Færslur marsmánaðar 2007
Ársfundur ÆSKR
Ársfundur ÆSKR verður haldinn mánudaginn þann 23. apríl næstkomandi kl. 18.00 í safnaðarheimili Háteigskirkju. Á ársfundinum verður ársskýrsla ÆSKR flutt og fjárhagsáætlun ÆSKR lögð fram til kynningar. Einnig verður kosið í æskulýðsráðið sem og í nefndir ÆSKR. Tveir fulltrúar frá hverjum söfnuði hafa atkvæðisrétt á fundinum, en auk þess eiga allir þjónandi prestar og djáknar í söfnuðum prófastdæmanna atkvæðisrétt. Ársfundurinn er öllum opinn. Mikilvægt er að þau sem starfa við eða koma að æskulýðsmálum kirkjunnar komi á fundinn og taki þannig virkan þátt í sameiginlegu æskulýðsstarfi prófastdæmanna.
Alþjóðlegur dagur gegn rasisma
Miðvikudagurinn 21. mars, eftir tvær vikur, er alþjóðlegur baráttudagur gegn racisma. Mannréttindaskrifstofa Íslands, prestur innflytjenda, miðborgarprestur, Soka Buddistar ofl ofl ætla að snúa bökum saman á þessum degi. Markmiðið er að hafa áhrif til góðs á umræðuna í íslensku samfélagi um málefni innflytjenda. Hugmyndin er sú að koma saman í Kringlunni, mála andlit á þátttakendum græn, blá, gul, … , og klæðast bolum með áleitnum spurningum, eins og til dæmis: ,,Getur þú dæmt mig af hörundslit mínum?” … og fleiri í þeim dúr. Ganga síðan um Kringluna, hitta fólk, og vekja með þessum hætti fólk til umhugsunar. Fleiri aðilar og hópar munu koma að verkefninu. Það væri frábært ef æskulýðsfélög í kirkjunni vildu taka þátt í þessu með okkur, fjölmenna og leggja þannig þessu mikilvæga málefni lið. Þetta krefst smá undirbúnings, við þurfum að vita hve marga boli við þurfum, hve mikið af andlitsmálningu osfrv. Endilega hafið samband við mig ef þið hafið áhuga á því að leggja ykkar að mörkum til þessa mikilvæga málefnis. Við munum hittast þann 21. mars um klukkan 16:00, undirbúa hópinn, mála andlit og klæðast bolum. Vera síðan í Kringlunni frá klukkan 17-19. Endilega sendið mér línu ef þið hafið áhuga og viljið vera með thorvaldur@domkirkjan.is. Blessunaróskir, Þorvaldur