Færslur septembermánaðar 2005
EYCE námskeið á Möltu
Næsta EYCE námskeið verður haldið á Möltu dagana 4.-11. desember og ber yfirskriftina “Kyn og trú.
EYCE heldur þetta námskeið í samvinnu við FEMYSO sem eru samtök ungra múslima í Evrópu.
Námskeiðið er samræða á milli trúarbragða þar sem meðal annars er fjallað um ólík hlutverk kynjanna í mismunandi trúarhefðum og á hvern hátt trúin hefur áhrif þar á.
Meðal þeirra spurninga sem þátttakendur velta fyrir sér eru hvort textar í helgiritum múslima og kristinna sýni einhver sérstök hlutverk kynjanna?
Hver er staða kynjanna í dag og hvernig mótaði sagan stöðuna og hvernig halda samfélagið, menningin og trúin í þessar hefðir?
Námskeiðið er fyrir ungt fólk á aldrinum 20-30 ára og æskulýðsleiðtoga. Þátttakendur verða að vera virkir í æskulýðsstarfi og geta miðlað af reynslu sinni af námskeiðinu í starfinu þegar heim er komið. Námskeiðið er miðað við ungt fólk sem hefur ekki sérfræðiþekkingu á efninu. Þátttakendur verða að hafa áhuga samræðum á milli trúarbragða og tilbúnir að vera virkir á námskeiðinu og leggja eitthvað til málana.
Ætlast er til þess að þátttakendur mæti á námskeiðið með opnum huga og séu tilbúnir til að hlusta á skoðanir annarra og deila sínum eigin skoðunum með öðrum. Þátttakendur verða að taka fullan þátt í námskeiðinu.
Fulltrúar ÆSKR verða að skila skýrslu um námskeiðið til ÆSKR eigi síðar en tveimur vikum eftir að heim er komið.
Námskeiðsgjaldið er 140 sem er fyrir húsnæði, uppihaldi og skoðunarferð. Íslendingar fá 50% af fargjaldinu endurgreitt.
ÆSKR styrkir þátttakendur sem fara á vegum sambandsins og starfa í kirkju innan Reykjavíkurprófastsdæma um 25% af fargjaldi og helming þátttökugjalds.
Sækja þarf um hjá ÆSKR í síðasta lagi 10.október næstkomandi.
Nánari upplýsingar má fá hjá Dagnýju Höllu æskulýðsfulltrúa ÆSKR í síma 5 800 825 eða 861 1625
Gakktu alla leið – ferð með tilgang fyrir æskulýðsfélögin
Mánudaginn 3.október verður ÆSKR með fyrsta viðburð vetrarins sem nefnist “Gakktu alla leið.
Æskulýðsfélögunum verður boðið í stórskemmtilega haustferð í góðum félagsskap.
Aðaltilgangur ferðarinnar er að fara í upplifunargöngu sem er stutt en getur verið sumum erfið (ekki líkamlega). Farið verður með rútum upp að Kaldárseli þar sem allir taka þátt í göngunni og boðið verður upp á nokkra leiki. Að lokum verður helgistund og boðið upp á heitt kakó og kex.
Lagt verður af stað frá Neskirkju og kl.18.30 og frá Grensáskirkju og Seljakirkju kl.18.45.
Áætlað er að vera komin til baka um kl. 22.00 og verður þá komið við í sömu kirkjum og lagt var af stað frá.
Nánari upplýsingar má fá hjá starfsmanni ÆSKR í síma 861 1625
Leiðtogasamvera í Grensáskirkju
Miðvikudaginn 28. september kl. 18.00 verður önnur leiðtogasamvera ÆSKR á þessu hausti. Samveran hefst með helgistund í kirkjunni og síðan verður boðið upp á kvöldverð.
Umræður verða um líðan í starfi, vinnuumhverfi og hvernig leiðtogar geta hlúð að sér í starfi.
Samveran er opin öllum leiðtogum í æskulýðsstarfi kirkjunnar.