ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur marsmánaðar 2006

Amazing race

án ummæla

Laugardaginn 25.mars heldur ÆSKR viðburð fyrir æskulýðsfélögin sem ber heitið Amazing race.

Ferðin magnaða fer fram í Laugardalnum og hefst kl.13.00. Þátttakendur eiga að mæta fyrir framan Skautahöllina og vera klædd eftir veðri.

Þar verður skipt upp í hópa sem eiga svo að leysa verkefni á mismunandi stöðum í dalnum. Óhætt er að lofa mögnuðum þrautum þar sem við fáum fagmenn til liðs við okkur til að gera þetta sem skemmtilegast. Þegar hóparnir hafa lokið öllum þrautunum eiga þeir að mæta upp í Langholtskirkju þar sem verður boðið upp á kók og súkkulaði og haldin lokasamvera áður en hver heldur til síns heima.

Mikilvægt er að skrá fjölda frá hverju félagi í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 24.mars. Hægt er að skrá á netfang ÆSKR eða í síma 5800 825. Þátttakan kostar 300 krónur á mann og eiga leiðtogar að sjá um að innheimta peningana hjá sínu félagi og borga fyrir þau.

Dagný Halla Tómasdóttir

17. mars 2006 at 11:55

Fært undir Óflokkað