ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur maímánaðar 2004

EYCE – námskeið

án ummæla

Vikuna 12.-19. september 2004 heldur EYCE námskeiðið Mass Media –Diversity and Cohesion í Vilémo í Tékklandi. Eins og nafnið gefur til kynna á að fjalla um fjölmiðla með fókusinn á margbreytileika þeirra og hvað er sameiginlegt með þeim.

Meðal annars er ætlunin að velta fyrir sér spurningunni hvað er fjölmiðill og hvert er hlutvek hans? Einnig á að velta fyrir sér hvort fjölmiðlar geti haft góð áhrif á þjóðfélagið og hvernig þátttakendur geta sem ungt kristið fólk nýtt sér fjölmiðlana og þá hvernig.

Allir sem eru 18-30 ára og eru virkir í æskulýðstarfi kirkjunnar geta sótt um að fara á þetta námskeið.

Þátttökugjald á námskeiðið er 200 evrur auk einhvers ferðakostnaðar. EYCE greiðir helming fargjaldsins frá Íslandi til Tékklands og æskulýðsráð ÆSKR hefur skuldbundið sig til að greiða helminginn af því sem þátttakendur frá ÆSKR þurfa að greiða. Algengt er að sóknarnefndir veiti starfsmönnum sínum styrki til að fara á námskeið sem þessi og er ÆSKR tilbúið til að aðstoða við umsókn til sóknarnefnda sé þess óskað.

Umsóknarfrestur er til 18.júni. Nánari upplýsingar má fá hjá Dagnýju Höllu æskulýðsfulltrúa ÆSKR í síma 5800 825 eða 861 1625. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á aeskr@kirkjan.is

Dagný Halla Tómasdóttir

12. maí 2004 at 14:01

Fært undir Óflokkað

Sumarmót ÆSKR að Reykjum í Hrútafirði

án ummæla

Sumarmót ÆSKR 2004 verður dagana 25.-27.júní að Reykjum í Hrútafirði en þar er frábær aðstaða fyrir mót. Umhverfið í Hrútafirðinum er íslenskt og fallegt. Stutt í fjöruna og jafnvel hægt að fara í fjallgöngu. Á staðnum er sundlaug með heitum potti og gufubaði og svo höfum við aðgang að leiktækjasal með borðtennisborðum, minigolfi, þythokký og fótboltaspilum (sem við notum bara lítið af því að veðrið verður frábært!). Yfirskrift mótsins í fyrra var Náttúruleg snilld og þar sem svona mót eru ekkert nema snilld ákváðum við að halda sömu yfirskriftinn í ár! Dagskráin verður á léttu nótunum í takt við sumarið, en meðal annars verður boðið upp á spennandi útileiki, útivist, kvöldvökur, fræðslustundir, helgistundir og fleira. Í fræðslunni leggjum við áherslu á að við erum öll náttúrluleg snilld og þess vegna öll jafn merkileg!

Kostnaður á hvern þátttakenda frá félögum innan ÆSKR er 4000 kr en 5000 kr fyrir önnur félög. Inn í því eru rútuferðir, aðstöðugjald, frítt í sund, kvöldmatur föstudag og laugardag, og kaffitími á laugardeginum og sunnudeginum.

Það sem þarf að hafa með sér er tvöfaldur morgunmatur, tvöfaldur hádegismatur, drykki með kvöldmatnum, sundföt, auka föt, tjald, dýnu, svefnpoka og svo auðvitað hlý föt. Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl.17:00 föstudaginn 25. júní og komið aftur í Grensáskirkju sunnudaginn 27. júní kl.16:00.

Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu ÆSKR í síma 5800 825 eða í síma 861 1625. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið aeskr@kirkjan.is
Síðasti skráningardagur á tjaldmótið er 18. júní.

Sumarmótið er mjög gott tækifæri til að tengja unglingana betur við næsta starfsvetur og jafnframt frábært tækifæri til að bjóða unglingunum upp á góðan og skemmtilegan félagsskap á frábærum stað með frábæru fólki.

