ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur febrúarmánaðar 2005

Með augum Jesú

án ummæla

Vormót ÆSKR í Vatnaskógi 11. – 13. mars 2005

Vormót ÆSKR er löngu orðið að föstum lið í æskulýðstarfi kirkjunnar á höfuðborgarsvæðinu. Mótið er fyrir unglinga frá 13 ára aldri sem taka þátt í unglingastarfi kirkjunnar. Að þessu sinni er yfirskrift mótsins “Með augum Jesú”. Á hverju móti er fjallað um ákveðið efni og er fræðslustund þar sem yfirskrift mótsins er tekin fyrir á einhvern skemmtilegan hátt. Í ár verður fjallað um jafnrétti fólks þar sem áhersla er lögð á að allir hafa jafnan rétt óháð uppruna og trú. Yfirskrift mótsins höfðar til þess að sem kristnir einstaklingar eigum við að horfa á hvort annað með augum Jesú.
Mótið verður haldið í sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi en þar er frábær aðstaða til að halda æskulýðsmót.

Lagt verður af stað frá Háteigskirkju kl. 18.00 föstudaginn 11. mars og komið til baka í Háteigskirkju kl. 15.00 sunnudaginn 13. mars. Það verður mikil og góð dagskrá í boði og má þar nefna meðal annars diskó, kvöldvökur, hópastarf, helgistundir og ekki má gleyma hinni sívinsælu spurningakeppni ÆSKR sem fram fer á mótinu.
Æskulýðsfélag Árbæjarkirkju verður með sjoppu á mótinu en þau eru að safna sér fyrir utanlandsferð næsta sumar.
Þátttaka kostar kr. 6900.- en innifalið í því er matur, gisting, rútuferðir og stuttermabolur.

Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 7.mars. Leiðtogar hverrar kirkju skrá þátttakendur frá sér og senda á netfang ÆSKR eða í síma 580 0825.

Ef frekari upplýsingar vantar þá vinsamlegast hafið samband við æskulýðsfulltrúa ÆSKR, Dagnýju Höllu Tómasdóttur

Dagný Halla Tómasdóttir

21. febrúar 2005 at 15:23

Fært undir Óflokkað

Vor í Póllandi

án ummæla

Mannréttindi í varnarstöðu?

Námskeið EYCE 15.-22. maí 2005 í Brenna í Póllandi

Í vor heldur EYCE námskeið í Brenna í Póllandi en Brenna er staðsett í fjöllum suðurhluta landsins.

Á námskeiðinu verður fjallað um mannréttindi og hlutverk ungs fólks í mannréttindabaráttu. Meðal annars á að velta upp spurningum um hvort mannréttindi séu í vörn eða sókn. EYCE sér merki þess að ungt fólk er að verða meðvitaðra um þá spurningu hvort það hafi raunhæfa möguleika á að breyta heiminum þannig að mannréttindi verði tryggð öllum. Og ef sá möguleiki er fyrir hendi hvernig getur ungt fólk látið til sín taka. Annað sem ætlunin er að taka fyrir á námskeiðinu er sú spurning hvaða tengsl eru á milli kristinna gilda og mannréttinda. Námskeiðið er fyrir ungt fólk á aldrinum 18-30 ára og æskulýðsleiðtoga. Þátttakendur verða að vera virkir í æskulýðsstarfi og geta miðlað af reynslu sinni af námskeiðinu í starfinu þegar heim er komið. Þeir þurfa að vera tilbúnir að setja upp verkefni um mannréttindi og skila skýrslu til EYCE um verkið.

Námskeiðið er miðað við ungt fólk sem hefur ekki sérfræðiþekkingu á efninu. Þátttakendur verða hins vegar að hafa áhuga á mannréttindum og tilbúnir að vera virkir á námskeiðinu og leggja eitthvað til málana.

Ætlast er til þess að þátttakendur mæti á námskeiðið með opnum huga og séu tilbúnir til að hlusta á skoðanir annara og deila sínum eigin skoðunum með öðrum. Þátttakendur verða að taka fullan þátt í námskeiðinu

Námskeiðsgjaldið er 140 € sem er fyrir húsnæði, uppihaldi og skoðurnarferð. Íslendingar fá 50% af fargjaldinu endurgreitt.

ÆSKR styrkir þátttakendur sem fara á vegum sambandsins og starfa í kirkju innan Reykjavíkurprófastsdæma um 25% af fargjaldi og helming þátttökugjalds.

Sækja þarf um hjá ÆSKR í síðasta lagi 7.mars næstkomandi.

Nánari upplýsingar má fá hjá Dagnýju Höllu æskulýðsfulltrúa ÆSKR í síma 5 800 825 eða 861 1625 og Sjöfn Þór formanni ÆSKR í síma 867 1775. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á aeskr@kirkjan.is

Dagný Halla Tómasdóttir

2. febrúar 2005 at 16:58

Fært undir Óflokkað