Janúarnámskeið 2009
Janúarnámskeið ÆSKR árið 2009 verður í Skálholti dagana 9.-10. janúar. Að venju er vandað til námskeiðsins og lagt upp úr góðu samfélagi. Á föstudagskvöldinu verður áherslan á persónulega uppbyggingu leiðtoganna með helgihaldi, fræðslu og samveru. Á laugardeginum verður annars vegar boðið upp á fræðslu sem miðar við yngri leiðtogana og hins vegar fræðslu fyrir eldri og reyndari leiðtoga og æskulýðsfulltrúa sem bera ábyrgð á starfinu.
Halla Jónsdóttir aðjúnkt við menntavísindasvið HÍ fjallar um hvernig á að halda utan um fólkið í starfinu, deila verkefnum, hafa starfsaðstæður hvetjandi og hlúa að starfsfólkinu. Áhersla verður á sjálfboðaliða og hvernig kirkjan getur brugðist við nýjum aðstæðum þar sem söfnuðir hafa úr minni pening að moða eins og ástandið í þjóðfélaginu er núna en á sama tíma hefur aðsókn í starf kirkjunnar verið að aukast.
Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju á Akureyri kennir leiki, en hann hefur viðað að sér mikið af leikjum í gegnum árin og kynnt sér leikjafræði. Pétur Björgvin hefur verið með nokkur leikjanámskeið á vegum ÆSKEY sem hafa hlotið mjög góðar undirtektir.
Námskeiðið er opið öllum frá 16 ára aldri sem eru leiðtogar og aðstoðarleiðtogar í æskulýðsfélögum kirkjunnar.
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl.17.00 föstudaginn 9. janúar og komið til baka í Grensáskirkju kl.18.30 laugardaginn 10. janúar.
Þátttaka kostar kr. 10.900 fyrir þátttakendur frá söfnuðum innan Reykjavíkur-prófastsdæma en 12.900 fyrir þátttakendur frá öðrum prófastsdæmum. Innifalið í því eru rútuferðir, gisting með uppbúnu rúmi og matur.
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 528 4427 eða á netfanginu aeskr@kirkjan.is og er síðasti skráningardagur þriðjudaginn 6. janúar.