernig á að leita eftir henni og hvernig á að hegða sér þegar verið er að gefa og þiggja jákvæða gagnrýni. Hún ítrekaði mikilvægi þess að leita sér gagnrýni og loka spurningin hennar var: Er markmiðið okkar að afköst okkar séu gallalaus?
Corrie setti í fyrirlestri sínum fram sínar hugmyndir um teymisstarf. Hann setti fram nokkra leiðarsteina sem gott er að fylgja þegar skipuleggja á stóran atburð. Hann benti á að gott sé að brjóta stóran atburð upp í smærri verkefni. Hann fór yfir hversu mikilvægt það er að skipuleggja atburði vel fram í tímann, talaði um að það væri misjafnt hvaða atriðum þyrfti að vera búið að ganga frá fyrir hvaða tíma og að það væri mikilvægt að velja rétt fólk með mismunandi hæfileika til þess að vinna að verkefninu. Hann fór einnig yfir það hvernig ætti að bera sig að við að velja fólk til þess að sjá um einstaka liði atburðarins. Hann ítrekaði mikilvægi þess að hitta teymið og skiptast á hugmyndum og að við þurfum að vera tilbúin að deila hugmynd okkar með væntanlegu samstarfsfólki. Það er mikilvægt að fara aldrei af fundi án þess að vera búin að ákveða hvenær á að hittast næst og best er ef hægt er að sjá það fyrirfram hversu oft þarf að hittast svo þau sem taka þátt í verkefninu geri sér grein fyrir því hversu mikla vinnu þarf að leggja í verkefnið. Einnig er mikilvægt að hittast eftir atburðinn og meta hvað gekk vel, hrósa fyrir gott starf og eiga góða stund saman. Corrie hélt því fram að það væri mikilvægt í teymisvinnu að hafa það á hreinu hver leiðtoginn væri og að leiðtoginn hefði úrslita ákvörðunarvald. Margir reyndust ósammála Corrie þegar kom að þessu atriði og spunnust upp miklar umræður þar sem hver sagði sína skoðun á málunum.
Að kvöldi mánudags var haldin alþjóðleg matarveisla. Þátttakendur höfðu tekið með sér mat og drykk frá heimalandinu og öllum var boðið að bragða á. Þar var margt á boðstólum sem Íslendingum þótti undarlegur matur en að þessu sinni komu Íslendingar með hangikjöt og flatkökur og ýmis konar sælgæti. Eins og oft áður ræddu Íslendingar og Finnar á léttum nótum um það hvor þjóðin gerir betri lakkrís.
Þriðjudagur Dagurinn hófst á því að Michel leiddi okkur í umræðu um hvaða kosti og galla við höfum sem leiðtogar. Okkur var skipt í smærri hópa og þar voru ræddir kostir góðra leiðtoga og styrkleikar og veikleikar okkar í starfi. Því næst teiknaði Michel upp mynd af hóp þar sem góður andi ríkir. Góður andi hefur mikil áhrif á hvernig hópurinn starfar saman. Það þarf að ríkja gott jafnvægi í hópnum. Það er mismunandi hvaða aðferð leiðtoginn á að nota til að stjórna eftir því í hvaða aðstæðum hann er. Eftir fyrirlesturinn var farið í leik sem undirstrikaði hvaða hlutverk við tökum okkur þegar við erum í samstarfi. Leikurinn gekk út á að hluti þátttakenda voru mafíósar, hluti var löggur og restin almennir bæjarbúar. Mafían þurrkaði svo einn og einn út úr þorpinu á meðan þorpsbúar sváfu, og svo lögðust löggur og þorpsbúar á eitt við að finna mafíósana og ganga frá þeim. En viti menn, ekki var alveg víst að þeir sem fengu að fjúka væru mafíósar og sjaldnast var það staðreyndin. Frábær leikur og í honum var tekist á við að reyna að sannfæra stóran hóp fólks um að fara ákveðna leið og líkt og í raunveruleikanum gekk það ekki alveg snurðulaust fyrir sig.
Í upphafi næstu kennslustundar ræddum við leikinn. Það kom mörgum á óvart að sjá að þeir nota sömu aðferðir í raunveruleikanum og þeir notuðu í leiknum sjálfum.
