Færslur desembermánaðar 2004
Jólaguðsþjónusta ÆSKR á sunnudaginn
Jólaguðsþjónusta ÆSKR verður í safnaðarheimili Dómkirkjunnar næsta sunnudag þann 19.desember kl. 20.30. Guðsþjónustan verður í kaffihúsastíl þar sem þátttakendur sitja við borð og og næra sig líkamlega á heitu súkkulaði og smákökum um leið og þeir fá andlega næringu í guðsþjónustunni.
Að stundinni lokinni koma jólasveinar í heimsókn og gefa pakka og taka nokkur létt jólalög. Prestur í messunni er sr. Sigfús Kristjánsson og Dómkirkjubandið undir stjórn Hans G. Alfreðssonar leikur undir söng.
Jólamessa ÆSKR er orðin að föstum lið í starfinu enda tilvalið að koma og eiga góða stund með öðrum úr æskulýðsstarfinu.
Allir eru velkomnir á stundina en við bjóðum sérstaklega ungt fólk, starfsfólk æskulýðsstarfsins og fjölskyldur þeirra velkomin.