Færslur aprílmánaðar 2008
Námskeið um mannréttindi í ágúst
Námskeiðið ber yfirskriftina “Mannréttindi fyrir ungt fólk á Norðurlöndum og verður haldið 17.-22. ágúst í Espoo í Finnlandi sem er rétt fyrir utan Helsinki.
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Lúterska heimssambandið en samskonar námskeið hafa verið haldin í öðrum heimshlutum. Á námskeiðinu verða alþjóðleg mannréttindi kynnt fyrir þátttakendum og ræddar aðferðir til að bregðast við brotum á mannréttindum. Áhersla er á lögð á að skoða mannréttindi út frá sjónarhóli guðfræðinnar.
Gert er ráð fyrir 40 þátttakendum á aldrinum 18-30 ára frá öllum Norðurlöndunum en ÆSKR sendir tvo þátttakaendur.
Þátttakendur þurfa að greiða 150 evrur í þátttökugjöld og 30% af fargjaldinu. ÆSKR styrkir fulltrúa sína með því að greiða þátttökugjöldin.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðin má fá á skrifstofu ÆSKR í síma 5284427.
EYCE námskeið í júní
EYCE heldur námskeið á Norður-Írlandi nú í júní.
Yfirskrift námskeiðsins er “Tearing down the walls, hvernig á að leysa ágreining og hvetja til sátta í Evrópu
Námskeiðið er haldið á Corrymeela, Ballycastle, Norður Írlandi 22.-27. júní 2008
Áherslan á námskeiðinu verður meðal annars á því að kynna kenningar um hvernig eigi að taka á vandamálum, hvaða hlutverki kirkjur geta gengt í friðarumræðum og kynna sálfræðina sem notuð er í sáttarumleitunum.
Sérstök áhersla verður á umfjöllun um Norður-Írland og hvernig tekið hefur verið á deilunum þar.
EYCE hefur mikla reynslu af að halda námskeið um samtöl ólíkra trúarhópa og þar með ólíkrar menningar
Það er því mjög áhugavert að taka þátt í námskeiðunum þeirra og kynnast í leiðinni ungu fólki sem býr við mjög ólíkar aðstæður en á samt svo margt sameiginlegt með okkur.
Námskeiðið er fyrir ungt fólk á aldrinum 20-30 ára og æskulýðsleiðtoga.
Fulltrúar ÆSKR verða að skila skýrslu um námskeiðið til ÆSKR eigi síðar en tveimur vikum eftir að heim er komið.
Námskeiðsgjaldið er 200 sem er fyrir húsnæði, uppihaldi og skoðunarferð. Íslendingar fá 50% af fargjaldinu endurgreitt.
ÆSKR styrkir þátttakendur sem fara á vegum sambandsins og starfa í kirkju innan Reykjavíkurprófastsdæma um 25% af fargjaldi og helming þátttökugjalds.
Sækja þarf um hjá ÆSKR í síðasta lagi 2. maí næstkomandi.
Ársfundur ÆSKR
Ársfundur ÆSKR verður haldinn þann 16. apríl n.k. í Grafarvogskirkju og hefst kl.18.00.
Á ársfundinum er rædd árskýrsla ÆSKR, kosið í æskulýðsráð og valið í nefndir á vegum sambandsins. Á ársfundi er tækifæri til að kynna sér betur starfsemi ÆSKR og koma skoðunum sínum á framfæri.
Tveir fulltrúar frá hverjum söfnuði hafa atkvæðisrétt á ársfundi ÆSKR en auk þess hafa þjónandi prestar og djáknar í söfnuðum prófastsdæmanna atkvæðisrétt á fundinum. Ársfundur er öllum opinn.
Kyrrðardagar fyrir ungt fólk í Skálholti
Kyrrðardagar fyrir ungt fólk í Skálholti verða haldnir dagana 19.-20. apríl.
Löng hefð er fyrir kyrrðardögum í Skálholti en þetta er í fyrsta sinn sem haldnir eru kyrrðardagar sérstaklega fyrir ungt fólk. Kyrrðardagarnir eru opnir öllu ungu fólki sem hefur áhuga á að upplifa þögnina og það sem henni fylgir.
“Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Fólk leitar líka á kyrrðardaga til að takast á við erfiða ákvörðun eða þungbærar fréttir með stuðningi starfsfólksins í hlýrri þögn. Boðin eru trúnaðarsamtöl og fyrirbænir.(skalholt.is)
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju laugardaginn 19. apríl kl.11.00, hádegismatur verður á borðum þegar komið er á staðinn en formleg dagskrá hefst kl. 14.00. Kyrrðardögum líkur í messu kl.11.00 á sunnudeginum en dagskránni lýkur svo kl.14.00 með útskrift nemenda úr grunnnámskeiði fyrir leiðtoga í barna- og unglingastarfi. Áætluð koma í Grensáskirkju er kl.15.30. Umsjón með kyrrðardögum hefur Sigríður Hrönn Sigurðardóttir guðfræðingur og kristniboði og samstarfshópur um leiðtogaþjálfun.
Þátttaka á kyrrðardögum kostar 9000.- kr og er innifalið í því gisting, fæði og ferðir til og frá Skálholti. Aðeins er rúm fyrir 20 þátttakendur þar sem allir eru í sérherbergi og því um að gera að skrá sig sem fyrst.
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 5284427 eða á netfangið aeskr@kirkjan.is til 14.apríl.
Kyrrðardagarnir eru samstarfsverkefni fræðslusviðs Biskupsstofu, ÆNK, ÆSKR og ÆSKÞ.