ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Færslur marsmánaðar 2008

Febrúarmót ÆSKR vel heppnað

án ummæla

Helgina 15.-17. febrúar var árlegt æskulýðsmót ÆSKR haldið í Vatnaskógi. Að þessu sinni var yfirskriftinn Enginn eins og ÉG! og var áherslan í fræðslunni og hugleiðingum að hver og einn er einstök sköpun Guðs og óendanlega dýrmætur sem slíkur. Dagskráin var fjölbreytt og skemmtileg. Kvöldvökur og diskótek, messa og spurningakeppni æskulýðsfélaganna þar sem MeMe senior bar sigur úr bítum með frábærri frammistöðu.

Einnig var boðið upp á fjölbreytta hópa á laugardeginum þar sem m.a. var hægt að velja pottaspjall, föndur, graffa, videohóp, ljósmyndamaraþon, fantasíuförðun, fréttahóp og söng.

Stemningin hjá þeim 180 unglingum og leiðtogum sem voru á mótinu var mjög góð og öll samskipti og þátttaka til fyrirmyndar. Fréttahópurinn var duglegur að taka myndir á mótinu og hér má sjá þær.

ÆSKR þakkar öllum sem voru á mótinu fyrir samveruna og sérstakar þakkir fær móstnefndin sem lagði á sig mikla vinnu til að skipuleggja og framkvæma metnaðarfulla og skemmtilega dagskrá en í mótsnefnd voru Anna Arnardóttir æskulýðsfulltrúi Digraneskirkju, Sigurvin Jónsson æskulýðsfulltrúi Neskirkju og Grétar H. Gunnarsson æskulýðsfulltrúi í Árbæjarkirkju.

Dagný Halla Tómasdóttir

3. mars 2008 at 10:57

Fært undir Óflokkað