Færslur nóvembermánaðar 2007
Aðventusöfnun æskulýðsfélaganna
Fyrsta sunnudag í aðventu þann 2. desember ætla æskulýðsfélög í Reykjavíkurprófastsdæmum að taka höndum saman eins og í fyrra og vekja athygli á árlegri söfnun Hjálparstarfs kirkjunnar í sínum söfnuðum. Í ár ætlar Hjálparstarfið á safna fyrir gerð brunna í Afríku. Hugmyndin er að nokkrir félagar úr æskulýðsfélaginu gefi kirkjugestum vatn að drekka eftir sunnudagaskóla, messu eða aðventukvöld til að vekja athygli á jólasöfnuninni með því að benda á mikilvægi vatns og jafnframt hvað vatn er sjálfsagður hluti fyrir okkur. Samhliða þessu ætlum við einnig að vekja athygli á stöðu þrælabarna á Indlandi og benda á þann möguleika að styrkja fósturbarn til náms.
Æskulýðsfélögin geta fengið plaköt til að hengja upp í anddyri kirkjunnar með myndum og nokkrum staðreyndum um vatn og brunna og svo er tilvalið að hafa söfnunarbauk á áberandi stað ef fólk vill gefa. Varðandi þrælabörnin er einnig hægt að fá plakat og blöð sem fólk getur fyllt út vilji það taka að sér fósturbarn. Tilgangurinn með þessu verkefni er að vekja athygli unglinganna í æskulýðsfélögunum á því að aðventan og undirbúningur jólanna á ekki bara að snúast um okkur sjálf heldur eigum við líka að nota tímann til að hugleiða boðskap Krists og fara eftir orðum hans m.a. með því að vinna verk öðrum til góðs. Þetta er líka gott tækifæri til að vekja athygli fólks í söfnuðinum á starfi æskulýðsfélagsins.
Nánari upplýsingar má fá í síma 528 4427 / 866 7917
eða í gegnum netfangið aeskr@kirkjan.is.
Enginn eins og ég í KEILU!
Keilumót ÆSKR var haldið síðastliðin þriðjudag í Keiluhöllinni öskjuhlíðinni. Alls tóku um 120 unglingar úr 8 söfnuðum úr Reykjavíkurprófastsdæmum þátt í keilunni. Gengu leikar vel og voru allir þátttakendur sáttir. Að keilunni lokinni var gengið til Friðrikskapellu þar sem haldin var helgistund í umsjón Grétars H. Gunnarssonar og þar voru verðlaun fyrir sigur í keilumótinu veitt.
ÆSKR þakkar öllum þátttakendum kærlega fyrir þátttökuna!
Keilumót ÆSKR
Keilumót ÆSKR verður þann 6. nóvember 2007 í Keiluhöllinni öskjuhlíð!
Leikinn verður 1. leikur og kostar 500 krónur að vera með! Í boði er glæsilegir vinningar fyrir 1., 2. og 3. sætið. Fjölmennum á keilumótið og eigum saman stórkostlegt kvöld. Að mótinu loknu verður helgistund í Friðrikskapellu í umsjón Grétars H. Gunnarssonar og Péturs Markan æskulýðsleiðtoga frá Árbæjarkirkju. Í kapellunni verður boðið upp á létt snarl.
Mæting er klukkan 19.30 og við byrjum að spila klukkan 19.45!
Allir að mæta! Ef þú tekur ekki þátt hreppir þú ekki fyrstu verðlaun!
Aðalfundur EYCE
Dagana 22. 28. október var haldinn 37. aðalfundur EYCE. Fundinn sóttu fyrir hönd ÆSKR Jón Ómar Gunnarsson, starfsmaður ÆSKR og Gunnar Einar Steingrímsson, sem situr í æskulýðsráði ÆSKR. Á fundinum var fundað um hin ýmsu máls sem snerta stöðu EYCE og meðlima þess. Þrír nýjir voru kjörnir til tveggja ára setu í stjórn EYCE þau Petter Normann Dille (Noregi), Inka Marja Tuulikki Lindroos (Finnlandi) og Faye Skyvalaki (Grikklandi). Á fundinum var einnig skrifað undir samning við nýjan framkvæmdarstjóra EYCE Rebekku Höjmark Jensen, sem kemur frá Danmörku og er guðfræðingur að mennt.
Frétt um aðalfundinn á vef EYCE má nálgast hér.
Myndir frá fundinum má finna hér.