ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur janúarmánaðar 2007

HA!? Elska skaltu Drottinn Guð þinn….

án ummæla

Dagana 16. – 18. febrúar verður hið árlega Febrúarmót ÆSKR haldið hátíðlega í Vatnaskógi. Yfirskrift mótsins er HA!? Elska skaltu Drottinn Guð þinn… og verður tvöfalda kærleiksboðorðið meginþema fræðslunnar á mótinu. Á mótinu verður í fjölbreytt dagskrá í boði m.a. Stepphópur, tónlistarhópur, brennómót, spurningakeppni og margt fleira. Verð á mótið er stillt í hóf og kostar aðeins 7.500 kr. á hvern þátttakanda. Ég hvet öll félög að standa fyrir einhverri fjáröflun fyrir mótið og verður ráðið ykkur innan handar í því. Fjölmennum í Vatnaskóg og höfum gaman saman!

Dagný Halla Tómasdóttir

22. janúar 2007 at 10:33

Fært undir Óflokkað

Sólheimanámskeið

án ummæla

Hið árlega Viðeyjarnámskeið kirkjunnar og KFUM og KFUK hefur nú fengið nýtt nafn og það er Sólheimanámskeiðið og verður það haldið laugardaginn 3. febrúar. En eins og nafnið gefur til kynna verða sr.Birgir Thomsen og hans fólk gestgjafar okkar og fögnum við því mjög að fá að vera með þeim á Sólheimum í Grímsnesi . Kærkomið tækifæri til að kynnast þeim frábæra stað.

Fyrir hverja?

Sólheimanámskeiðið er ætlað leiðtogum og leiðtogaefnum í barna- og unglingastarfi kirkjunnar og KFUM og KFUK.

Að þessu sinni verður fjallað annars vegar um tónlist og lofgjörð í kirkjustarfi og hins vegar kristna íhugun og dulúð. Við skráningu þarf að koma fram hvort námskeiðið þátttakandi vill taka þátt í.

Tónlistar- og lofgjörðarnámskeið:

Á námskeiðinu verða kenndir nokkrir nútíma söngvar sem hægt að nota æskulýðsstarfi og öðru kirkjulegu samhengi. Á námskeiðinu verður ennfremur fjallað um hvað er nútímalofgjörð. Hvers vegna tónlist og nútímalofgjörð er mikilvæg í starfi með ungu fólki. Þá er einnig fjallað um hvernig best sé nota þennan þátt sem hjálpartæki. Þið sem spilið á gítar endilega takið hann með.

Umsjón: Ólafur Schram tónlistarkennari

Kristin íhugun og dulúð.

Á námskeiðinu verður farið í gegnum helstu þætti kristinnar íhugunar. Fá þátttakendur kennslu í því hvað felst í kristinni íhugun og hvernig þeir geta nýtt sér hana. Fjallað verður m.a. um Jesúbænina, Lectio divina, Taize, kyrrðardaga og hugmyndir að helgi/kyrrðarstundum fyrir unglinga og ungt fólk.

Umsjón: sr.Kristján Valur Ingólfsson og sr.Tómas Sveinsson

Ferðatilhögun

Lagt verður af stað í rútu kl 8.30 frá Grensáskirkju (mæting 8.15). Heimkoma í Grensáskirkju eigi síðar en 18.30. Boðið er upp á morgunkaffi, hádegismat og eftirmiðdagskaffi.

Verð

Þátt

Dagný Halla Tómasdóttir

18. janúar 2007 at 17:47

Fært undir Óflokkað

Janúarnámskeið ÆSKR í Skálholti

án ummæla

Janúarnámskeið ÆSKR var haldið í Skálholti dagana 12.-13. janúar. Á föstudagskvöldinu fjölluðu sr. Bolli Pétur Bollason og sr. Þorvaldur Víðisson um hugtakið kristniboð og muninn á fræðslu og boðun. Þeir lögðu fram 4 spurningar til umræðu í hópum: 1. Hvað kemur upp í huga þinn þegar þú heyrir orðin kristniboð og trúboð. Spunnust fróðlegar og skemmtilegar umræður. Kvöldinu lauk formlega með helgistund með altarisgöngu í Skáldholtsdómkirkju og leiddu sr. Bolli og sr. Þorvaldur stundina. Að helgistundinni lokinni áttu þátttakendur gott og uppbyggilegt samfélag. Laugardagurinn hófst með morgunbænum, sem Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla, leiddi. Þátttakendur gátu síðan valið á milli þess að fræðast um Jóhannesarguðspjall eða um samskipti kirkju og skóla. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir fjallaði um Jóhannesarguðspjall og sýndi kvikmyndina, The Gospel of John sem gefur góða innsýn í Jóhannesarguðspjall. Sr. Sigurður Pálsson fjallaði um tengsl kirkju og skóla í gegnum tíðina og eðli þeirra tengsla og þá sérstaklega stöðu kirkjunnar gangvart skólanum og stöðu skólans gagnvart kirkjunni. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson sagði frá reynslu sinni af vinaleiðinni í Garðabæ. Í umræðum eftir hádegismat ræddu þátttakendur um mikilvægi þess að kirkjan móti sér stefnu í menntamálum. Námskeiðinu lauk með helgistund í Skálholtsdómkirkju, sem Sr. Hans Guðberg og Magnea Sverrisdóttir, djákni, leiddu.

Dagný Halla Tómasdóttir

8. janúar 2007 at 09:07

Fært undir Óflokkað

Gleðilegt ár

án ummæla

Stjórn og starfsmenn ÆSKR senda öllum leiðtogum bestu nýársóskir og von um áframhaldandi gott samstarf. Við þökkum fyrir liðin ár og hlökkum til að takast á við skemmtileg verkefni á nýju ári.

Dagný Halla Tómasdóttir

3. janúar 2007 at 11:43

Fært undir Óflokkað