Næsta kennslustund var helguð Intercultural learning. Fjórir þátttakendur voru fengnir til að leika fyrir okkur hin samtal fólks. Þau komu tvö og tvö í einu og annar aðilinn gekk alltaf nær og nær hinum sem orsakaði að hinum aðilanum leið ekki vel og fór að færa sig undan. Eftir leikritið ræddum við leiðir sem hægt er að fara þegar okkur finnst einhver koma of nálægt okkur. Við prófuðum ,,blöðruna okkar með því að fara í tvær raðir og ganga alltaf skrefi og skrefi nær þeim sem á móti okkur voru. Þá kom í ljós að það er misjafnt hversu nálægt fólk þolir að hafa aðra og að það fer eftir atriðum eins og kyni, hæð og hvort fólk þekkist hversu nálægt fólk má standa. Því næst ræddum við hvort það væri ólíkt efir hvaðan fólk kemur hversu nálægt er eðlilegt að standa og spáðum í það hvað væri mikilvægt fyrir útlendinga að vita um hefðir í okkar samfélagi þegar þeir koma í heimsókn til okkar. Gott dæmi um þetta er að í Frakklandi kyssist fólk í fyrsta sinn sem það er kynnt fyrir öðrum. Íslendingar heilsa gjarna með handabandi en faðma og kyssa vini sína. Ef Íslendingur er kynntur fyrir nýju fólki í Frakklandi getur komið upp fyndin staða þar sem Íslendingurinn er kysstur á hvora kinn fyrir sig og þá er Íslendingurinn líklegur til að faðma Frakkann á móti sem er alls ekki við hæfi í Frakklandi þar sem aðeins mjög nánir vinir faðmast. Það getur því verið afar ruglandi að hitta fólk frá öðrum löndum. Við ræddum einnig fordóma okkar og hluti sem koma okkur á óvart og var okkur bent á að það væri góð regla að spyrja einfaldlega ,,af hverju þegar við skiljum ekki hvers vegna fólk gerir eitthvað á sérstakan hátt. Dæmi: Tveir þátttakendur voru gjarna með húfur inni í fundarherberginu. Þetta fór í taugarnar á ákveðnum aðilum og voru þær því spurðar af hverju þær væru með húfur. Skýringin var mjög einföld, það var ískalt í húsinu og allir voru í úlpum inni og húfur hjálpa jú við að halda hita á fólki.
Í hádeginu sá hópur mótmælenda um bænastund.
Á þriðjudagseftirmiðdag fengum við ítarlega kynningu á Youth Program Evrópusambandsins en kynningin var í höndum starfsmanneskju hjá Youth program skrifstofunni í Eistlandi. Hún fór ítarlega yfir flokkaskiptingu verkefna sem hægt er að sækja um styrki fyrir hjá Evrópusambandinu. Flokkarnir eru
Ungmennaskipti Sjálfboðaþjónusta Frumkvæðisverkefni Samstarfsverkefni Stuðningsverkefni
Í hverjum flokki er áhersla lögð á ungt fólk á aldrinum 15-25 ára og æskulýðsleiðtoga eldri en 25 ára. Markmið með þessari fræðslu var að allir þátttakendur námskeiðsins gætu fundið hvaða flokki verkefnið þeirra tilheyrði og gætu æft sig í að fylla út umsóknareyðublað fyrir verkefni sitt en allir þátttakendur komu með verkefni með sér. Eftir fyrirlesturinn skiptum við okkur í smærri hópa þar sem fólk sem var að takast á við svipuð verkefni gat rætt sín á milli hvað væri best að gera, hvar verkefnið passaði inn í og hvernig væri hægt að aðlaga verkefnið að kröfum þeirra sem styrkja verkefnið. Ýmsar nýjar hugmyndir komu upp um verkefni, til dæmis kom upp hugmynd um að halda ráðstefnu um áhrif fjölmiðla á hlutverk kynjanna. Ráðstefnan yrði í samvinna fjögurra landa; Íslands, Eistlands, Lettlands og Ungverjalands og hugmyndin er að halda ráðstefnuna í Ungverjalandi. Þátttakendur fengu tækifæri til að spyrja út í ýmsa þætti umsóknarinnar. Það var virkilega gott að fá svona ýtarlega kynningu á Ungu fólki í Evrópu, til þess að geta í framtíðinni sótt um styrki fyrir ýmis verkefni sem ungmennahópar eru að vinna að. Þátttakendur kynntu svo verkefnin sín og hugmyndirnar voru margar og góðar.
