ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur nóvembermánaðar 2005

Aðventustund leiðtoga

án ummæla

Mánudaginn 5. desember verður ÆSKR með jólastund fyrir leiðtoga og fjölskyldur þeirra.

Stundin hefst 18.15 í kirkjunni í Árbæjarsafni.

Sungnir verða aðventu- og jólasálmar, flutt hugvekja og börnin heyra jólasögu.

Þessi stund er gott tækifæri fyrir leiðtoga til að taka smá stund frá á aðventunni til að eiga saman samfélag með fjölskyldum sínum og öðrum leiðtogum.

Allir kirkjugestir fá smá jólaglaðning frá ÆSKR

Dagný Halla Tómasdóttir

29. nóvember 2005 at 13:26

Fært undir Óflokkað

Aðventustund KMS og ÆSKR

án ummæla

Fyrsta sunnudag í aðventu, þann 27. nóvember heldur ÆSKR ásamt fleirum aðventustund í Laugarneskirkju kl.17.00. Meðal annars flytur KMS-hópurinn frumsaminn helgisöngleik, sungnir verða aðventusöngvar og flutt verður jólahugleiðing.

Að stundinni lokinni verður boðið upp á léttar jólalegar veitingar.

Stundin er öllum opin og eru æskulýðsfélög sérstaklega hvött til að mæta.

Dagný Halla Tómasdóttir

21. nóvember 2005 at 17:25

Fært undir Óflokkað

Baðbombur og baðsalt

án ummæla

Miðvikudaginn 23. nóvember verður ÆSKR með leiðtogasamveru þar sem boðið verður upp á kennslu í gerð á baðbombum og baðsalti. Samveran hefst klukkan 20.00 og verður í Grensáskirkju.

Hugmyndin er að leiðtogar geti síðan notað þessa nýju kunnáttu sína í jólaföndri með félaginu sínu en fyrst og fremst er þetta gert leiðtogunum til skemmtunar og samfélagseflingar.

Kennari á námskeiðinu er Guðbjörg frá föndurbúðinni Föndru en hún ætlar að líka að mæta með jólakúlur úr frauðplasti til að gefa hugmyndir um föndur fyrir starfið.

Þátttaka kostar ekki neitt en það þarf að mæta með krukku undir baðsaltið og gamla skál.

Mikilvægt er að þeir sem ætla að mæta skrái sig þar sem aðeins 20 komast að. Hægt er að skrá sig í allra síðasta lagi mánudaginn 21. nóvember fram að hádegi.

Dagný Halla Tómasdóttir

15. nóvember 2005 at 16:27

Fært undir Óflokkað

Stúlkna- og drengjamenning

án ummæla

Miðvikudaginn 16. nóvember verður haldið námskeið fyrir æskulýðsfulltrúa,
presta, djákna og aðra þá er starfa með ungu fólki þar sem fjallað er um
stúlkna- og drengjamenningu.

Námskeiðið verður haldið í Vídalínskirkju, Garðabæ og hefst kl. 9.30 með
helgistund.

Dagskráin:

10.00 Ingólfur Ásgeir Jóhannesson fjallar um áhrif karlmennskuhugmynda á
drengjamenninguna.

12.00 Hádegismatur

12.45 Kristín Lilliendahl fjallar um stelpur og klíkur.

14.00 Margrét Pála Ólafsdóttir fjallar um Hjallastefnuna og
jafnréttisuppeldi.

15.00 Kaffi og umræður. Fundarstjórn sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.

Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor við Háskólann á Akureyri og er
höfundur bókarinnar Karlmennska og jafnréttisuppeldi. Hann er ráðgjafi í
móðurskólaverkefninu ,,Drengir og grunnskólinn” sem er núna í gangi í
Vesturbæjarskóla.

Kristín Lilliendahl er unglingakennari við Lágafellsskóla í Mosfellsbæ og
umsjónarmaður sérkennslusviðs á unglingastigi. Hún er einnig stundakennari
við Kennaraháskóla Íslands.

Margrét Pála Ólafsdóttir er framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar ehf. og
skólastjóri Barnaskóla Hjallastefnunnar. Hún hefur um 20 ára reynslu af
leikskólastjórnun, námskeiðshaldi og kennslu. Margrét Pála er einnig
höfundur Hjallastefnunnar sem nýrrar leiðar í leikskólastarfi.. Hún er
höfundur bóka og fjölda greina um Hjallastefnuna og hefur haldið
fyrirlestra og haldið námskeið um málefni kynjanna bæði á Íslandi og á
hinum Norðurlöndunum.

Námskeiðsgjald er 6000.- krónur, en þeir sem koma utan af landi fá
námskeiðsgjaldið niðurfellt.