Dagný Halla Tómasdóttir

10. maí 2004 at 15:18

Fært undir Óflokkað

Fulltrúi ÆSKR á leikmannastefnu

án ummæla

18. leikmannastefna íslensku þjóðkirkjunnar var haldin 1. og 2. maí 2004 í safnaðarheimili Glerárkirkju. Pétur Björgvin Þorsteinsson sat stefnuna sem fulltrúi ÆSKR en sérstaklega hafði verið óskað eftir því að fulltrúi frá ÆSKR sæti leikmannastefnuna að þessu sinni þar sem að umræður um æskulýðsstarf kirkjunnar og framtíð þess voru á dagskránni. Pétur tók saman stutta frásögn af leikmannastefnunni og er hún birt hér.

Leikmannastefna Þjóðkirkjunnar var sett í 18. skipti af Biskupi Íslands, herra Karli Sigurbjörnssyni laugardagsmorguninn 1. maí 2004 í Glerárkirkju. Að setning lokinni var gengið til fundarstarfa en um 40 manns sóttu leikmannastefnu að þessu sinni. Rétt til setu á leikmannastefnu eiga m.a. kjörnir fulltrúar prófastdæmanna, leikmenn úr Kirkjuráði og af Kirkjuþing, biskup eða fulltrúi hans og fulltrúar félagasamtaka sem starfa á landsvísu innan þjóðkirkjunnar.

Fundarstörf hófust með erindi Biskups Íslands, Herra Karls Sigurbjörnssonar. Erindið bar yfirskriftina: ,,Ríki og kirkja, trú og samfélag.” Að loknum hádegisverði þar sem Jakob Frímann , 1. varaforseti Bæjarstjórnar Akureyrar bauð þátttakendur á leikmannastefnu velkomna til Akureyrar tók Sigríður M. Jóhannsdóttir, ritari sóknarnefndar Glerárkirkju til máls. Auk þess að bjóða leikmannastefnugesti velkomna í Glerárkirkju fyrir hönd sóknarnefndar sagði Sigríður frá sögu Glerárprestakalls og Lögmannshlíðarsóknar og þá sérstaklega frá framkvæmdum við hina ungu Glerárkirkju og starfinu í henni. Helgi Hjálmsson, formaður leikmannaráðs þjóðkirkjunnar flutti skýrslu leikmannaráðs og lagði fram reikninga ráðsins. Þá gerði Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslu- og upplýsingamála á Biskupsstofu grein fyrir drögum að fræðslustefnu þjóðkirkjunnar sem ber vinnuheitið ,,Frá vöggu til grafar”

Drög að fræðslustefnu þjóðkirkjunnar, ,,frá vöggu til grafar”

Í þessum drögum að fræðslustefnu sem Halldór lagði fyrir fundinn er dregin upp sú framtíðarsýn að árið 2010 verði boðið upp á heilstæða skírnarfræðslu með barnastarfi, unglingastarfi og fullorðinsfræðslu í öllum söfnuðum Þjóðkirkjunnar. Þar kemur fram að markmið fræðslustarfs Þjóðkirkjunnar, samkvæmt þeirri stefnu sem samþykkt var á síðasta Kirkjuþingi, sé að ,,styrkja hvert og eitt okkar til þess að öðlast dýpri skilnging á kristinni trú og þroskast sem manneskju.” Það sé vilji Þjóðkirkjunnar ,,að fræðslan sé heildstæð og nái til fólks á öllum æviskeiðum … [og] að horft sé sérstaklega til þeirra sem ala upp komandi kynslóðir og styðja þau í því verki að koma börnum til manns í trú, von og kærleika.”

