ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Kyrrðardagar fyrir ungt fólk í Skálholti

án ummæla

Kyrrðardagar fyrir ungt fólk í Skálholti verða haldnir dagana 19.-20. apríl.

Löng hefð er fyrir kyrrðardögum í Skálholti en þetta er í fyrsta sinn sem haldnir eru kyrrðardagar sérstaklega fyrir ungt fólk. Kyrrðardagarnir eru opnir öllu ungu fólki sem hefur áhuga á að upplifa þögnina og það sem henni fylgir.

“Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýju ljósi og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Fólk leitar líka á kyrrðardaga til að takast á við erfiða ákvörðun eða þungbærar fréttir með stuðningi starfsfólksins í hlýrri þögn. Boðin eru trúnaðarsamtöl og fyrirbænir.”(skalholt.is)

Lagt verður af stað frá Grensáskirkju laugardaginn 19. apríl kl.11.00, hádegismatur verður á borðum þegar komið er á staðinn en formleg dagskrá hefst kl. 14.00. Kyrrðardögum líkur í messu kl.11.00 á sunnudeginum en dagskránni lýkur svo kl.14.00 með útskrift nemenda úr grunnnámskeiði fyrir leiðtoga í barna- og unglingastarfi. Áætluð koma í Grensáskirkju er kl.15.30. Umsjón með kyrrðardögum hefur Sigríður Hrönn Sigurðardóttir guðfræðingur og kristniboði og samstarfshópur um leiðtogaþjálfun.

Þátttaka á kyrrðardögum kostar 9000.- kr og er innifalið í því gisting, fæði og ferðir til og frá Skálholti. Aðeins er rúm fyrir 20 þátttakendur þar sem allir eru í sérherbergi og því um að gera að skrá sig sem fyrst.

Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 5284427 eða á netfangið aeskr@kirkjan.is til 14.apríl.

Kyrrðardagarnir eru samstarfsverkefni fræðslusviðs Biskupsstofu, ÆNK, ÆSKR og ÆSKÞ.

Dagný Halla Tómasdóttir

8. apríl 2008 kl. 11:04

Fært undir Óflokkað