ÆSKR

Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum

Erlend samskipti

án ummæla

ÆSKR leggur á það áherslu að gefa leiðtogum í æskulýðsstarfi kost á því að kynna sér starf kirkjunnar erlendis. Í því augnamiði er ÆSKR þátttakandi í starfi ECUMENICAL YOUTH COUNCIL IN EUROPE (EYCE). Um leið er ÆSKR hluti af samkirkjulegu starfi kirkjunnar í heild. En slíkt er að mati sambandsins mjög mikilvægt þar sem trúverðugleiki kristins fólks byggir m.a. á því að ólíkrar kristnar kirkjudeildir geti starfað saman.

EYCE

En ÆSKR tekur ekki aðeins þátt í starfi EYCE, heldur leitast sambandið við að bjóða leiðtogum í starfi upp á leiðtoganámskeið erlendis, t.d. í samvinnu við Olde Vechte í Hollandi. Þá hefur ÆSKR staðið að pílagrímsferðum til TAIZE-KLAUSTURSINS í Frakklandi.

Það starf sem hér er nefnt að ofan er miðað við ungt fólk eldra en 17 ára, þ.e. leiðtogana í starfinu. Einnig er nokkuð um að æskulýðsfélög kirknanna fari erlendis, þannig fór æskulýðsfélag Grafarvogskirkju til Þýskalands 1997 og æskulýðsfélag Fella- og Hólakirkju til Hollands og Tékklands 1999. Bæði fengu félögin styrk frá UNGU FÓLKI Í EVRÓPU (UFE) til fararinnar.

admin

21. september 2009 kl. 11:28

Fært undir Óflokkað