Færslur febrúarmánaðar 2006
Námskeið um efnahagslegt réttlæti
Dagana 14.- 21. maí heldur EYCE námskeið í Sofiu, Búlgaríu. Yfirskrift námskeiðsins er Make Poverty History – promoting Economic Justice and Social Inclusion”.
EYCE eru evrópsk samkirkjuleg samtök ungs fólks, en ÆSKR hefur verið aðili að þeim í mörg ár og tekið virkan þátt í starfi þeirra.
Markmið námskeiðsins í Sofiu eru meðal annars að skilgreina og skoða hugtakið efnahagslegt jafnrétti (Economic justice) út frá félagslegu, hagfræðilegu, sálfræðilegu, guðfræðilegu og siðfræðilegu sjónarmiðið. Skoða orsakir efnahaglegs misréttis og félagslegrar útilokunar m.a. út frá menningalegu, guðfræðilegu og pólitísku sjónarmiði.Einnig að reyna að skilja hvaða áhrif misréttið hefur á fólk og samfélög og skoða dæmi frá ólíkum löndum. Síðast en ekki síst að hvetja þátttakendur til að vinna að jöfnuði í sínu heimalandi og annarsstaðar í heiminum.
Námskeiðið er fyrir ungt fólk á aldrinum 20 – 30 ára. Þátttakendur verða að vera virkir í æskulýðsstarfi og geta miðlað af reynslu sinni af námskeiðinu í starfinu þegar heim er komið. Námskeiðið er miðað við ungt fólk sem hefur ekki sérfræðiþekkingu á efninu.
Ætlast er til þess að þátttakendur mæti á námskeiðið með opnum huga og séu tilbúnir til að hlusta á skoðanir annarra og deila sínum eigin skoðunum með öðrum. Þátttakendur verða að taka fullan þátt í námskeiðinu.
Námskeiðsgjaldið er 140 sem er fyrir húsnæði, uppihaldi og skoðunarferð. Íslendingar fá 50% af fargjaldinu endurgreitt en þess er óskað að þátttakendur taki meiri þátt í kostnaðinum ef þeir hafa tök á.
ÆSKR styrkir þátttakendur sem fara á vegum sambandsins og starfa í kirkju innan Reykjavíkurprófastsdæma um 25% af fargjaldi og helming þátttökugjalds eftir að þeir hafa skilað skýrslu um námskeiðið til ÆSKR.
Sækja þarf um hjá ÆSKR í síðasta lagi 17. mars næstkomandi.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér þetta nánar eru hvattir til að hafa samband við Dagnýju Höllu æskulýðsfulltrúa ÆSKR í síma 5 800 825 eða 861 1625.