ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

EYCE námskeið í júní

án ummæla

EYCE heldur námskeið á Norður-Írlandi nú í júní.

Yfirskrift námskeiðsins er “Tearing down the walls, – hvernig á að leysa ágreining og hvetja til sátta í Evrópu”

Námskeiðið er haldið á Corrymeela, Ballycastle, Norður Írlandi 22.-27. júní 2008

Áherslan á námskeiðinu verður meðal annars á því að kynna kenningar um hvernig eigi að taka á vandamálum, hvaða hlutverki kirkjur geta gengt í friðarumræðum og kynna sálfræðina sem notuð er í sáttarumleitunum.

Sérstök áhersla verður á umfjöllun um Norður-Írland og hvernig tekið hefur verið á deilunum þar.

EYCE hefur mikla reynslu af að halda námskeið um samtöl ólíkra trúarhópa og þar með ólíkrar menningar

Það er því mjög áhugavert að taka þátt í námskeiðunum þeirra og kynnast í leiðinni ungu fólki sem býr við mjög ólíkar aðstæður en á samt svo margt sameiginlegt með okkur.

Námskeiðið er fyrir ungt fólk á aldrinum 20-30 ára og æskulýðsleiðtoga.

Fulltrúar ÆSKR verða að skila skýrslu um námskeiðið til ÆSKR eigi síðar en tveimur vikum eftir að heim er komið.

Námskeiðsgjaldið er 200 € sem er fyrir húsnæði, uppihaldi og skoðunarferð. Íslendingar fá 50% af fargjaldinu endurgreitt.

ÆSKR styrkir þátttakendur sem fara á vegum sambandsins og starfa í kirkju innan Reykjavíkurprófastsdæma um 25% af fargjaldi og helming þátttökugjalds.

Sækja þarf um hjá ÆSKR í síðasta lagi 2. maí næstkomandi.

Dagný Halla Tómasdóttir

28. apríl 2008 kl. 13:49

Fært undir Óflokkað