ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur febrúarmánaðar 2007

200 á Febrúarmóti ÆSKR í Vatnaskógi

án ummæla

Dagana 16. til 18. febrúar hélt ÆSKR sitt árlega mót í Vatnaskógi að þessu sinni voru öll fyrri aðsóknarmet slegin. 170 unglingar af öllu höfuðborgarsvæðinu mættu ásamt leiðtogum sínum, sem voru 30 talsins. Yfirskrift mótsins var Ha!? Elska skaltu Drottinn, Guð þinn… og í fræðslunni var fjallað um sambandið á milli Jesús Krists og fylgjenda hans. Á mótinu var mikil og fjölbreytt dagskrá þannig að allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.

Hópurinn lagði af stað klukkan 18.30 frá Háteigskirkju og var mættur í Vatnaskóg rúmum klukkutíma síðar. Þegar komið var í Vatnaskóg fór helmingur hópsins í kvöldmat á meðan komu hinir sér fyrir. Að því loknum var kvöldvaka í umsjón þeirrar Hugrúnar og Alexöndru, en þær eru báðar í Farskóla leiðtogaefna. Á kvöldvökunni var mikið fjör og skemmtu sér allir vel. Unglingahópur úr Árbæjarkirkju sem kallar sig Icestepp sýndi dansatriði sem þau hafa verið að æfa og bar það heitið: All things are possible. Að lokinni kvöldvöku voru ýmis dagskrártilboð í boði s.s miðnæturganga, spilakvöld, spjallstofa með leiðtogum, kapellustund og fleira. Kvöldinu lauk síðan með arinstund þar sem sungin vor rólegir sálmar og flutti Ólafur Jóhann Borgþórsson hugvekju fyrir háttinn.

Dagskrá laugardagsins hófst með morgunverði, og að honum loknum var haldið í íþróttahúsið þar sem fræðsla dagsins fór fram. Fræðslan að þessu sinni var í höndum þeirra Þráins Haraldssonar og Jóns Ómar Gunnarssonar og hófst hún klukkan 10.00 og stóð yfir til klukkan 12.30. Í fræðslunni var fjallað um samband okkar við Krist og hverju það breytir fyrir okkur. Lag hljómsveitarinnar U2 Window in the skies var notað sem kennsluefni í fræðslunni (tónlistarmyndbandið má nálgast hér). Meginþema lagsins er kærleikurinn og hverju hann kemur til leiðar í lífi okkar. Markmið fræðslunnar var að hvetja unglinganna til þess að taka afstöðu til Jesú Krists og boðskapar kristinnar trúar. Fræðslunni lauk á því að hópnum var skipt í minni umræðuhópa þar sem rætt var út frá umræðupunktum um Jesú Krist, kærleikann og náungann. Að fræðslu lokinni var haldið í hádegismat.

Eftir hádegismat var unglingunum boðið að taka þátt í 7 mismunandi smiðjum og undankeppni spurningakeppni mótsins. Í boði var að taka þátt í listasmiðju, tónlistasmiðju, ljósmyndasmiðju, stuttmyndasmiðju, leiklistasmiðju, útivistarsmiðju, messusmiðju og á sama tími hófst undankeppni spurningakeppninnar. Í listasmiðjunni gátu unglingarnir búið til vinabönd, málað vatnslitamyndir og búið til kerti, í leiklistasmiðjunni var biblíusagan um tollheimtumanninn Sakkeus sett á svið, tónlistarhópurinn æfði nýja sálma og kristilega söngva. Hluti af hópnum fór í söguskoðun að Hallgrímskirkju á Saurbæ og fræddust um líf og starf Hallgríms Péturssonar. Þátttakendur í útivistarsmiðjunni nutu Guðs sköpunar í Vatnaskógi og Icestepp hópurinn kenndi steppdans. Síðan var drukkið ljúfengt kaffi í matskálanum og súkkulaði skúffuköku með. Eftir kaffi var frjáls tími þar sem að boðið upp á brennómót, fótboltaspilsmót, borðtennismót og fleira. Eins var keppt í undanúrslitum

Dagný Halla Tómasdóttir

27. febrúar 2007 at 09:30

Fært undir Óflokkað