Færslur janúarmánaðar 2005
Keilumót í Öskjuhlíð
Miðvikudaginn 2. febrúar verður KEILUMÓT ÆSKR haldið í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. Þetta er í annað sinn sem ÆSKR heldur keilumót og var frábær þátttaka síðast.
Keppt verður á milli einstaklinga og því eiga allir möguleika á að vinna. Spiluð verður ein umferð og veitt verða verðlaun fyrir 1., 2., og 3. sætið.
Þeir sem hafa áhuga á að mæta og hvetja er að sjálfsögðu velkomnir og öllum sem koma á vegum æskulýðsfélags verður boðið upp á hressingu.
Mæting er klukkan 19.00 en byrjað verður að spila klukkan 19.30. Umferðin kostar 300 krónur.
Krakkarnir skrá sig síðan á staðnum um leið og þau borga fyrir sig. Ef einhverjir ætla að vera saman á braut þurfa þau að skrá sig á sama tíma.
Ef frekari upplýsingar vantar þá endilega hafið samband við æskulýðsfulltrúa ÆSKR í síma 580 0825 / 861 1625
Skapandi starf
Í haust hófst starf á Reykjavíkursvæðinu fyrir ungt fólk á aldrinum 14-20 ára. Þetta er Ten-Sing starf en ákveðið var að kalla það KMS sem stendur fyrir Kristur-menning-sköpun, en það eru einkunnarorð Ten-Sing. Um 40 krakkar hafa tekið þátt í starfinu í haust en boðið hefur verið upp á leiklistahóp, kór og hljómsveit. Nú á vorönn bætist við nýr hópur, guðfræðihópur en þar er ætlunin að pælaí ritningartextum og jafnvel straumum og stefnum í guðfræðinni. Hljómsveitahópurinn færir út kvíarnar og æfir sig á jambe trommur af miklum krafti.
Vel tókst upp á haustönn enda frábært fólk í starfinu og nú á að gera stóra hluti á vorönn. Settur verður upp söngleikur sem sýndur verður í lok maí. Hóparnir munu í sameiningu útfæra söngleikinn í gegnum spuna og pælingar.
Enn er hægt að bæta í hópinn og því geta þeir sem hafa áhuga og réttan aldur komið fimmtudaginn 13.janúar kl. 17.00 í Áskirkju til að taka þátt í leiklistahóp, kór eða guðfræðihóp en í hús KFUM og KFUK við Holtaveg 28 til að spila í hljómsveit og á jambe trommur.
Boðið er upp á léttan kvöldverð í Áskirkju í lok æfinganna.
Helgina 28.-30. janúar verður farið í Vatnaskóg í æfinga- og gleðibúðir. Allir sem taka þátt í starfinu eru velkomnir í ferðalagið.
Starfið er samstarfsverkefni ÆSKR, miðborgarstarfs KFUM og KFUK og kirkjunnar, Landsambands KFUM og KFUK. Áskirkju, Fella- og Hólakirkju og Laugarneskirkju.
EYCE námskeið
Mismunun og rasismi – sigrast á ógn með virðingu.
Námskeiðið verður haldið í European Youth Centre Búdapest (EYCB), Ungverjalandi frá 27. febrúar til 6. mars 2005.
Námskeiðið er fyrir ungt fólk 20-30 ára og leiðtoga í kristilegu æskulýðsstarfi. Þátttakendur þurfa ekki að hafa þekkingu á efninu en þurfa að hafa áhuga á málefninu og tilbúnir til að velta fyrir sér mannréttindamálum, taka virkan þátt á námskeiðinu og geta miðlað þekkingu sinni í heimalandi sínu eftir námskeiðið.
Meðal spurninga sem á að velta fyrir sér á námskeiðinu eru; Hvernig tekst okkur að takast á við ólíka menningu, hefðir og trúarbrögð? Hvar byrjar misrétti og rasismi og hvað þýða þessi orð? Erum við enn að velta fyrir okkur hörundslit fólks?
Hvert er hlutverk kirkjunnar og trúarbragða í þessum efnum? Hvað getur ungt fólk lagt til málanna í baráttunni gegn mismunum og rasisma?
Nánari upplýsingar má fá hjá Dagnýju Höllu æskulýðsfulltrúa ÆSKR í síma 5 800 825 eða 861 1625 og Sjöfn Þór formanni ÆSKR í síma 867 1775. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfang ÆSKR
Janúarnámskeið ÆSKR "Inn á við"
Janúarnámskeið ÆSKR verður haldið í Skálholti dagana 14. og 15. janúar. Námskeiðið er opið öllum frá 16 ára aldri sem eru leiðtogar og aðstoðarleiðtogar í æskulýðsfélögum kirkjunnar.
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl.17.00 föstudaginn14. janúar og komið til baka í Grensáskirkju upp úr kl.19.00 laugardaginn 15. janúar.
Að þessu sinni mun Elísabet Berta Bjarnadóttir félagsráðgjafi hjá fjölskylduþjónustu kirkjunnar fræða um meðvirkni í samskiptum í fjölskyldu og á vinnustað. Elísabet hefur lengi starfað við persónulega ráðgjöf og hefur m.a. sérhæft sig í meðvirkni í samskiptum. Elísabet mun bæði vera með fræðslu og stýra úrvinnslu í smærri hópum.
Athyglinni er beint “inn á við á þessu námskeiði og stendur þátttakendum til boða sálgæsla á meðan á námskeiðinu stendur
Einnig er lögð áhersla á að leiðtogar eigi gott samfélag saman í fræðslu, leik og helgihaldi.
Janúarnámskeiðin er tilvalin til að byggja sig upp þegar haldið er inn í nýtt ár í æskulýðsstarfinu. Umsjón með námskeiðinu hafa Magnea Sverrisdóttir djákni og sr. Arna Grétarsdóttir ásamt starfsmanni ÆSKR.
Leiðtogafræðsla er mjög mikilvægur þáttur æskulýðsstarfsins. Það eru sífellt meiri kröfur gerðar til fólks sem vinnur með börnum og unglingum og allir leiðtogar eiga rétt á því og ber skilda til að afla sér fjölbreyttrar þekkingar sem nýtast þeim í starfi í kirkjunni.
Námskeiðið kostar kr. 8000.- fyrir þátttakendur frá söfnuðum innan Reykjavíkurprófastsdæma en kr. 11.000.-
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 5800 825 eða á netfangi ÆSKR ekki síðar en 7. Janúar 2005.