Námskeiðið er samstarfsverkefni fræðslusviðs Biskupsstofu, KFUM&KFUK, ÆSKR
og æskulýðsnefndar Kjalarnessprófastsdæmis.

Við hvetjum fólk til að mæta á námskeiðið og minnum á ábyrgð forsvarsmanna
safnaða í að halda starfsfólki sínu vel upplýstu og meðvituðu um faglegt
barna- og unglingastarf á vegum Þjóðkirkjunnar.

Skráning fer fram hjá Kristínu á Biskupsstofu í síma 535 1500

Dagný Halla Tómasdóttir

14. nóvember 2005 at 16:32

Fært undir Óflokkað

Átakshópur í hjálparstarfi

án ummæla

Hjálparstarf kirkjunnar, fræðslusvið Biskupsstofu og ÆSKR í samstarfi við Háteigskirkju eru að hefja nýtt starf fyrir ungt fólk 16-20 ára sem ber heitið Ungt fólk í hjálparstarfi.
Kirkjan vill bjóða upp á fjölbreyttari starfsvettvang fyrir ungt fólk á framhaldsskólaaldri og jafnframt hvetja ungt fólk til að láta gott af sér leiða og vekja ungt fólk til umhugsunar um skyldu til samhjálpar.
Boðið verður upp á þátttöku í átakshóp þar sem byrjað verður á að fræða hópinn um ýmsar hliðar hjálparstarfs, en á haustönn verða það fimm skipti.

Í desember á hópurinn að afla peninga fyrir hjálparstarfi. Áhersla verður lögð á að þátttakendur beri sjálfir ábyrgð á söfnuninni og tekur hópurinn ákvörðun um fyrir hverju verði safnað og hvernig staðið verður að söfnuninni í samráði við Hjálparstarf kirkjunnar.

Dagskráin á haustönn er eftirfarandi

1. nóv. Kynningarfundur

8. nóv. Hirut og Kusse frá Eþíópíu elda mat og segja frá

15. nóv. Misskiptingin

22. nóv. Þóra og Ásbjörg sem störfuðu í Úganda segja frá reynslu sinni

29. nóv. Almenn kynning á Hjálparstarfi kirkjunnar innanlands og erlendis

des. Söfnun

Eftir áramót verður athyglinni sérstaklega beint að Indlandi og þeim verkefnum sem Hjálparstarfið er þátttakandi í þar í landi. Kynnt verður saga og menning Indlands, sýndar myndir og eldaður indverskur matur svo eitthvað sé nefnt. Hópurinn ákveður svo verkefni til að styðja á Indlandi og vinnur að undirbúningi fyrir ferð til Indlands árið 2007 þar sem hópurinn mun taka þátt í sjálfboðastarfi.
Starfið fer fram í safnaðarheimili Háteigskirkju á þriðjudögum kl. 20.00 en umsjónarmaður verkefnisins er Bendt Harðarson en hann hefur tekið þátt í æskulýðsstarfi kirkjunnar og er fulltrúi Árbæjarsafnaðar í fulltrúaráði Hjálparstarfs kirkjunnar.

Allir á aldrinum 16-20 ára sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu “Ungt fólk í hjálparstarfi” eru hjartanlega velkomnir á kynningarfundinn 1. nóvember.

Dagný Halla Tómasdóttir

2. nóvember 2005 at 15:27

Fært undir Óflokkað

KEILUMÓT 2005

án ummæla

Keilumót ÆSKR 15.nóvember í Keiluhöllinni Öskjuhlíð

Nú heldur áfram hin æsispennandi í keilumóti ÆSKR. Þetta er í þriðja sinn sem keilumót ÆSKR er haldið og er það víst að þeir eru margir keilusnillingarnir í okkar röðum

Keppnin verður einstaklingskeppni þar sem allir eiga möguleika á að vinna.

Spiluð verður ein umferð og veitt verða verðlaun fyrir 1., 2., og 3. sætið.

Mæting klukkan 19.15 og byrjað verður að spila klukkan 19.30. Þátttaka kostar 500 krónur og er það fyrir eina umferð. ÆSKR býður öllum sem koma á vegum æskulýðsfélags upp á létta hressingu á staðnum og eru þeir sem vilja koma til að hvetja sitt fólk auðvitað velkomnir líka.

Félög eru hvött til að mæta í einhverjum keppnisbúning til að skapa stemningu og mega það vera hattar, bolir eða bara eitthvað heimatilbúið sem ykkur dettur í hug. Það félag sem mætir í flottasta liðsbúningnum fær verðlaun!

Síðasti skráningardagur í keilu er föstudagurinn 11. nóvember í síma 5800825 / 861 1625 eða á aeskr@kirkjan.is.

Dagný Halla Tómasdóttir

2. nóvember 2005 at 14:56

Fært undir Óflokkað