Færslur febrúarmánaðar 2004
Strætóratleikur ÆSKR
Næstkomandi laugardag, þann 21.febrúar stendur ÆSKR fyrir strætóratleik. Strætóratleikurinn er opin öllum æskulýðsfélögum kirkjunnar og fer skráning fram á skrifstofu ÆSKR eða á netfanginu aeskr@kirkjan.is . Ratleikurinn hefst í Laugarneskirkju kl. 14.00 og stendur til klukkan 19.00. Endað verður með pizzaveislu í boði ÆSKR. Ratleikurinn fer þannig fram að skipt er niður í hópa og fær hver hópur möppu með verkefnum sem þarf að leysa innan ákveðins tíma. Ekki er nauðsynlegt að leysa öll verkefnin en stig eru gefin fyrir hvert verkefni þannig að því fleiri verkefni sem eru leyst því betra fyrir hópinn. Verkefnin eru fjölbreytt og reynir á samvinnu og skipulagningu hópsins til að vel takist til. Eins og áður segir hefst ratleikurinn í Laugerneskirkju kl 14.00 og er mikilvægt að koma klædd eftir veðri. Ratleikurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Það er nokkuð kostnaðarsamt að halda ratleik eins og þennan en að þessu sinni styrkir Strætó okkur til verksins og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Fundur með biskup
Æskulýðsráð og starfsmaður ÆSKR fóru á fund herra Karls Sigurbjörnssonar biskups 5. febrúar síðast liðinn til að kynna fyrir honum starfsemi ÆSKR og til að ræða stöðu æskulýðsmála í landinu. Var hópnum vel tekið og áttu sér stað góðar og gagnlegar umræður um æskulýðsstarf kirkjunnar. Meðal þess sem um var rætt var þörfin fyrir að stofna æskulýðssambönd í líkingu við ÆSKR á fleiri stöðum á landinu sem vinna í nánum tengslum við kirkjurnar á viðkomandi svæði. Ef til vill getur ÆSKR miðlað einhverri reynslu til nýrra æskulýðssambanda og stuðlað þannig að öflugra æskulýðsstarfi á landsvísu. Þegar komin eru nokkur æskulýðssambönd um landið er grundvöllur til að stofna Æskulýðssamband kirkjunnar sem öll samböndin yrðu aðilar að og æskulýðssambandið vera tengiliður við Biskupsstofu. Mikilvægt er að hafa gott samstarf á milli starfsmanna fræðslusviðs Biskupsstofu og starfsmanna sem sinna æskulýðsstarfi í prófastsdæmunum því það þarf að vera ákveðið samræmi á milli þess sem kemur frá fræðslusviði og því sem prófastsdæmin eru að vinna að.
Eins og er er mjög gott samstarf á milli Biskupsstofu, Kjalarnessprófastsdæmis og ÆSKR en fleiri aðilum er ekki til að dreifa.
Æskulýðsráðið lýsti yfir áhyggjum með þróun æskulýðsmála hjá Biskupsstofu en á undanförnum árum er um verulega fækkun stöðugilda að ræða í æskulýðsstarfinu. Karl svaraði því til að hugmyndin hefði verið að starfið færðist út í prófastsdæmin en það hafi ekki verið að gerast, erfitt er að segja hvers vegna það hefur ekki gerst en ljóst er að skortur á leiðtogum á landsbyggðinni og peningar hafa eitthvað með það að gera.
Niðurstaða fundarins var að nú er lag og það er ekki eftir neinu að bíða með að fara að vinna að stofnun fleiri æskulýðssambanda.
Það er þó nokkuð víst að það er sama hvað Biskupsstofa og prófastsdæmin leggja sig fram, ef ekki kemur til áhugi og metnaður frá söfnuðunum sjálfum á æskulýðsstarfið alltaf erfitt uppdráttar.
