Færslur janúarmánaðar 2010
Janúarnámskeið ÆSKR
Janúarnámskeið ÆSKR árið 2010 verður að venju haldið í Skálholti en að þessu sinni verður námskeiðið í tvær nætur.
Á námskeiðinu mun Halla Jónsdóttir fjalla um bænina, út frá bókinni Stórt og smátt um bænina, en í henni eru margvíslegar bænaæfingar sem henta mjög vel í æskulýðsstarfinu.
Þá mun Pétur Björgvin Þorsteinsson kenna yngri leiðtogunum leiki og fræða eldri leiðtoga um óformlega menntun.
Þátttakendur á námskeiðinu munu síðan sjá um messu í Skálholtsdómkirkju kl. 11 á sunnudagsmorgninum sem verður undirbúin undir handleiðslu Höllu Jónsdóttur.
Janúarnámskeið ÆSKR hafa í mörg ár verið afar vel sótt enda er mikið lagt upp úr góðum viðurgjörningi og lögð áhersla á samfélagið. Janúarnámskeiðið er því tilvalið til að byggja sig upp þegar haldið er inn í nýtt ár í æskulýðsstarfinu.
Erla Björk Jónsdóttir, Gunnar Einar Steingrímsson, Margrét Rós Harðardóttir og Þráinn Haraldsson, annast undirbúining námskeiðsins ásamt undirritaðri.
Við hvetjum presta og æskulýðsfulltrúa til að gefa leiðtogum sínum kost á að sækja námskeið fyrir æskulýðsleiðtoga í kirkjunni, en vel upplýstir leiðtogar eru grunnurinn að því faglega æskulýðsstarfi sem kirkjan stendur fyrir.
Námskeiðið er opið öllum frá 16 ára aldri sem eru leiðtogar og aðstoðarleiðtogar í æskulýðsfélögum kirkjunnar.
Lagt verður af stað frá Grensáskirkju kl.18.00 föstudaginn 15. janúar og komið til baka í Grensáskirkju ca. kl.14.00 laugardaginn 17. janúar.
Þátttaka á námskeiðnu kostar kr. 12.000.- og innifalið í því eru rútuferðir, gisting með uppbúnu rúmi og matur.
Skráning fer fram á skrifstofu ÆSKR í síma 528 4427 eða á netfanginu aeskr@kirkjan.is .
Síðasti skráningardagur er mánudagurinn 11. janúar.