ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur júnímánaðar 2004

Heimsráð kirkna

án ummæla

Heimsráð kirkna (WCC) er ein stærsta og útbreiddasta samkirkjulega hreyfingin í heiminum. Í WCC eru yfir 340 kirkjur frá yfir 100 löndum með u.þ.b. 400 milljón meðlimi. Flestar rétttrúnaðarkirkjur og mótmælendakirkjur eru meðlimir í WCC en einnig margar sjálfstæðar kirkjudeildir. WCC er með öflugt starf fyrir ungt fólk (18-30 ára) út um allan heim og er markmið Heimsráðs kirkna að koma viðhorfum ungs fólks að í allri starfsemi ráðsins og auka þroska ungs fólks í samkirkjulegum samskiptum og stjórnun.

Meðal annar getur ungt fólk sótt um að vera skiptinemar á skrifstofum WCC og ráðstefnuþjónar á þeim ráðstefnum sem WCC stendur fyrir. Nýbúið er að auglýsa eftir ráðstefnuþjónum fyrir ráðstefnur sem verða í febrúar og maí á næsta ári. Frekari upplýsingar um það má finna á heimasíðu WCC fyrir ungt fólk.

Dagný Halla Tómasdóttir

9. júní 2004 at 11:02

Fært undir Óflokkað

Stjórnarfundur EYCE í Reykjavík

án ummæla

Helgina 29.júlí – 2. ágúst tekur ÆSKR á móti sjórn Ecumenical Youth Council in Europe (EYCE).

EYCE eru samkirkjuleg samtök með aðildarfélög frá 25 Evrópulöndum. ÆSKR er aðili að samtökunum síðan 1993 og hafa æskulýðsleiðtogar frá ÆSKR farið árlega á atburði á vegum EYCE. Stjórn EYCE er kosin á aðalfundi samtakanna sem síðast var haldinn í Vulcan í Rúmeníu og fóru tveir fulltrúar ÆSKR á þann fund. Stjórnina skipa sjö manns og er reynt að hafa hlutföll á milli kirkjudeilda, svæða í Evrópu og kynja sem jafnasta.

Hefð er fyrir því að aðildarfélög EYCE taki á móti stjórninni þegar hún hittst til að halda fundi sem er 2-3 á ári. Nú er komið að ÆSKR að taka á móti stjórninni og fögnum við því að fá svona góða gesti.

Von er á átta manns frá sjö löndum. Formaður EYCE er frá Finnlandi en aðrir í stjórninni eru frá Rússlandi, Eistlandi, Englandi, Ítalíu og Tékklandi. Einnig koma með á fundinn framkvæmdarstjóri EYCE, Daniel Müller og starfsmaður af skrifstofu EYCE sem er staðsett í Brussel.

Háteigskirkja lánar ÆSKR hluta af safnaðarheimili sínu til afnota og þar verður komið upp gisti- og fundaraðstöðu fyrir hópinn. Það er dýrt að taka á móti svona hóp og til að halda kostnaði í lágmarki verður vinnan í kringum fundinn unnin eins og hægt er í sjálfboðavinnu. Þá er bæði um að ræða vinnu við að undirbúa komu hópsins í Háteigskirkju og að útbúa mat handa fólkinu.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í að taka á móti hópnum eru hvattir til að hafa sambandi við Dagnýju Höllu og fá nánari upplýsingar. Þetta er gott tækifæri til að kynnast fólki frá öðrum löndum og kynnast starfsemi EYCE.

Dagný Halla Tómasdóttir

3. júní 2004 at 12:16

Fært undir Óflokkað

Sköpun Guðs

án ummæla

Sumarskóli EYCE “Vatn, loft og jörð – höfum náttúruna í hávegum, bætum framtíðina” verður haldinn í St. John’s College í Durham í Englandi 15.-22. ágúst 2004.

Við erum hluti af sköpuninni og erum kölluð til að lifa í sátt og samlyndi við umhverfið. Í sumarskólanum verður m.a. velt upp spurningum eins og: Hvernig erum við að nota/misnota náttúruna? Hvernig getum við lifað með náttúrunni? Hvað er hægt að gera til að vera meðvitaðri um náttúruna og tengdari henni? Hvernig geta gjörðir mínar dags daglega haft áhrif á famtíð mína? Þetta eru aðeins nokkrar af þeim spurningum sem koma upp í sumarskólanum og eiga þátttakendur að nota höfuð, hjarta og hendur til að leita að svörunum.

Þátttökugjald í sumarskólann er 60 evrur sem þátttakendur greiða. EYCE greiðir 70% fargjaldsins frá Íslandi til Englands. ÆSKR styrkir þau sem vinna innan Reykjavíkurpófastsdæma og fara á okkar vegum með því að greiða helminginn af því sem eftir stendur af kostnaði fyrir þátttakendur. Algengt er að sóknarnefndir veiti starfsmönnum sínum styrki til að fara á námskeið sem þessi og er ÆSKR tilbúið til að aðstoða við umsókn til sóknarnefnda sé þess óskað.

Allir sem eru 18-30 ára og eru virkir í æskulýðstarfi kirkjunnar geta sótt um að fara á námskeiðin en tveir þátttakendur fara á vegum ÆSKR.

Sækja þarf um hjá ÆSKR í síðasta lagi 18. júní næstkomandi.

Nánari upplýsingar má fá hjá Dagnýju Höllu æskulýðsfulltrúa ÆSKR í síma 5800 825 eða 861 1625. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á aeskr@kirkjan.is.

Dagný Halla Tómasdóttir

2. júní 2004 at 11:25

Fært undir Óflokkað