Færslur maímánaðar 2006
Útivistarferð 24.maí
Útivistarferð ÆSKR verður miðvikudaginn 24.maí sem er dagurinn fyrir uppstigningardag.
Að þessu sinni er haldið að Kaldárseli þar sem farið verður í fjallgöngu og hópleiki.
Að því loknu grillum við pylsur og höfum helgistund.
Ef veður verður ekki upp á sitt besta getum við borðað inni í Kaldárseli en öll önnur dagskrá fer fram utandyra hvernig sem viðrar og því er mikilvægt að allir komi KLÆDDIR EFTIR VEÐRI.
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl. 18.00 og félögunum skilað í sínar kirkjur um kl.22.00.
Þátttökugjald er 1000 krónur.
Tilkynna þarf þátttöku á skrifstofu ÆSKR í síma 5800 825 eða 861 1625 í síðasta lagi fimmtudaginn 18.maí