Færslur febrúarmánaðar 2008
Dagskrá mótsins Enginn eins og ÉG!
Enginn eins og ÉG! mót ÆSKR er fullt af skemmtilegri dagskrá og ættu allir sem koma á mótið að finna eitthvað sem þeir hafa áhuga á. Eins og nafnið gefur til kynna þá verður sjónum beint að okkur sjálfum og sjálfsmyndinni og fer fram vönduð fræðsla um efnið. Hugleiðingar og messa mótsins verða einnig tengdar yfirskriftinni og veltum við upp spurningunum hvernig sé ég mig? Hvernig sjá aðrir mig? Hvernig sé ég aðra? Og hvernig sér Guð mig?
Á síðustu mótum hefur verið lögð áhersla á söng og hefur ÆSKR fengið hjómsveit til að stjórna söngnum sem hefur gefist vel. Að þessu sinni erum við með nýja hljómsveit sem er skipuð leiðtogum og unglingum úr MeMe í Digraneskirkju, Grafarvogskirkju auk öflugs liðsmanns frá Garði á Suðurnesjum. Hljómsveitin þreytti frumraun sína á Sólheimanámskeiðinu þann 2. febrúar og hefur sjaldan sést annað eins, því má búast við miklum og kröftugum söng á mótinu.
Á laugardeginum fer fram spurningakeppni ÆSKR og mætir hvert félag með þriggja manna lið sem þarf að vera undirbúið undir að svara jafnt almennum spurningum sem Biblíuspurningum. Að venju verður hópastarf á laugardeginum þar sem boðið er upp á fjölbreytta afþreyingu og skemmtun. Hér fyrir neðan má svo sjá dagskrá mótsins.
Föstudagur
18.00 Lagt af stað frá Breiðholtskirkju
19.10 Komið í Vatnaskóg og farangur settur í herbergi
19.30 Kvöldmatur (matsalur)
20.30 Kvöldvaka Ég sé þig! (íþróttahús)
22.00 Kvöldkaffi
Frjáls tími; heitir pottar, spil í matsal, spjall í Gamla, söngur í kapellu
23.00 Diskótek (íþróttahús)
Frjáls tími
01.00 Stund fyrir svefninn (íþróttahús)
01.30 Ró (hver í sínu rúmi)
Laugardagur
9.00 Vakning
9.30 Morgunmatur (matsalur)
10.00 Morgunstund(íþróttahús)
Bæn, fræðsla og verkefni
12.00 Matur (matsalur)
13.00 Hópar, skyldumæting (út um allt, skráning í matsal)
ýmsir hópar m.a. leiklist, söngur,stuttmyndagerð, stækkum táknin, föndur, mission impossible
15.30 Kaffi (matsalur)
16.00 Spurningakeppni (matsalur)
Einnig í boði; heitir pottar, spjall í Gamla, hópavinna, útileikir ofl.
19.30 Matur (matsalur)
20.30 Kvöldvaka
– atriðakeppni
-úrslit í spurningakeppni
22.30 Kvöldkaffi
Frjáls tími; heitir pottar, spil í matsal, spjall í kapellu
00.01 Miðnæturleikur vera vel klædd
02.00 Ró
Sunnudagur
9.30 Vakning
10.00 Morgunmatur
11.00 Mögnuð morgunstund – leynigestir
12.30 Frágangur og farangur út í rútur
13.00 Matur
13.30 Messa í Hallgrímskirkju við Hvalfjarðarströnd
16.00 Heimkoma í Breiðholtskirkju