Færslur septembermánaðar 2004
Vera 2004
Vera- Haustsamvera ÆSKR verður haldin í Háteigskirkju laugardaginn 2.október. Dagskráin hefst kl 18.00 og stendur til kl 22. Á haustsamveru er frábært tækifæri fyrir æskulýðsfélögin til að hittast og eiga góða stund saman. Byrjað verður á að fara í létta leiki og síðan notum við klukkutíma í að gera saman góðverk. Síðan verður kvöldmatur og að honum loknum verður hægt að velja á milli skemmtilegra verkefna s.s. að fara í fantasíuförðun, twisterkeppni, leirmótun og boltaleik. Dagskráin endar með helgistund í kirkjunni.
EYCE námskeið í Grikklandi
Samræða ólíkrar menningar og trúarbragða án þess að deila!
EYCE námskeið haldið vikuna 15.-22. nóvember í Veria Grikklandi.
Námskeiðið er fyrir ungt fólk 20-30 ára og leiðtoga í kristilegu æskulýðsstarfi. Þátttakendur þurfa ekki að hafa þekkingu á efninu en verða að hafa áhuga á samræðum á milli ólíkrar menningar og ólíkra trúarbragða. Þátttakendur verða að vera víðsýnir og tilbúnir að hlusta á aðra sem og að vera tilbúnir að deila eigin skoðunum.
Námskeiðið er haldið í samvinnu við SYNDEMOS sem eru heimssamtök ungra orthodoxa og FEMYSO sem er samband ungra múslima í Evrópu og stúdentasamtaka múslima. Markmið námskeiðsins er að kenna þátttakendum tækni í samræðum sem byggir upp traust og dregur úr vantrausti og ótta til að forðast alvarlegan ágreining.
Einnig er stefnt að því að þátttakendur:
Öðlist betri skilning á Kristni og Íslam. Komi auga á hvað menning trúarbragðana á sameiginlegt og læra að bera virðingu fyrir því sem skilur á milli. Fái tækifæri til að ræða sín á milli og skiptast á skoðunum og hugmyndum.
Auk þessa verður sjónum beint að því hvað hefur þegar verið gert í samræðum á milli þessara trúarbragða og litið á jákvæðar samræður sem hafa átt sér stað á milli kristni og Íslam og reynt að læra af þeim mistökum sem hafa verið gerð.
Vonast er til að þátttakendur geti eftir námskeiðið hafið umræður sem þessar í sínu heimalandi og notað þær sem fyrirmynd í samræðum á milli fleiri trúarbragða.
Þátttökugjald er 140 en innifalið í því er gisting, fæði og skoðunarferð. EYCE greiðir fyrir helming fargjaldsins.
ÆSKR styrkir þátttakendur sem fara á vegum sambandsins og starfa í kirkju innan Reykjavíkurprófastsdæma um 25% af fargjaldi og helming þátttökugjalds.
Sækja þarf um hjá ÆSKR í síðasta lagi 28 september næstkomandi.
Nánari upplýsingar má fá hjá Dagnýju Höllu æskulýðsfulltrúa ÆSKR í síma 5 800 825 eða 861 1625 og Sjöfn Þór formanni ÆSKR í síma 867 1775. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á aeskr@kirkjan.is
Haustnámskeið fyrir æskulýðsleiðtoga
Fimmtudaginn 23.september verður haustnámskeið æskulýðsleiðtoga haldið í Háteigskirkju. Námskeiðið stendur frá kl. 18 -22. Námskeiðið er um leiklist og theater-sport og er í umsjón Valgeirs Skagfjörð leikara. Hann verður með ýmsar æfingar og kennir hvernig hægt er að tengja leiklistina inn í æskulýðsstarfið.
Aðeins 15 leiðtogar geta tekið þátt í námskeiðinu. Þátttaka á námskeiðinu kostar 2700 en innifalið í því er kvöldmatur.
Skráning fer fram hjá Sjöfn Þór í síma 867 1775