ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur marsmánaðar 2004

Meira af ANTON

án ummæla

Æskulýðsmótið ANTON var haldið helgina 19.-21. mars. Eins og svo oft áður fór mótið fram í Vatnaskógi og þar fór ótrúlega vel um okkur.

Lagt var af stað frá Háteigskirkju klukkan 18.00 og þegar komið var í Vatnaskóg voru allir svo hungraðir að við borðuðum um leið og búið var að ganga frá faranginum. Boðið var upp á Tortillas og borðaðist mjög vel af því. Eftir kvöldmat var boðið upp á kvöldvöku, þrautakeppni og diskótek. Það skapaðist strax mikil og góð stemning á mótinu og greinilegt að allir sem mættir voru á mótið voru staðráðnir í að skemmta sér vel þessa helgi. Þrautakeppnin var æsispennandi og fór svo að lokum að lið Hafnarfjarðarkirkju vann að lokum.

Eftir að hafa gert matnum góð skil í “brunchinum” á laugardeginum hófst spurningakeppni æskulýðsfélagana sem enda með sigri Nedó. Á meðan undankeppnir spurningakeppninnar fóru fram var boðið upp á frjálsa þátttöku í íþróttum, krossamálun og fantasíuförðun.

Fræðslan á mótinu byggði mikið á virkri þátttöku allra. Hver er Jesú? – er spurning sem allir þurftu að velta fyrir sér og svara. Jón Gnarr kom eftir kaffi og deildi með mótsgestum hugleiðingum sínum um hver Jesú sé og áttu sér stað nokkuð líflegar umræður. Við unnum áfram með þessa spurningu en í lokastund á sunnudegi var talað um það hvað við erum fyrir Jesú og hversu mikilvægt það er.

Segja má að mótið hafi náð hápunkti sínum með “næturleik” þar sem farið var í gegnum liði messunar á stöðvun sem voru staðsettar vítt og breytt um svæðið og endað var með áhrifamikilli Taize-stund í íþróttahúsinu. Áhersla var lögð á upplifunarþáttinn og þrátt fyrir að norðanvindurinn blési hressilega var þetta mikil upplifun fyrir flesta sem tóku þátt. Semsagt: Frábært mót með frábæru fólki!

Undirbúningur mótsins var auk æskulýðsfulltrúa ÆSKR í höndum Halldórs Elíasar frá Grensáskirkju, Guðna Más frá Árbæjarkirkju og Snorra og Jónasar úr NEDÓ. Takk fyrir frábæra vinnu.

Dagný Halla Tómasdóttir

31. mars 2004 at 09:44

Fært undir Óflokkað

Af vormóti ÆSKR í Vatnaskógi

án ummæla

Helgina 19.-21. mars síðastliðinn héldu 100 hressir unglingar og leiðtogar til Vatnaskógar á vormót ÆSKR. Mótið tókst vel í alla staði, nánari lýsing kemur síðar en hér fyrir neðan má finna nokkrar myndir frá mótinu.

Dagný Halla Tómasdóttir

24. mars 2004 at 08:55

Fært undir Óflokkað

Æskulýðsmótið ANTON

án ummæla

Helgina 19.-21. mars heldur ÆSKR sitt árlega vormót sem að þessu sinni ber yfirskrftina Æskulýðsmótið ANTON. Eins og oft áður verður mótið haldið í Vatnaskógi sem er frábær staður fyrir svona samkomur. Á mótinu fer m.a. fram þrautakeppni á milli æskulýðsfélaga, spurningakeppni ÆSKR, diskótek, kvöldvökur og fleira.

Mótið er fyrir unglinga í 8.-10.bekk og er von á um 100 unglingum og leiðtogum þeirra. Lagt verður af stað frá Háteigskrikju föstudaginn 19. mars kl. 18.00 og komið til baka sunnudaginn 21.mars kl.15.00. Auk þess að bjóða upp á ýmiskonar afþreyingu fyrir unglingana verður einnig áhersla á helgihald og fræðslu.

Dagný Halla Tómasdóttir

16. mars 2004 at 09:22

Fært undir Óflokkað

Leiðtogasamvera í Grensáskirkju

án ummæla

Í kvöld, miðvikudaginn 3. mars er leiðtogasamvera ÆSKR í Grensáskirkju kl. 20:00. Aðalefni kvöldsins er kynning á ANTONI – æskulýðsmóti ÆSKR í Vatnaskógi.

Leiðtogasamveran hefst með bænastund. Að henni lokinni verður sagt frá æskulýðsmótinu ANTONI og dagskránni framundan hjá ÆSKR. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Leiðtogar eru hvattir til að mæta og gaman væri að sjá fulltrúa sem flestra kirkna af starfssvæði ÆSKR svo að upplýsingarnar um ANTON, æskulýðsmótið í Vatnaskógi 19.-21. mars, skili sér sem fyrst út í kirkjurnar!

Dagný Halla Tómasdóttir

3. mars 2004 at 10:55

Fært undir Óflokkað