Fyrir kvöldmat var haldin samkirkjuleg bænastund.
Að kvöldi þriðjudags var haldin Evrópsk menningarhátíð. Þar voru þátttakendur með ýmis atriði þar sem þau sýndu á ýmsan hátt hvernig menning þeirra er og hvaða þættir eru mikilvægastir í menningu landa þeirra.
Miðvikudagur Á miðvikudagsmorgun fór Daniel Muller yfir hvaða strúktúr er best að nota þegar byrjað er á verkefni sem sækja á um styrk til að framkvæma. Það er gott að vera búinn að gera sér vel grein fyrir verkefninu áður en sest er niður til að skrifa umsóknina. Það sem þarf að gæta að er:
Greina markmið, tilgang og samhengi Þörfina fyrir greiningu á verkefninu Fjármagn Mat og eftirfylgd
Það er gott að athuga að:
Láta einhvern lesa umsókn okkar yfir og athuga hvort allt er nógu skýrt og vel sett fram. virða umsóknarfrest að þakka fyrir sig og kunna að meta hjálpina sem felst í peningum ef eitthvað er ekki skýrt hjá okkur sjálfum ekki skrifa þá of mikið
Eftir þetta var aftur farið í smærri hópa og haldið áfram að vinna að verkefnunum okkar. Við fengum umsóknareyðublöð í hendur og fórum í að plana verkefnin okkar ítarlega. Sumir hópuðu sig saman og gerðu verkefnin sín að samstarfsverkefnum. Við lok dagsins kynntum við verkefnin okkar og þáðum ábendingar og hjálp frá hinum þátttakendunum. Sumir höfðu áður sótt um styrk frá Evrópusambandinu og fengið, öðrum hafði verið hafnað og enn aðrir voru að sækja um í fyrsta sinn. Eftir daginn voru sumir komnir langt á veg með umsókn, aðrir voru enn ruglaðari en áður en þeir byrjuðu. En það var greinilegt að hópurinn var mjög hugmyndaríkur. Meðal verkefna sem fólk var með var samstarf Norðurlanda og Eystrasaltslandanna, verkefni á milli Póllands og Lettlands til að minnka fordóma, Hollenskt-Ítalskt verkefni um fjölbreytileika samfélagsins og hringborðsumræður um kristið æskulýðsstarf í Búlgaríu.
Um kvöldið stóðu Eistar fyrir hreint ógleymanlegu kúltúr kvöldi. Þau sýndu okkur á fjölbreyttan hátt hvernig menning þeirra og saga er og hvað þau borða og drekka. Þau dönsuðu, spiluðu og léku fyrir okkur en um leið fengu þau okkur til að vera með í ýmsum atriðum eins og bændastríðinu og matarveislu. Þau höfðu vandað vel til verksins og kvöldið var skemmtun frá upphafi til enda. Þau komu svo með karókí græjur og stóðu fyrir söngkvöldi langt fram á nótt þar sem Finnar fóru sérstaklega á kostum.
Fimmtudagur Morguninn hófst á því að Daniel Muller setti fram nokkrar spurningar um verkefni gærdagsins. Hann bað okkur að ræða eftirfarandi spurningar:
Hver voru fyrstu viðbrögð ykkar við kynningunni á Ungu fólki í Evrópu? Hver voru fyrstu viðbrögð þín þegar þú sást umsóknareyðublaðið? Hvernig líður þér eftir að hafa unnið í umsókninni? Ef þú fengir að hitta yfirmann skrifstofu Ungs fólks í Evrópu, hverju mundir þú spyrja hann að?
Við ræddum þessar spurningar í smærri hópum og komumst að því að það var mjög misjafnt hvaða upplifun fólk hafði af því að vinna að umsókninni. Fólk var almennt mjög ánægt með þennan hluta námskeiðsins og alla þá hjálp sem hægt var að fá við að sækja um.
