ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur aprílmánaðar 2004

Ársfundur ÆSKR

án ummæla

Ársfundur ÆSKR verður haldinn þann 14. apríl n.k. í Hjallakirkju kl.18:00

Fundurinn er öllum sem starfa við eða koma að æskulýðsmálum kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum opin en þeir sem hyggjast mæta á fundinn eru hvattir til að kynna sér starfsreglur sambandsins vel, sérstaklega hvað kosningarétt og kjörgengi varðar. Kosið verður um tvo fulltrúa í æskulýðsráð ÆSKR, en þær Magnea Sverrisdóttir og Arna Grétarsdóttir ganga úr ráðinu eftir að hafa þjónað ÆSKR af mikilli fórnfýsi síðustu ár. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir það og væntum þess að fá áfram að njóta góðra krafta þeirra í ýmsum verkefnum.

Árskýrsla ÆSKR vegna vetrarins 2003-2004.

Starfsreglur ÆSKR.

Dagný Halla Tómasdóttir

2. apríl 2004 at 11:05

Fært undir Óflokkað

Ferð til Erfurt í Þýskalandi

án ummæla

Dagana 24.-29. mars fór æskulýðsfulltrúi ÆSKR ásamt fimm manna hóp til Erfurt í Þýskalandi. Ferðinni var heitið á tengslaráðstefnu á vegum Evrópusambandsins og voru þátttakendur frá Spáni, Þýskalandi, Svíþjóð, Ítalíu og Wales auk Íslendinganna.

Háteigskirkja hefur í þrjú ár verið með sjálfboðaliða í starfi hjá sér í gegnum verkefni sem nefnist evs og er rekið af EB en samtökin sem áttu fulltrúa á ráðstefnunni taka á móti eða senda sjálfboðaliða til annarra landa í Evrópu. Tveir fulltrúar voru frá Háteigskirkju, þeir Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni og Helgi E. Helgason sóknarnefndarmaður en hinir Íslendingarnir þau Þorvaldur Víðisson og Esther Bergsdóttir frá Landakirkju og Aðalsteinn Þorvaldsson frá Skátafélaginu Ægisbúum auk Dagnýjar frá ÆSKR voru komin þarna til að kynna sér hvort grundvöllur væri fyrir því að fleiri á Íslandi tækju að sér sjálfboðaliða og jafnvel að senda sjálfboðaliða frá Íslandi.

Hópurinn hitti margt skemmtilegt og áhugavert fólk og myndaði tengsl sem vonandi eiga eftir að koma sér vel í áframhaldandi vinnu. Á ráðstefnunni var nokkuð rætt um hlutverk og markmið óformlegrar menntunar en þá er átt við alla menntun sem miðar ekki við hefðbundið bóknám. Farið var í marga leiki sem hægt er að nota við óformlega menntun sem þjappaði það hópnum vel saman og úr varð góð og gangleg stund í Þýskalandi. Pétur Björgvin setti inn nokkrar myndir af ráðstefnunni inn á netið á http://www.blogg.is/evs/erfurt

Dagný Halla Tómasdóttir

1. apríl 2004 at 15:33

Fært undir Óflokkað