Færslur desembermánaðar 2005
Trúarleg uppbygging
Janúarnámskeið ÆSKR verður haldið í Skálholti dagana 13.-14. janúar. Námskeiðið er opið öllum leiðtogum og aðstoðarleiðtogum í kirkjunni frá 16 ára aldri (sem eru byrjaðir í framhaldsskóla). Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl.17.00 föstudaginn 13. janúar og komið til baka í Grensáskirkju kl.19.00 laugardaginn 14. janúar. Á leiðtoganámskeiðum á vegum ÆSKR er reynt að halda jafnvægi á milli almennrar fræðslu um félagsstarf og trúarlegrar fræðslu og uppbyggingu.
Í ár verður sjónum beint að trúarlegri uppbyggingu leiðtoganna sjálfra og fjallað um helgihald í æskulýðsfélögum. Sr.Halldór Reynisson verkefnisstjóri fræðslusviðs Biskupsstofu kynnir bænabandið og hugmyndirnar á bak við það en bænabandið hefur notið sívaxandi vinsælda hér á landi. Sr. Bjarni Karlsson og sr. Jóna Hrönn Bolladóttir munu tala um persónulega trúaruppbyggingu og stýra verkefnavinnu um helgihald.
Janúarnámskeiðin hafa í mörg ár verið það vinsælasta sem ÆSKR býður upp á fyrir leiðtoga. Góð stemning myndast alltaf á janúarnámskeiðum, enda er lagt upp úr góðum viðurgjörningi og lögð áhersla á samfélagið. Janúarnámskeiðið er því tilvalið til að byggja sig upp þegar haldið er inn í nýtt ár í æskulýðsstarfinu.
Námskeiðið kostar kr. 8500.- fyrir þátttakendur frá söfnuðum innan Reykjavíkurprófastsdæma. Innifalið í því eru rútuferðir, gisting með uppbúnu rúmi og matur.
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 5800 825 eða á netfanginu aeskr@kirkjan.is
ekki síðar en mánudaginn 9. janúar 2006.
Dagskrá
Föstudagur
17.00 Lagt af stað frá Grensáskirkju
19.00 Matur
20.00 Kynning á námskeiðinu og þátttakendum
20.30 Halldór Reynisson kynnir bænabandið
23.00 Kvöldkaffi
23.30 Helgistund í Skálholtsdómkirkju
24.00 Boðið upp á góðar og óhollar veitingar
Spil í matsal
Spjall og söngur í stofu
Laugardagur
8.30 Morgunmatur
9.00 Morguntíðir (prima) -Skyldumæting
9.30 Verkefnavinna
10.00 Bjarni og Jóna Hrönn
12.30 Hádegismatur
13.30 Verkefnavinna – Bjarni og Jóna Hrönn
15.00 Kaffi
16.00 Helgistund í kirkju
17.30 Lagt af stað til Reykjavíkur