Færslur ágústmánaðar 2006
Gítarnámskeið fyrir æskulýðsleiðtoga
ÆSKR stendur fyrir gítarnámskeiði nú í haust fyrir þá sem vilja læra að spila undir söng í æskulýðsfélaginu sínu.
Hannes Guðrúnarson gítarleikari mun kenna á námskeiðinu en hann hefur mikla reynslu af kennslu á klassískan gítar og hefur einnig kennt á gítar til notkunar í æskulýðsstarfi bæði fyrir ÆSKR og KFUM og K.
Þátttakendur á námskeiðinu þurfa að mæta með gítar, gítarklemmu, stílabók, blýant og góða skapið.
Námskeiðið er tíu skipti, klukkutími í senn og verður haldið í Grensáskirkju á mánudögum kl.17.30. Fyrsti tíminn er mánudaginn 4. september.
Námskeiðsgjaldið er kr. 9000.- fyrir leiðtoga sem starfa hjá kirkjum í Reykjavíkurprófastsdæmum og 13.000 fyrir leiðtoga frá öðrum prófastsdæmum.
Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 30.ágúst. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu ÆSKR í síma 5800 825 eða senda fyrirspurn á netfang ÆSKR
Söngur hefur löngum skiptað mikilvægan sess í kristilegu æskulýðsstarfi enda mikilvægur þáttur í lofgjörð og tilbeiðslu á Guð. ÆSKR leggja sitt af mörkum til að auka söng í æskulýðsstarfi kirkjunnar og hvetjum við æskulýðsleiðtoga yngri sem eldri til að nota þetta frábæra tækifæri.