Færslur desembermánaðar 2006
Ljúfur morgunverðarfundur leiðtoga
Morgunverður leiðtoga á aðventu var í morgun í Grensáskirkju. Var það bæði ljúf og innihaldsrík stund þar sem leiðtogar skiptust á skoðunum um æskulýðsstarfið í kirkjunni. Var þetta í fyrsta sinn sem boðið er upp á slíkan fund á aðventunni og þrátt fyrir mikið annríki í kirkjunum á þessum tíma, þá var mæting meiri en bjartsýnustu menn höfðu búist við og greinilegt að þessir fundir eru komnir til að vera. Það er gott að byrja aðventuna með að stilla saman strengi, hittast og ræða málin áður en gengið er til hinna miklu anna sem hvíla á herðum æskulýðsfulltrúa og leiðtoga á þessum tíma.