Því næst var gerð stutt könnun á því hvað fólki finnst um þann hluta námskeiðsins sem lokið var. Teiknaðir voru þrír ,,broskallar á blað og átti hver þátttakandi að líma lítinn límmiða á þann broskall sem lýsti best líðan hans.
Þá var komið að þriðju blokk námskeiðsins en Minna Hietamaki leiddi okkur inn í þá blokk þegar hún fór með okkur yfir hin og þessi atriði varðandi þátttöku í alþjólegum fundi. Hún talaði um ólík hlutverk fólks á fundum eins og hverjir hafa kosningarrétt og hvernig á að bera sig að á slíkum fundum.
Það var í höndum Orþódoxa að sjá um hádeigisbænastund að þessu sinni.
Eftir hádegi á fimmtudag fór hópurinn í skoðunarferð til Tallin. Ferðin var allt of stutt það var orðið dimmt þegar við loksins komum til borgarinnar og lítill tími gafst til að skoða borgina. Hópurinn borðaði saman á Eistneskum veitingastað um kvöldið áður en haldið var aftur til Suruupi.
Föstudagur Á föstudagsmorgun sýndu námskeiðshaldarar okkur stutt leikrit þar sem nokkrir virðingarverðir kalrar á mikilvægum fundi ræddu sín á milli hvort þeir ættu að fara í hádegismat. Það var mjög skoplegt að sjá þá fara eftir reglum á alþjóðlegum fundi til þess að ákveða hvort ætti að fara í mat eða ekki. Því næst fengum við lista yfir ýmis orð sem notuð eru á alþjóðlegum fundum og unnum við saman í hópum við að gera okkur grein fyrir því hvað þau merkja.
Helgistundin í hádeginu var í höndum Rómversk-Kaþólskra.
Næst fórum við í leik þar sem varpað var upp fullyrðingum og við áttum að fara í annan hvorn enda herbergisins eftir því hvort við vorum ósammála eða sammála. Við áttum svo að reyna að fá þau sem voru hinumegin til að sannfærast og koma yfir til okkar. Þarna spunnust upp heitar og skemmtilegar umræður.
Þegar því var lokið fengum við hvert um sig nýtt hlutverk. Sumir voru biskupar, aðrir prestar og enn aðrir leikmenn. Sumir komu úr æskulýðsgeiranum, aðrir úr verkamannageiranum eða héðan og þaðan. Við fengum upp í hendurnar fundargögn og fyrir okkur lá að ræða hvaða stefnu ætti að taka í að fyrirbyggja ofbeldi og kjósa nýja stjórn MEC (tilbúin samkirkjuleg samtök). Norðurlandaþjóðirnar komu saman til þess að ræða sín á milli hvaða málefni væru mikilvægust og til að ákveða hver ætti að fara í hvaða nefnd og hverjum ætti að ota í stjórn MEC. Fundurinn gekk afskaplega vel, en okkur var sagt eftirá að í raun hafi fundurinn verið mjög raunverulegur. Við sinntum okkar nefndarstörfum og gáfum skýrslur um þau og kusum um mikilvæg málefni. Um kvöldið var svo kokteilboð þar sem hver og einn reyndi að agitera fyrir sinni manneskju í stjórn. Að loknu kokteilboði fóru sumir í göngutúr niður í fjöru aðrir voru eftir heima og sungu og spiluðu af lífs og sálar kröftum.
Laugardagur Um morguninn var kosið í stjórn og tókst norðurlöndunum að koma sinni manneskju í formannssætið. Þetta var ótrúlega skemmtilegt, skapaði mikla stemningu og ég er viss um það að við sem þennan hermifund sátum munum vera ágætlega með á nótunum ef við verðum valin til að sitja alþjóðlegan fund í framtíðinni.
Lútheranar sáu um helgistund í hádeginu
Eftir fundinn fór svo fram mat á námskeiðinu. Við matið voru notaðar ýmsar aðferðir. Ein þeirra fólst í því að stjórnandi bar fram spurningar og átti fólk að færa sig til í herberginu eftir því hvort það var sammála eða ósammála. Fólk fékk einnig að tjá sig um einstök atriði námskeiðsins, hvað var gott og hvað var ekki gott.
