ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur nóvembermánaðar 2004

Ferð Elfu Rutar og Þórunnar Áslaugar í sumarskóla EYCE

án ummæla

Þann 15. – 22. ágúst héldum við, Elfa Rut og Þórunn Áslaug, til Englands. Förinni var heitið í Sumarskóla EYCE – Water, Air and Earth – Celebrating Nature, Improving the Future. Við lentum að kveldi sunnudagsins í Newcastle og fórum þaðan til Durham þar sem námskeiðið var haldið.

Þar tók á móti okkur glaður hópur skipuleggjenda námskeiðsins sem afhenti okkur dagskrá og lykil að herbergjum okkar. Hver dagur var vel skipulagður frá kvöldi til morguns. Þarna var fólk samankomið frá hinum ýmsu löndum til þess að taka þátt í því að læra um upphaf heimsins, náttúruna, rusl og hvað við getum gert til að búa betur um jörðina okkar sem okkur falin falin umsjá með við upphaf heimsins. Við fengum marga góða gestafyrirlesara sem sögðu okkur frá t.d. sögu endurvinnslu í Englandi og Durham, loftslags breytingum og hvernig kirkjurnar í Bretlandi hugsa um umhverfi sitt og sköpun Guðs.

Mikið var um hópvinnu í sumarskólanum. Öllum þátttakendunum var skipt niður í fimm hópa sem hétu eftir þema sumarskólans – Water, Air, Earth, Sun og Fire. Unnin voru allskonar verkefni í þessum hópum í sambandi við þema sumarskólans. Meðal annars áttum við að finna upp á eða kaupa einhvað sem var alveg gríðarlega umhverfisvænt og gera auglýsingu um það. Einn morgunin átti hver hópur að lesa texta úr Biblíunni og túlka þá og útskýra síðan okkar túlkun fyrir hinum hópunum.

Einnig fórum við í hlutverkaleik þar sem við fengum það hlutverk að vera mismunandi dýr á eyju sem þurftu að taka mikilvæga ákvörðun hvort leyfa ætti rottur á eyjunni. Þeim leik lauk svo, eftir miklar rökræður, að rotturnar væru ekki velkomnar á friðsælu eyjuna.

Fyrir hádegismat var alltaf stutt samverustund í kapellunni þar sem hver “kirkjudeild” var með denominational prayer, eða stutta bænastund samkvæmt sinni hefð. Síðan var alkirkjuleg bænastund fyrir kvöldmatinn. Í alkirkjulegu stundunum tók fólk úr mismunandi “deildum” þær að sér, sem var alla jafnan mjög skemmtilegt, þar sem allir lögðu mikið í að hafa þær stundir öðruvísi en bænastundirnar fyrir hádegismatinn.

Á hverju kvöldi var bryddað upp á einhverju nýju. Þá vorum við t.d. með kynningu á mat frá okkar löndum, menningarkvöld, breskt skemmtikvöld og kvikmyndakvöld svo eitthvað sé nefnt.

Margt annað var gert þessa viku í sumarskólanum í Durham. Við bjuggum til slagorð fyrir sumarskólann 2004 “Be Eco, It’s Fun”, endurunndum dagblöð og margt margt fleira.

Við viljum þakka ÆSKR kærlega fyrir þessa skemmtilegu upplifun í Durham. Þetta var ekki bara fræðileg heldur líka stórskemmtileg dvöl með skemmtilegu fólki. Allir sem við kynntumst, allt sem við lærðum, sáum og uppgötvuðum verður seint gleymt.

Kærar þakkir.

Þórunn Áslaug og Elfa Rut

Dagný Halla Tómasdóttir

24. nóvember 2004 at 15:08

Fært undir Óflokkað