ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur aprílmánaðar 2006

EYCE auglýsir eftir framkvæmdarstjóra

án ummæla

EYCE auglýsa eftir nýjum framkvæmdarstjóra. Daniel Müller sem hefur stjórnað samtökunum undanfarin ár mun láta af störfum um næstu áramót.

Skrifstofa EYCE er í Brussel en opinbert tungumál samtakana er enska. Starf framkvæmdastjóra EYCE er mjög fjölbreytt, en hann sér meðal annars um samskipti samtakanna við aðildarfélögin, skipulagningu atburða, samskipti við önnur kirkjusamtök og ungliðasamtök.

Umsóknarfresturinn rennur út þann 29. maí.

Dagný Halla Tómasdóttir

28. apríl 2006 at 11:40

Fært undir Óflokkað

Æskulýðsráð ÆSKR

án ummæla

Síðastliðinn fimmtudag var ársfundur ÆSKR haldinn í Seljakirkju. Fundurinn gekk vel fyrir sig og er ljóst að ÆSKR á enn eitt farsælt starfsár að baki.

Tveir nýir meðlimir voru kosnir í ráðið til tveggja ára en það eru þeir Jón Ómar Gunnarsson frá Seljakirkju og Þráinn Haraldsson úr Hjallakirkju. Elfa Rut Sæmundsdóttir úr Fella- og Hólakirkju var endurkjörin til eins árs en fyrir í ráðinu voru Agnes Guðjónsdóttir, Seltjarnarneskirkju og Ólafur Jóhann Borgþórsson, Seljakirkju sem er formaður ÆSKR. Pálína Magnúsdóttir frá Seltjarnarneskirkju og Benedikt Oddsson frá Háteigskirkju voru kosin sem varamenn til eins árs. Mikils má vænta af þessu öfluga ráði og er því bjart ár famundan. ÆSKR þakka fráfarandi ráði fyrir gott og óeigingjrnt starf í þágu sambandsins.

Dagný Halla Tómasdóttir

12. apríl 2006 at 14:09

Fært undir Óflokkað

Ársfundur ÆSKR

án ummæla

Ársfundur ÆSKR 2006 verður haldinn 6.apríl í Seljakirkju og hefst kl.18:00.

Fundurinn byrjar með helgistund og mat. Á fundinum verður farið yfir starf síðasta árs, fjármál sambandsins kynnt og kosið í æskulýðsráð ÆSKR.

Tveir fulltrúar frá hverjum söfnuði hafa atkvæðisrétt á ársfundi ÆSKR en auk þess eiga þjónandi prestar og djáknar í söfnuðum prófastsdæmanna atkvæðisrétt á fundinum. Ársfundur er öllum opin en við hvetjum söfnuði sérstaklega til að senda ungt fólk sem er virkt í æskulýðsstarfinu á fundinn.

Mikilvægt er að þau sem starfa við eða koma að æskulýðsmálum kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum mæti á fundinn og taki þannig virkan þátt í sameiginlegu æskulýðsstarfi prófastsdæmanna.

Hægt er að nálgast ársskýrsluna á http://www.hi.is/~olafurbo/arsskyrsla2005-2006.doc

Dagný Halla Tómasdóttir

5. apríl 2006 at 13:30

Fært undir Óflokkað