Næsta aðferð sem notuð var fólst í því að sett var upp ferðataska, ruslafata og nammiskál. Fólk átti að nefna eitt sem það vildi taka með sér heim af námskeiðinu, eitt sem það vildi bara gleyma og henda og eitt sem var konfektið sem gladdi fólkið sérstaklega.
Þriðja aðferðin til að meta námskeiðið var með matsblaði en í skýrslu EYCE frá námskeiðinu mun koma fram hvað fólki fannst um námskeiðið.
Áður en haldið var til síðustu kvöldmáltíðarinnar var haldin samkirkjuleg bænastund og eftir kvöldmat hófst lokapartý með tilheyrandi skemmtunum og fjöri.
Nokkur atriði sem þurfa að koma fram Í hverju hádegi og á hverju kvöldi voru haldnar bænastundir. Hádegisbænirnar voru leiddar af kirkjudeildum en kvöldbænirnar voru samkirkjulegar og var það í höndum þátttakenda að skipuleggja þær. Þessar bænastundir sköpuðu reglulega góða stemmingu og gáfu þátttakendum mjög mikið. Á kvöldin var fjölbreytt prógramm sem gaf okkur innsýn í menningu annarra landa. Bænastundirnar og kvöldprógrammið eiga ekkert minni þátt í að gera námskeið EYCE að frábærri upplifun en námskeiðsdagskráin sjálf. Á svona námskeiðum myndast tengsl milli fólks sem geta vel nýst í starfi sem og lífinu sjálfu. Það er ólýsanleg upplifun að finna eininguna sem ríkir meðal ungra kristinna manneskja sem sameinast í bæn til Drottins á EYCE námskeiðum. Þar brotna niður múrar sem fordómar hafa áður byggt upp og þar skiptir fortíðin litlu máli miðað við framtíðina.
Vel heppnað janúarnámskeið ÆSKR
Dagana 16.-17.janúar var hið árlega janúarnámskeið ÆSKR haldið í Skálholtsskóla.
Yfirskrift helgarinnar var helgarleikjabankinn og var umfjöllun um leiki og leikjafræði aðal viðfangsefni námskeiðsins. Farið var frá Breiðholtskirkju kl.18.00 og vegna lélegrar færðar komum við ekki á staðinn fyrr en tæplega tveimur og hálfum tíma síðar. Á móti okkur tók upplýstur og heitur Skálholtsskóli með frábæran mat og brosandi starfsfólk. Sumir þátttakendur námskeiðsins máttu varla vera að því að njóta matarins þar sem Idol- lokakvöldið var að hefjast á sömu stundu og var mikil spenna í kringum skjáinn.
Spilabankinn var opnaður eftir kynningu og góða helgistund í kirkjunni og sat fólk við að spila hin ólíkustu spil fram undir morgunn.
Fræðsla námskeiðsins var í höndum Péturs Björgvins Þorsteinssonar. Pétur Björvin gerði góða grein fyrir grunni leikjafræðinnar og var greinilegt að hann hafði nógu að deila og hefðu þátttakendur gjarnan viljað heyra meira um fræðin á bak við leikina en ekki var tími til þess á svo stuttu námskeiði. Meðal annars talaði Pétur um samsetningu hópa og hvernig má nota leiki til að jafna valdahlutfall og stöðu unglinga innan hópsins. Einnig talaði hann um að í æskulýðsstarfinu verður að forðast leiki sem ganga út á að gera grín af fólki og geta þannig ýtt undir einelti.
Um miðjan dag kenndu Pétur, Sjöfn Þór og Stefán Már leiki sem nýtast vel í æskulýðsstarfi. Fljótlega munu lýsingar á þeim leikjum sem farið var í vera settar inn á netið og vonandi er það upphafið að stærri leikjabanka sem æskulýðsfélögin geta sótt hugmyndir í. Sjaldan hefur jafn virkur hópur verið saman kominn og ætlaði allt um koll að keyra þegar farið var í koddaleikinn.
Það var einkar góð stemning í hópnum og mál manna að svona námskeið sé ekki síður mikilvægt fyrir samfélagið en fræðsluna sjálfa sem var þó alveg frábær.
