Færslur aprílmánaðar 2007
Útivistarferðin mikla 16. maí
Þann 16. mái næstkomandi mun ÆSKR standa fyrir glæsilegum voratburði fyrir æskulýðsfélög prófastdæmanna. Atburðurinn mun að fara fram utandyra á afviknum stað í útjaðri borgarinnar, staðsetning verður ekki gefin upp. Nú sem stendur er nefnd sérfræðinga að skipuleggja atburðinn. Hér reynir á áræðni, þrautseigju, þekkingu og þrek, þátttakendur verða því að vera tilbúnir að leggja sig alla fram.
Brottför verður stundvíslega klukkan 17.45 frá Grensáskrikju, það er mjgö mikilvægt að allir mæti tímalega og taki þátt í fjörinu.
Öllum þátttakendum verður boðið í mat!
Farskóli leiðtogaefna útskrifar í 5. sinn
Farskóli leiðtogaefna er fyrir margt löngu orðinn ómissandi þáttur í starfi ÆSKR. Aðsókn í ár var með besta móti og voru rösklega 30 nemendur við nám í skólanum. Á þessu starfsári var kenndur seinni hluti námsefnisins sem Pétri Björgvin Þorsteinsson og Jóhann Þorsteinsson sömdu fyrir Farskólann. Umsjón með skólanum hafa þau Ólafur Jóhann Borgþórsson og Anna Hulda Einarsdóttur. Hafa þau náð frábærum árangri í starfi sínu. Þann 27. mars síðastliðinn útskrifaði biskup Íslands Hr. Karl Sigurbjörnsson 33 nemendur úr skólanum við hátíðlega athöfn í Vídalínskirkju. Farskólinn er samstarfsverkefni ÆSKR, æskulýðsnefndar Kjalarnessprófastsdæmis og fræðslusviðs Biskupsstofu.