ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur maímánaðar 2007

Velheppnuð útivistarferð

án ummæla

16. maí síðastliðin fóru 60 unglingar úr æskulýðsfélögum af höfuðborgarsvæðinu í velheppnaða útivistarferð ÆSKR. Haldið var í Vatnaskóg þar sem sólbjartur himinn beið hópsins með örlitlum norðan strekkingi. Dagskráin hófst á hópleikjum í umsjón sr. Ólafs J. Borgþórssonar síðan var skipt í tvo hópa annar hópurinn fékk að spreyta sér á 8 metra háum klifur vegg á meðan að hinn hópurinn fékk að sprikla í íþróttahúsi Vatnaskógar. Að lokum sáu þær Anna Hulda og Sigríður Rún um að pylsufæða hópinn og grilluðu þær pylsur af stakri snilld. Þannig að allir þátttakendur fóru saddir og glaðir til síns heima.

Dagný Halla Tómasdóttir

29. maí 2007 at 09:58

Fært undir Óflokkað

Ársfundur ÆSKR

án ummæla

Þann 23. apríl hélt ÆSKR ársfund sinn í Háteigskirkju og voru um 20 manns mættir til fundarins. Sr. Ólafur J. Borgþórsson formaður ÆSKR flutti upphafsorð og bæn því næst tók sr. Sigfús Kristjánsson við fundarstjórn. Anna Hulda Einarsdóttir var ritari fundarins. Á fundinum kynntu Þráinn Haraldsson fjárhagsáætlun og Jón Ómar Gunnarsson starfsskýrslu ÆSKR 2006 – 2007. Að þessu sinni gengu 5 úr æskulýðsráðinu 3 aðalmenn og tveir varamenn. Úr æskulýðsráðinu gengu Jón Ómar Gunnarsson, Elfa Rut Sæmundardóttir, Ólafur J. Borgþórsson, Benedikt Oddsson og Pálína Sigurbjört Magnúsdóttir. Gunnar Einar Steingrímsson og Íris Sara Karlsdóttir koma ný inn í ráðið sem aðalmenn og Ólafur J. Borgþórsson var endurkjörinn sem aðalmaður. Elfa Rut Sæmundsdóttir og Bryan Allan Smith voru kjörin sem varamenn.

Á fundinum var valið í nefndir á vegum ÆSKR:

Í menntanefnd voru valin:

Bolli Pétur Bollason, Seljakirkju. Magnea Sverrisdóttir, Hallgrímskirkju. Þorvaldur Víðisson, Dómkirkjunni.
Í árshátíðarnefnd voru valin:

Anna Arnardóttir, Digraneskirkju. Diljá Guðmundsdóttir.
Í útivistarnefnd voru valin:

Þórhildur Pálsdóttir. Árbæjarkirkju. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, Biskupsstofu.
Í febrúarmótsnefnd voru valin.

Anna Arnardóttir, Digraneskirkju. Sigurvin Jónsson, Neskirkju.

Dagný Halla Tómasdóttir

14. maí 2007 at 14:08

Fært undir Óflokkað