Færslur októbermánaðar 2006
Jólaföndursamvera hjá leiðtogum
Miðvikudaginn 1. nóvember verður ÆSKR með leiðtogasamveru í Grensáskirkju kl.20.00 þar sem kynntar verða tvær hugmyndir af jólaföndri sem leiðtogar geta vonandi notað í starfinu hjá sér. ÆSKR hefur boðið upp á jólaföndurssamverur undanfarin ár og hefur það mælst mjög vel fyrir hjá leiðtogum.
Magnea Sverrisdóttir djákni og föndursnillingur ætlar að kenna kartöflukonfektgerð og einnig að leiðbeina í kortagerð með “Embossing aðferð. Í kortagerðina þarf ákveðin grunn áhöld sem ÆSKR ætlar að festa kaup á og geta félögin svo fengið þau lánuð til að nota í jólaföndrinu.
Reynt var að velja viðfangsefni sem höfða til beggja kynja og vonum við að það hafi tekist.
Stundin er ekki síður hugsuð til að leiðtogar fái tækifæri til að eiga gott samfélag saman og mundum við bjóða upp á bæði líkamlega og andlega næringu á samverunni.
Gaman væri að sjá sem flesta, en til að vita hvað þarf að kaupa inn er mikilvægt að þið tilkynnið þátttöku ykkar til ÆSKR í síðasta lagi þriðjudaginn 31.október.
Skemmtileg þrautakeppni
[Gleði í veltibílnum] Mánudaginn 2. október hélt ÆSKR Fear-factor mótið ÓTTIST EKKI í Digraneskirkju. Það er skemmst frá því að segja að atburðurinn tókst í alla staði mjög vel og var einstaklega góð stemning á svæðinu, en alls tóku tæplega 230 unglingar og leiðtogar þeirra þátt. Keppnin byggðist upp á tíu mismunandi stöðvum þar sem þátttakendur tóku þátt í þeim þrautum sem þeir höfðu áhuga á og fengu stig eftir því hversu vel þau stóðu sig. Meðal þeirra þrauta sem keppt var í voru dómurinn þar sem þátttakendur sungu einsöng fyrir dómnefnd , ógeðsdrykk þar sem unglingarnir drukku bragðvondan og illa útlítandi drykk, Svarta ekkjan þar sem búið var að spinna “vef sem þátttakendur þurftu að komast í gegnum í haustmyrkrinu með lítið vasaljós sér til aðstoðar. Endað var með helgistund þar sem fjallað var um hvernig við getum tekist á við óttann með hjálp Guðs og að við verðum að treysta á okkur sjálf og Guð þegar við lendum í þrautum á lífsleiðinni.
Það voru því um 230 manns sem héldu glaðir heim í sína söfnuði eftir góða kvöldstund í kirkjunni. Skipulag mótsins krafðist þess að allir leiðtogar tækju virkan þátt í halda stöðvunum gangandi og sannaðist það enn einu sinni að æskulýðsstarf kirkjunnar er afar ríkt af hæfileikaríkum og metnaðarfullum leiðtogum. Þar sem mikill undirbúningur og skipulag eru fyrir svona keppni er sérstök ástæða til að þakka undirbúningshópnum sem í voru ásamt starfsmanni ÆSKR Anna Arnardóttir æskulýðsfulltrúi í Digraneskirkju, Þráinn Haraldsson leiðtogi í Hjallakirkju og Ólafur Jóhann Borgþórsson æskulýðsfulltrúi í Seljakirkju. HAG tók myndir af Fear factor móti ÆSKR og má sjá þær hér