ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur septembermánaðar 2007

Strætóratleikur ÆSKR

án ummæla

Nú styttist í “strætóratleik” ÆSKR og vona ég að sem flest æskulýðsfélög ætli að taka þátt. Þar sem að hér er um stóran viðburð að ræða og að miklu að huga er mikilvægt að ég fái sem fyrst upplýsingar um hvaða æskulýðsfélög hyggjast mæta og hvað margir koma frá hverju félagi. Síðasti skráningardagur er miðvikudagurinn 3. október, ekki verður tekið við skráningum eftir að fresturinn rennur út. ÆSKR verður að panta strætómiða og mat á fimmtudeginum miðað við skráðan fjölda miðvikudaginn 3. október.

Leikurinn fer þannig fram að skipt verður niður í 10 manna hópa og mun hver hópur í sameiningu lesya 15 verkefni. Gott væri ef þátttakendur skipuðu sér í hópa þegar skráning fer fram. Leikurinn hefst í Grensáskirkju klukkan 11.00 og honum lýkur klukkan 17.00. Að leik loknum verður boðið upp á veitingar í safnaðarheimili Grensáskirkju. Athugið að með hverju æskulýðsfélagi verður að vera a.m.k. einn leiðtogi.

Skráning fer fram í gegnum netfangið aeskr@kirkjan.is.

Stryktaraðilar leiksins eru

Strætó bs – Kexverksmiðjan Frón – Ölgerðin Egill Skallagrímsson – Hans Petersen – Mjólkursamsalan

Dagný Halla Tómasdóttir

27. september 2007 at 08:04

Fært undir Óflokkað