Dagskrárfundur
Á morgunn, fimmtudaginn 8.janúar verður dagsrárfundur haldinn í Grensáskirkju kl. 18-20. Á dagskrarfundinum geta leiðtogar farið saman yfir dagskrá annarinnar og deilt hugmyndum um hvað er hægt að gera með félögunum sínum. Þetta er líka kjörið tækifæri fyrir félög til að skipuleggja heimsóknir sín á milli eða sameiginlegar upppákomur. Boðið verður upp á pizzu og drykk.
Janúarnámskeið ÆSKR
Janúarnámskeið ÆSKR verður haldið í Skálholti dagana 16. og 17. janúar. Námskeiðið er opið öllum frá 16 ára aldri sem eru leiðtogar og aðstoðarleiðtogar í æskulýðsfélögum kirkjunnar. Yfirskriftin að þessu sinni er Leikjabankinn. Leggur ekkert inn – tekur bara út. Umsjón með fræðslu á námskeiðinu hafa Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni og Guðmundur Björnsson framkvæmdastjóri SSR (Skátasambands Reykjavíkur). Þeir ætla að kenna nýja leiki og kynna leikjafræði fyrir þátttakendum.Leikjafræðin beinir sjónum sínum m.a. að því hvers vegna eru leikir notaðir, hvernig eru leikir notaðir og hvaða leikur hentar hvenær. Janúarnámskeið ÆSKR hafa verið haldin frá því ÆSKR var stofnað og hefur aðsóknin yfirleitt verið mjög góð. Mikill metnaður hefur verið lagður í fræðslunna og reynt að svara þeim þörfum sem leiðtogar hafa hverju sinni. Lagt er upp úr því á janúarnámskeiðunum að hafa góðan aðbúnað af því að stór þáttur námskeiðsins er að leiðtogar eigi góða stund saman og byggi sig upp fyrir nýtt ár í æskulýðsstarfinu.
Þátttaka á námskeiðinu kostar kr. 9000.- fyrir þátttakendur frá söfnuðum innan Reykjavíkurprófastsdæma en kr.13.500.- fyrir þátttakendur frá söfnuðum utan Reykjavíkurprófastsdæma.
Innifalið í gjaldinu eru ferðir, uppihald og uppá búið rúm (þarf ekki svefnpoka!!!)
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 5800 825 eða á netfanginu aeskr@kirkjan.is
ekki síðar en þriðjudaginn 13. janúar 2004. Ef skráð er í gegnum tölvu þarf að koma fram nafn, sími, heimilisfang og netfang þátttakanda og hvaða kirkja greiðir þátttökugjaldið.
Dagskrá:
Föstudagur
18.00 Brottför frá Breiðholtskirkju
20.00 Kvöldmatur
21.00 Kvöldvaka
Helgistund
Spilabanki opnar í matsal. Hallgrímskirkja sér um að halda uppi stórkostlegri spilastemningu. Þeir sem eiga skemmtileg spil,endilega taka þau með sér!
Söngstund í setustofu. Ef einhver er með lög í pokahorninu sem hann vill kynna, þá er þetta einmitt rétti staðurinn og stundinn.
Laugardagur
10.00 Morgunmatur
10.30 Leikjablokk I
12.30 Hádegismatur
14.00 Leikjablokk II
16.00 Kaffi
17.00 Leikjablokk III
19.00 Kvöldmatur
20.00 Kirkja. Samantekt og helgistund í umsjá Háteigskirkju.
22.00 Komið til baka í Breiðholtskirkju
TETE námskeið í Eistlandi
Í byrjun desember tóku tveir fulltrúar ÆSKR þátt í námskeiði sem EYCE stóð fyrir í Eistlandi. Sjöfn Þór segir hér frá námskeiðinu og upplifun íslensku ferðalanganna á því sem fram fór.