Fundur með biskup
Æskulýðsráð og starfsmaður ÆSKR fóru á fund herra Karls Sigurbjörnssonar biskups 5. febrúar síðast liðinn til að kynna fyrir honum starfsemi ÆSKR og til að ræða stöðu æskulýðsmála í landinu. Var hópnum vel tekið og áttu sér stað góðar og gagnlegar umræður um æskulýðsstarf kirkjunnar.
Meðal þess sem um var rætt var þörfin fyrir að stofna æskulýðssambönd í líkingu við ÆSKR á fleiri stöðum á landinu sem vinna í nánum tengslum við kirkjurnar á viðkomandi svæði. Ef til vill getur ÆSKR miðlað einhverri reynslu til nýrra æskulýðssambanda og stuðlað þannig að öflugra æskulýðsstarfi á landsvísu. Þegar komin eru nokkur æskulýðssambönd um landið er grundvöllur til að stofna Æskulýðssamband kirkjunnar sem öll samböndin yrðu aðilar að og æskulýðssambandið vera tengiliður við Biskupsstofu.
Mikilvægt er að hafa gott samstarf á milli starfsmanna fræðslusviðs Biskupsstofu og starfsmanna sem sinna æskulýðsstarfi í prófastsdæmunum því það þarf að vera ákveðið samræmi á milli þess sem kemur frá fræðslusviði og því sem prófastsdæmin eru að vinna að.
Eins og er er mjög gott samstarf á milli Biskupsstofu, Kjalarnessprófastsdæmis og ÆSKR en fleiri aðilum er ekki til að dreifa.
Æskulýðsráðið lýsti yfir áhyggjum með þróun æskulýðsmála hjá Biskupsstofu en á undanförnum árum er um verulega fækkun stöðugilda að ræða í æskulýðsstarfinu. Karl svaraði því til að hugmyndin hefði verið að starfið færðist út í prófastsdæmin en það hafi ekki verið að gerast, erfitt er að segja hvers vegna það hefur ekki gerst en ljóst er að skortur á leiðtogum á landsbyggðinni og peningar hafa eitthvað með það að gera.
Niðurstaða fundarins var að nú er lag og það er ekki eftir neinu að bíða með að fara að vinna að stofnun fleiri æskulýðssambanda.
Það er þó nokkuð víst að það er sama hvað Biskupsstofa og prófastsdæmin leggja sig fram, ef ekki kemur til áhugi og metnaður frá söfnuðunum sjálfum á æskulýðsstarfið alltaf erfitt uppdráttar.
EYCE námskeið
Dagana 28. mars til 4.apríl heldur EYCE námskeið í European Youth Center í Strasbourg í Frakklandi.Yfirskrift námskeiðsins er Reconciliation as a means for sustainable peace eða; Sættir – leiðin til að viðhalda friði. Á námskeiðinu verður velt upp þýðingu hugtaksins að sættast og hlutverk sátta í að koma á friði. Skoðað verður hvort þátttakendur geti lagt eitthvað af mörkum til að koma á sáttum og að viðhalda friði.
Mikið er lagt upp úr hópeflingu á námskeiðum EYCE og því er mikið unnið í hópum en auk þess eru fyrirlestrar um efnið.
Þeir sem hafa farið á EYCE námskeið á vegum ÆSKR eru sammála um að það sé mikil upplifun og reynsla að taka þátt í námskeiðunum og ekki síst kynnast hinum þáttakendunum sem koma frá ýmsum Evrópulöndum. Hægt er að fá innsýn inn í námskeið EYCE í skýrslu Sjafnar Þór sem er hér á heimasíðu okkar en hún tók þátt í námskeiði á þeirra vegum í byrjun desember á síðasta ári.
Námskeiðið er ætlað 18-30 ára leiðtogum í æskulýðsstarfi. Þátttakendur á námskeiðinu fá styrk frá ESB fyrir stórum hluta af fargjaldi og þurfa aðeins að borga 43 evrur fyrir þátttöku.
Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Dagnýju Höllu í síma 5 800 825/ 861 1625 eða í gegnum netfangið aeskr@kirkjan.is.