Færslur októbermánaðar 2005
Góð þátttaka í Gakktu alla leið
Mjög góð þátttaka var í fyrstu samveru ÆSKR í vetur en alls voru samankomnir 190 unglingar og leiðtogar þeirra.
Aðal verkefni kvöldsins var að taka þátt í göngu það sem bundið var fyrir augu þátttakanda og þau fylgdu reipi sem táknaði gönguna í gegnum lífið. Á leiðinni lentu þátttakendur í að takast á við þungar byrgðar, standast freistingar, þurfa að velja á milli leiða en hittu líka engil sem leiðbeindi þeim. Við enda brautarinnar var tekið á móti þeim og talað um að allir lendi í einhverju á lífsleiðinni og þá sé mikilvægt að muna að Jesús elskar okkur og sleppir aldrei af okkur hendinni, jafnvel þó við rötum ekki alltaf rétta leið. Gangan var mjög vel heppnuð og virkaði sterkt á þá sem tóku þátt.
Einnig var boðið upp á göngu um svæðið, leiki og rabbstund fyrir þá sem vildu. Boðið var upp á heitt kakó og kex sem var vel þegið þegar fólk kom kalt inn úr haustkuldanum.
Umsjón með samverunni höfðu Þorsteinn Arnórsson, Ólafur Jóhann Borgþórsson auk starfsmanns ÆSKR.
ÆSKR þakkar öllum fyrir þátttökuna, leiðtogum fyrir aðstoðina og sérstaklega nemendum í Farskóla leiðtogaefna sem hjálpuðu til við undirbúning og framkvæmd.