ÆSKR er aðili að samkirkjulegri ungmennahreyfingu í Evrópu, Ecumenical Youth Council in Europe (EYCE). EYCE hélt í byrjun desember leiðtoganámskeið sem að þessu sinni var haldið í Eistlandi á Biblíuskólanum í Suurupi 30 kílómetra fyrir utan Tallin. Við Gunnfríður Katrín Tómasdóttir lögðum af stað snemma morguns 30. nóvember og vorum þar í vikutíma. Námskeiðið bar yfirskriftina TETE C, eða Training Ecumenical Trainers in Europe, Get active og er síðasta námskeiðið í seríu þriggja námskeiða fyrir leiðtoga. Á námskeiðinu var farið yfir ýmis atriði sem snúa að leiðtogaþjálfun eins og hvernig á að mynda teymi sem starfar saman að skipulagningu atburða og mikilvægi hróss og góðra samskipta. Mikil áhersla var á að kynna okkur YOUTH Program Evrópusambandsins. Leiðtogarnir á námskeiðinu áttu að koma með með sér hugmyndir af verkefnum og fengum við að spreyta okkur á að fylla út umsókn til Evrópusambandsins um styrk til þess að koma verkefninu í framkvæmd.
Seinni hluti námskeiðsins fór svo í að kenna okkur ýmis praktísk atriði varðandi alþjóðlega fundi. Við fengum lista yfir ýmis orð og hugtök sem notuð eru á slíkum fundum og svo var settur á svið alþjóðlegur fundur þar sem hver og einn leiðtogi fékk ákveðið hlutverk. Á fundinum var verkefni okkar meðal annars að reyna að komast í þær nefndir sem við höfðum mestan áhuga á og að koma réttu manneskjunum í nýja stjórn samtakanna (MEC-samtök sem búin voru til til þess að gera fundinn eins raunverulegan og hægt var). Nefndarstörfin voru mjög skemmtileg, þar voru rædd ýmis mál sem snúa að ofbeldi og komu ýmsar hugmyndi fram um það hvar áherslan ætti að liggja í því að koma í veg fyrir ofbeldi. Í upphafi fundarins var fulltrúum ákveðinna svæða boðið að funda um það hverjir væru líklegustu kandídatarnir í nýja stjórn MEC og er skemmst frá því að segja að Norðurlöndunum tókst að koma sinni manneskju í forsetastólinn.
En námskeiðið gekk ekki bara út á að læra bóklega, heldur lærðum við líka ýmislegt í ,,frístundunum”. Allir þátttakendur fengu að vera í tveimur hópum sem áttu að standa fyrir undirbúningi bænastunda. Önnur bænastundin átti að vera samkvæmt hefðum þeirrar kirkjudeildar sem viðkomandi er í en hin samkirkjuleg. Að mörgu leiti er hægt að segja að í þessum undirbúningi hafi reynt á hæfileika okkar og vilja til að starfa saman að því að gera bænastundirnar góðar fyrir alla. Í ljós kom þegar leiðtogarnir fengu tækifæri til þess að tjá sig um það hvað væri eftirminnilegast að bænastundirnar voru þar efst á blaði hjá mjög mörgum. Það var ógleymanlegt að sameinast svona á áþreyfanlegan hátt í bæn til Guðs með fulltrúum frá svo ólíkum kirkjudeildum sem þarna voru. Við upplifðum okkur sannarlega sem marga limi á einum líkama.
Á kvöldin fengum við svo tækifæri til þess að kynnast nánar menningu landa þeirra þátttakenda sem námskeiðið sóttu. Ýmsar aðferðir voru notaðar til. Þátttakendur komu með drykki og mat frá löndunum sínum og buðu öllum að smakka. Við Gunnfríður ákváðum að breyta ögn til í þetta sinn og komum ekki með hákarl og harðfisk heldur hangikjöt og flatkökur, súkkulaðirúsínur og lakkrís. Það er óhætt að segja að fólk hafi verið stórhrifið að hangikjötinu. Við fengum líka tækifæri til þess að kynna menninguna á annan hátt, með söng, dansi, leikjum eða sögum. Eitt af því eftirminnilegasta á námskeiðinu var menningarkvöld sem Eistar höfðu undirbúið. Þar fengum við nánast að taka þátt í ýmsum atburðum í sögu Eistlands en Eistar höfðu útbúið leikþátt þar sem leiðtogarnir fengu að taka virkan þátt. Óhætt er að segja að við höfum þetta kvöld fengið menninguna þeirra beint í æð.
Það voru tveir þreyttir og sorgmæddir Íslendingar sem kvöddu Suurupi seint á sunnudagseftirmiðdag, en þó saddar af fróðleik og vináttu sem vonandi endist og nýtist til frekara samstarfs í framtíðinni.
Sjöfn Þór