Færslur ágústmánaðar 2005
KMS byrjað aftur
KMS-starfið (Kristur-Menning-Sköpun) er listastarf fyrir ungt fólk á aldrinum 15-20 ára og er á vegum Miðborgarstarfs KFUM og KFUK, ÆSKR og fleiri aðila.
Rúmlega fjörtíu unglingar tóku þátt í starfinu síðasta vetur og settu þau upp frumsamin söngleik um “Jósefínu og systurnar ” sem var sérlega vel heppnað og flott verkefni.
Í KMS starfinu er gengið út frá hugmyndafræði Ten-sing starfsins sem kemur frá Noregi. Þar er haft til grundvallar að laða unglinga til fylgdar við Jesú Krist, jafnframt að vinna út frá menningu unglinga og hvetja ungt fólk til að gefa eitthvað af sjálfu sér.
KMS er kristilegt unglingastarf þar sem tónlist, söngur, leiklist og dans eru miðlæg starfstæki. Starfið leggur til grundvallar að maðurinn sé allt í senn: líkami, sál og andi og að mikilvægt sé að allar þessar þrjár víddir mannlegrar tilveru fái að njóta sín. Slíkt gerir manninn mennskan.
KMS hefur þrjú meginmarkmið:
Að laða unglinga til fylgdar við Jesú Krist.
Að menning og viðhorf unglinga séu tekin alvarlega.
Að efla sköpunargáfu unglinga.
Nú er starfið hafið aftur og verður það á þriðjudögum milli kl. 17:00 og 19:30 í höfuðstöðvum KFUM&K við Holtaveg. Skipt er upp í þrjá hópa, hljómsveit, kór og leiklistarhóp. Laufey Brá Jónsdóttir leikari og guðfræðinemi, Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari og Andri Bjarnason gítarleikari og sálfræðinemi hafa umsjón með starfinu.
Starfið er opið öllum 15- 20 ár ungmennum á höfuðborgarsvæðinu sem hafa áhuga á að starfa í skapandi, kristilegu starfi. Þau sem hafa áhuga á að kynna sér og taka þátt í starfinu geta sent línu á “midborgarprestur@kirkjan.is” og “aeskr@kirkjan.is” og í síma 822-8865 eða 861-1625.