ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur októbermánaðar 2004

Leiðtogasamvera 2. nóvember

án ummæla

Þriðjudaginn 2. nóvember verður leiðtogasamvera þar sem Magnea Sverrisdóttir djákni í Hallgrímskirkju ætlar að kenna okkur að þæfa ull. Bæði verður hægt að gera trefla sem eru settir í þvottavél til að þæfast en einnig sýnir Magnea hvernig á að þæfa ull í höndunum og er þá t.d. hægt að gera húfur eða töskur.
Þetta er frábært til að föndra jólagjafir með æskulýðsfélaginu sínu fyrir jólin en svo er líka bara hægt að koma og búa svona til handa sjálfum sér. Það kostar ekkert að koma og taka þátt í þessu en það verður að tilkynna þátttöku fyrir hádegi mánudaginn 1.nóvember til að hægt sé að áætla magn. Netfangið hjá ÆSKR er aeskr@kirkjan.is og símarnir eru 580 0825 og 861 1625

Samveran byrjar kl.17.00 og er í Grensáskirkju. Þegar þæfingin er búin verður boðið upp á pizzu og endað með helgistund.

Dagný Halla Tómasdóttir

25. október 2004 at 12:47

Fært undir Óflokkað

Óttast eigi!

án ummæla

Óttast eigi!

Fear Factor mót ÆSKR verður haldið í Grensáskirkju mánudaginn 8. nóvember og hefst það stundvíslega klukkan 19.00

Mörg æskulýðsfélög hafa haft Fear Factor keppnir við miklar vinsældir í kirkjunum sínum en nú ætlum við að sameina krafta félagana og halda eitt stórt og hrikalegt Fear Factor mót fyrir öll æskulýðsfélög í kirkjunni sem vettlingi geta valdið.

Keppendur þurfa að yfirvinna hrikalegar þrautir sem eru aðeins á færi hugrakkasta fólks, s.s. að klifra veggi, komast í gegnum dimman kjallara, drekka viðbjóðslegan ógeðsdrykk og fleira og fleira.

Öllum er frjálst að taka þátt í keppninni og til að hafa framkvæmdina sem einfaldasta taka þátttakendur þátt í þeim þrautum sem þeir vilja og fá stig fyrir hverja þraut. Sá sem fær flest stig vinnur.

Ekkert kostar að taka þátt en mikilvægt er að leiðtogar tilkynni fjölda frá sínu félagi eigi síðar en á hádegi þann 8.nóvember.

Að móti loknu verður helgistund í kirkjunni til að taka úr fólki mesta hræðlsuhrollinn og síðan verður boðið upp á djús og kex og tilkynnt um úrslitin.

Dagný Halla Tómasdóttir

20. október 2004 at 14:35

Fært undir Óflokkað