ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur aprílmánaðar 2005

Góð ferð að Úlfljótsvatni

án ummæla

Það voru hress og kát ungmenni sem drifu sig af stað í Útivistarferð ÆSKR á síðasta vetrardag. Hópurinn sem saman stóð af 36 ungmennum og leiðtogum hélt sem leið lá í Skátaparadísina að Úlfljótsvatni þar sem Aðalsteinn Þorvaldsson tók við hópnum og fór með í göngu og skátaleiki. Veðrið var með eindæmum gott og gátu sum börnin ekki stillt sig um að hlaupa út í læk en engum varð nú meint af því. Að loknum skátaleikjunum kom hópurinn aftur að skátabúðunum og fékk grillaðar pylsur, gos og kex að borða. Þá var haldið út í laut þar sem Hans í Dómkirkjunni leiddi helgistund. Það voru þreytt og útitekin ungmenni sem héldu heim á leið þennan síðasta vetrardag eftir vel heppnaða ferð í sveitina.

Sjöfn Þór og sr.Sigfús Kristjánsson voru fararstjórar ferðarinnar og að vanda tóks þeim vel upp.

Dagný Halla Tómasdóttir

27. apríl 2005 at 15:07

Fært undir Óflokkað

Útivistarferð

án ummæla

ÆSKR stendur fyrir útivistarferð á síðasta degi vetrar. Kveðjum við veturinn með þökk og fögnum komu nýs sumars.

Ferðin í boði fyrir öll æskulýðsfélög kirkjunnar. Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl.18.00 miðvikudaginn 20.apríl og haldið sem leið liggur að Úlfljótsvatni. Þar tekur Aðalsteinn Þorvaldsson skáti á móti hópnum og fer með hópinn í göngu og leik. Að því loknu verður líkamleg og andleg næring, grillaðar pylsur og endað með helgistund. Áætlað er að koma til baka um klukkan 22.

Þátttaka í ferðinni kostar 1200 krónur og tilkynna þarf um þátttöku til Dagnýjar Höllu í síma 861 1625.

Dagný Halla Tómasdóttir

19. apríl 2005 at 13:31

Fært undir Óflokkað

Ársfundur ÆSKR

án ummæla

Ársfundur ÆSKR var haldinn fimmtudaginn 14.apríl í Seltjarnarneskirkju. Fundurinn hófst á helgistund sem sr. Arna Grétarsdóttir leiddi, en hún var jafnframt fundarstjóri fundarins.

Að venju var ársskýrsla æskulýðsráðsins og starfsmanns ÆSKR kynnt og kom fram að margt hefur verið gert á árinu. Auk hefðbundinna atburða var einnig nokkuð um nýjungar í starfinu og heildina var árið hjá ÆSKR viðburðarríkt og gott og mæting á atburði ásættanleg.

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2006 var kynnt á fundinum en það var tekið fram að nýtt ráð kemur til með að móta starfsemi ÆSKR næsta árið og því líklegt að einhverjar breytingar eigi eftir að eiga sér stað á áætluninni. Það mátti lesa út úr áætluninni að leiðtogafræðsla og atburðir fyrir æskulýðsfélögin verða áfram veigamestu þættirnir í starfsemi ÆSKR.

Kosið var um sæti í æskulýðsráði ÆSKR en nokkrar mannabreytingar urði í ráðinu. Úr ráðinu gegnu, sr. Sigfús Kristjánsson, Guðni Már Harðarson og Guðrún Helga Harðardóttir. Auk þess hættu Halldór Elías Guðmundsson og Ólafur Jóhann Borgþórsson sem varamenn.

Í nýju ráði eru Sjöfn Þór frá Hjallakirkju sem var endurkjörin til tveggja ára, Ólafur Jóhann Borgþórsson frá Seljakirkju og Agnes Guðjónsdóttir frá Seltjarnarneskirkju sem voru kjörin til tveggja ára, Guðmunda Inga Gunnarsdóttir frá Neskirkju sem var kjörin til eins árs og áfram situr Elfa Rut Sæmundsdóttir frá Fella- og Hólakirkju.

Varamenn til eins árs eru Þorsteinn Arnórsson frá Árbæjarkirkju og Hulda Vilhjálmsdóttir frá Fella- og Hólakirkju.

Á fundinum var einnig óskað eftir fólki til starfa í þrjár nefndir til að virkja sem flesta í starfi ÆSKR. Í mótanefnd buðu sig fram Hrafnhildur og Gunnfríður frá Háteigskirkju, í nýjunganefnd buðu sig fram sr. Sigfús frá Hjallakirkju, Sigríður Rún frá Fella- og Hólakirkju og Pálína frá Seltjarnarneskirkju. Í menntamálanefnd sitja Magnea frá Hallgrímskirkju, sr. Íris frá Hjallakirkju og Hans frá Dómkirkjunni.

Að lokum var fólki boðið upp á að ræða önnur mál og m.a. þakkaði Jón Dalbú ÆSKR fyrir gott starf, Stefán Már Gunnlausson kynnti Kirkjudaga, sagði frá stofnun LÆF nýrra æskulýðssamtaka og varpaði þeirri spurningu fram hvort ÆSKR ætti ekki að vera fyrir breiðari aldurshóp, þá t.d. fyrir börn frá sex ára aldri.

Ársfundur ÆSKR fór vel fram og ljóst af umræðum fundarins að ÆSKR er á réttri leið í starfi sínu.

Dagný Halla Tómasdóttir

19. apríl 2005 at 13:10

Fært undir Óflokkað