Hvað starf með unglingum og ungu fólki viðvíkur gerði Halldór grein fyrir því að markmiðið væri ,,að efla ungt fólk [svo það] vaxi með jákvæða lífssýn og sterkari sjálfsmynd í trú á Guð.” Til þess að ná þessu markmiði þyrfti æskulýðsstarfið að ,,skapa heilbrigðan félagsskap, [vera] vettvangur fyrir tilvistarspurningar, miðla kristnum lífsgildum, [bjóða] lifandi samfélag við Guð í helgihaldi [og] búa undir virka þátttöku í safnaðarstarfi.” Að loknu kaffihléi ræddi Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Kirkjuráðs um framtíð Leikmannastefnu, eða öllu heldur breytingar á starfsreglum um stefnuna. En stefnunni sem slíkri er gefinn lagalegur grunnum með lögum frá Alþingi, nánar til tekið í 58. grein laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78 frá 1997. Um kvöldið var svo boðið til kvöldvöku.

Framsöguerindi um æskulýðsstarf innan kirkjunnar og hvernig megi efla það.

Dagskráin á sunnudeginum snérist um æskulýðsstarf innan kirkjunnar. Spurt var hvernig megi efla æskulýðsstarfið. Frummælendur voru tveir. Annars vegar Stefán Már Gunnlaugsson sem sá starfsmaður á Biskupsstofu sem hefur með æskulýðsstarf að gera og hins vegar Jóhann Hjaltdal Þorsteinsson, en hann er einn af æskulýðsfulltrúum Landssambands KFUM og KFUK.

Í máli sínu gerði Stefán Már grein fyrir niðurstöðum úr könnun Rannsóknar og greiningar hvað aðsókn grunnskólanemenda úr níunda og tíunda bekk í kirkjulegt æskulýðsstarf varðar. Þar kemur fram að aðsókn hefur aukist þó nokkuð frá árinu 2000 til ársins 2003. Þá sagði Stefán örlítið frá sögu og uppruna æskulýðsstarfs innan kirkjunnar meðal annars með hliðsjón af þróun félagsstarfs á Íslandi og sýnum hugmyndum um hvaða leiðir væru færar til eflingar á kirkjulegu æskulýðsstarfi.

Erindi Jóhanns var tvíþætt. Í fyrri hluta erindis síns gerði hann grein fyrir þróun og sögu KFUM og KFUK og fór sérstaklega yfir þá þætti starfsins sem snúa að æskulýðsstarfi félagsins. Í seinni hluta erindisins varpaði hann upp yrðingum um æskulýðsstarf. Þann hluta er að finna á vef kirkjunnar, á slóðinni … en þetta erindi flutti Jóhann á málþingi um æskulýðsstarf fyrr í vetur. Að lokinni framsögn Stefán og Jóhanns var mælendaskrá opnuð. Undirritaður tók til máls sem fulltrúi ÆSKR, þakkaði gott boð og góða stefnu og undirstrikaði mikilvægi þess að ÆSKR fengi að taka þátt í leikmannastefnu. Nokkrar umræður urðu um framsöguerindin og æskulýðsstarf almennt. Af máli manna mátti heyra að þátttakendum var mikilvægi æskulýðsstarfsins ljóst, þó svo að fulltrúar minni sóknar lýstu yfir áhyggjum sínum varðandi fjármögnum á slíku starfi í dreifðum byggðum landsins. Leikmannastefnu lauk með þátttöku í fjölskylduguðsþjónustu í Glerárkirkju, hádegisverði og stefnuslitum.

Það er mat undirritaðs að sýnileiki ÆSKR hafi verið mikilvægur á þessari leikmannastefnu. Til undirbúnings stefnunnar höfðu Sjöfn Þór og Dagný Halla Tómasdóttir útbúið lítið póstkort með helstu upplýsingum um ÆSKR sem var dreift til allra þátttakenda. Þá tók Dagný Halla saman ýmis gögn í kynningarmöppu, meðal annars fréttabréf, ársskýrslur ÆSKR og fleira. Skammt er frá því að segja að þessar möppur runnu út þar sem ýmsir þátttakendur á leikmannastefnunni höfðu áhuga á því að vita meira um ÆSKR.

Reykjavík, 3. maí 2004.

Pétur Björgvin Þorsteinsson

Dagný Halla Tómasdóttir

3. maí 2004 at 11:04

Fært undir Óflokkað