ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur marsmánaðar 2005

Gott mót

án ummæla

Helgina 11.-13 mars var vormót ÆSKR haldið í Vatnaskógi. Hópurinn lagði af stað frá Háteigskirkju í köldu en fallegu veðri og gaf veðrið strax sólskinstóninn sem ríkt á mótinu.

Góð stemning var á mótinu og greinilegt að allir voru mættir til að skemmta sér og eiga góða stund saman. Eins og tilheyrir góðu æskulýðsmóti var mikið fjör og náði það hápunkti á kvöldvökunni á laugardeginum þar sem æskulýðsfélögin voru með atriði og úrslitakeppnin í spurningakeppni ÆSKR fór fram. Lið Fella- og Hólakirkju vann keppnina við mikinn fögnuð áhangenda.

Yfirskrift mótsins var “Með augum Jesú” og í fræðslunni veltum við fyrir okkur hvað fordómar eru og hvernig við sjáum heiminn út frá okkar eigin áhuga og reynslu. Við unnum verkefni til að átta okkur betur á okkur sjálfum, menningu okkar og umhverfi og töluðum svo um hópa sem algengt er að fólk hafi fordóma gegn. Við fjölluðum sérstaklega um múslima þar sem margir hafa sterka fordóma gegn þeim og í fjölmiðlum er oftast talað um kristna og múslmima sem óvini.

Niðurstaðan var sú að ef við tileinkum okkur þá sýn sem Kristur hafði á manneskjunni eigum við auðveldara með að sjá það sem er sameiginlegt með okkur og öðrum í stað þess að einblína á það sem skilur á milli. Sem kristnir einstaklingar eigum við að leggja okkur fram um að koma fram við fólk af virðingu og með kærleika.

Á heimleiðinni héldum við messu í Hallgrímskirkju, Saurbæ þar sem sr. Yrsa Þórðardóttir þjónaði og voru það góð lok á góðu móti.

Dagný Halla Tómasdóttir

17. mars 2005 at 10:00

Fært undir Óflokkað