Færslur októbermánaðar 2007
Strætóratleikur ÆSKR
Strætóratleikur ÆSKR fór fram þann 6. október og tóku um 100 unglingar úr æskulýðsfélögum á höfuðborgarsvæðinu þátt í leiknum. Leikurinn hófst klukkan 11.00 í Grensáskirkju þar sem æskulýðsfélög undirbjuggu sig undir leikinn. Leikurinn fór þannig fram að unglingarnir áttur að leysa 16 verkefni víðsvegar um borgina. Leið þeirra lág meðal annars í Hallgrímskirkjuturn þar sem telja átti kirkjur sem sjást úr turninum, í Sundhöll Reykjavíkur til þess að fá sundlaugavatn í poka, í Mjóddina þar sem settur var upp söngleikur fyrir gesti og gangandi og í Árbæjarsafn þar sem átti að teikna upp gömlu safnkirkjuna. Leikurinn gekk mjög vel og komu allir heilir heim. Allir þátttakendur nýttu sér þjónustu Strætó til þess að fara um höfuðborgarsvæðið. Að leik loknum var öllum þátttakendum boðið upp á pylsur og gos. Dagskrá dagsins lauk með helgistund í Grensáskirkju þar sem fjallað var um köllun hvers og eins sem hluta af Guðs góðu sköpun.
Leikurinn var þátttakendum að kostnaðarlausu og var hann studdur af eftirtöldum fyrirtækjum:
Frón Kex – Ölgerð Egils Skallagrímssonar – Hans Petersen ehf – Strætó – Dominos
Myndir frá leiknum eru hér.
Kyrrðarstundir í Dómkirkjunni
Síðasta vetur hófst samstarf miðborgarstarfs Dómkirkjunnar,
Foreldrahúss og ÆSKR um kyrrðarstundir í Dómkirkjunni. Nú eru
stundirnar hafnar að nýju og verða hálfs mánaðarlega, annan hvern fimmtudag og hefjast klukkan 18.00.
Kyrrðarstundirnar eru dýrmætt tækifæri til þess að koma saman á helgan
stað og gefa sér tíma til að hugsa um hluti sem skipta máli í lífinu.
Á kyrrðarstundunum gefst tækifæri til að biðja fyrir hlutum sem hvíla á
okkur. Stundirnar eru látlausar og kyrrðin fær að njóta sín. Sungnir
eru rólegir söngvar og lesinn ritningarlestur. Bænaljós eru tendruð, bænir skrifaðar og svo er gjarnan boðið upp á fyrirbænir eftir stundina. Í kyrrðarstundunum er vitnisburður einhvers sem komist hefur frá ofneyslu áfengis eða annarra vímuefna, eða hefur kynnst slíkri fíkn úr sínu nánasta umhverfi.
Erindin hingað til, hafa öll átt það sameiginlegt að vera mögnuð, fróðleg og gefandi.
Í lokin fær hver og einn þátttakandi olíu í lófann sinn með krossmarki og kveðjunni “Drottinn blessi þig og varðveiti þig!” Að lokinni stund er boðið upp á léttar veitingar á kirkjulofti Dómkirkjunnar.
Samverurnar eru öllum opnar og hvetjum við æskulýðsfélög sérstaklega
til að koma í heimsókn.
Næsta samvera er fimmtudaginn 4.október. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu ÆSKR eða hjá Dómkirkjunni.
Jól í skókassa
Nú er farið af stað verkefnið Jól í skókassa sem er samvinnuverkefni KFUM og KFUK og Biblíuleshópsins Bleikjan.
Verkefninu var hrint af stað haustið 2004 og er óhætt að segja að umfang verkefnisins hefur margfaldast síðan. Skókassarnir frá Íslandi verða sendir til Úkraínu og verður meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna einstæðra mæðra sem búa við sára fátækt.
Skókassarnir eru fyrir stráka og stelpur á aldrinum 2-18 ára en allar nánari upplýsingar má fá á http://www.skokassar.net.
ÆSKR hvetur æskulýðsfélögin til þess að taka þátt í þessu verkefni. Þetta er frábært tækifæri fyrir unglingana til að hjálpa á áþreifanlegan hátt. Sérstaklega er óskað eftir því að útbúa kassa fyrir aldurshópinn 15-18 ára þar sem sá hópur hefur orðið nokkuð útundan og er það áhugavert verkefni fyrir æskulýðsfélögin að einbeita sér að þeim hópi.
Skiladagur er 3.nóvember og þess vegna er rétti tíminn núna til að fara að huga að þessu. Það er til nokkuð magn af bæklingum á skrifstofu ÆSKR í Grensáskirkju og eru leiðtogar velkomnir í kaffi til okkar og fá bæklinga í leiðinni. Þeir sem taka þátt í ratleiknum okkar á laugardaginn geta að sjálfsögðu fengið bæklinga þá.
Farskólinn fer vel af stað!
Farskóli leiðtogaefna er námskeið fyrir 14 17 ára unglinga sem tekið hafa þátt í æskulýðsstarfi kirkjunnar og hafa áhuga á að vinna sem leiðtogar í kirkjunni. Í farskólanum er unglingum boðið upp á leiðtogaþjálfun og þannig lagður grunnur að hæfum leiðtogum til að starfa í æskulýðsstarfi kirkjunnar. Farskólinn er nú farið af stað og eru 36 skráðir í skólann. Námskeiðið hefur farið vel af stað og sjá sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson og Anna Hulda Einarsdóttir um fræðsluna. Viðfangsefni farskólans er sjálfsstyrking leiðtoga, fræðsla um kristna trú, kirkjuna, starf hennar og fleira. Mikið er lagt upp úr því að skapa gott samfélag í hópnum.