ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur janúarmánaðar 2008

Enginn eins og ég – mót í Vatnaskógi

án ummæla

Febrúarmót ÆSKR verður haldið í Vatnaskógi dagana 15. – 17. febrúar. Yfirskrift mótsins er Enginn eins og ég. Í fræðslunni verður fjallað um að við erum einstök sköpun Guðs og Guð sér okkur eins og við erum.

Að venju verður mikil og góð dagskrá í boðu, hin árlega spurningakeppni ÆSKR verður háð, hópavinna, helgihald, frjálstími og svo auðvitað stórfenglegar kvöldvökur og diskó.

Verð á mótið er 7.900 kr. á hvern þátttakanda og síðasti skráningardagur er mánudagurinn 11. febrúar.

Dagný Halla Tómasdóttir

15. janúar 2008 at 15:04

Fært undir Óflokkað