Færslur aprílmánaðar 2011
Ársfundur ÆSKR
Ársfundur ÆSKR verður í Hallgrímskirkju miðvikudaginn 13.apríl kl. 17.00.
Á ársfundinum er farið yfir liðið starfsár og horft til framtíðar.
Kosnir verða þrír aðalmenn í æskulýðsráð ÆSKR og tveir varamenn.
Á fundinum sitja með atkvæðisrétt tveir fulltrúar frá hverjum söfnuði en auk þess eiga þjónandi prestar og djáknar í söfnuðum prófastsdæmanna atkvæðisrétt á fundinum. Ársfundur er öllum opinn.
Ársskýrslu ÆSKR má finna hér: Ársskýrsla 2011
Tími til að starfa – sumarnámskeið ÆSKR
Tími til að starfa
Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum, ÆSKR stendur fyrir námskeiðum í sumar fyrir unglinga úr starfi kirkjunnar sem eru að ljúka 8. bekk. Markmiðið með námskeiðunum er að bjóða upp á skemmtilega, fræðandi og gefandi samvinnu þar sem þátttakendur bæði þiggja og gefa af sér. Verkefnið er styrkt af finnsku kirkjunni og er það von okkar að það nýtist unglingum sem ekki hafa vinnu í sumar.
Námskeiðin byggjast upp á helgistundum, hópefli, fræðslu og vinnu á stofnunum s.s. elliheimilum, sambýlum og í kirkjum. Námskeiðin verða með aðsetur í Laugarneskirkju og eru frá kl.9-13 . Þátttakendur koma með nesti.
Þeir sem mæta a.m.k. 90% af tímanum fá þóknun fyrir þátttökuna. Haldinn eru tvö námskeið og komast tuttugu á hvort námskeið.
Fyrra tímabilið er frá 14.júní- -24.júní (þátttakendur fá greiddar 8000 krónur í þóknun) en síðara tímabilið er 27. júní – 8. júlí (þátttakendur fá greiddar 10000 krónur í þóknun).
Við val á þátttakendum verður tekið tillit til þess að viðkomandi hafi tekið þátt í kirkjustarfi og reynt að velja þátttakendur frá sem flestum kirkjum.
Með kveðju,
Dagný Halla Tómasdóttir
ÆSKR