Nýtt efni á trú.isPistlar: Þjóðkirkja - ríkiskirkja
Þjóðkirkja er kirkja þjóðar, vill veita þjóðinni allri þjónustu sína og eiga með henni samleið. Slík kirkja gengur með þjóðinni allri í gleði og sorg, af því að þjóðin vill eiga með henni samleið, án þess þó að önnur trúfélög njóti ekki sama frelsis og allir borgarar ríkisins fulls trúfrelsis.
Flokkar: Trú.is
Pistlar: Það sem ég hef lært
Það sem ég hef lært af skóla lífsins er m.a. það að þau eru sönn orð fræði- og listamannsins Sigurðar Nordal að „sá sem vildi losna við alla sorg og söknuð, yrði að kaupa það því dýra verði að elska ekkert í heiminum.”
Flokkar: Trú.is
Pistlar: Er hægt að fyrirgefa allt?
Stundum hugsa ég um það hvort mér hafi liðið betur þegar ég hataði af öllum kröftum. Það var einhvern veginn einfaldara. En þá lít ég á sjálfa mig og sé að einmitt hatrið gerði mig þreytta, rændi mig voninni, einangraði mig tilfinningalega og slökkti á gleði minni. Samt get ég ekki fyrirgefið, ekki í mínum eigin mætti.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Verjumst ekki
Og í stað þess að við prestarnir hefðum setst niður og viðurkennt að við vorum öll gerendur og þolendur og ekki síður syrgjendur í þessu máli og þyrftum að hlúa hvert að öðru og viðurkenna vanmátt okkar, þá fór bara hvert á sinn stað og hélt áfram með verk sitt og eigin hugsanir og sáru minningar.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Heil kirkja
Kirkjan stendur fyrir sínu og enginn skal og má komast upp með það að skemma hana. Kirkjan er heilagt samfélag, sem er myndað af anda Guðs, það snertir hjörtu og býr í þeim. Ekkert mannlegt vald getur tekið slík gæði frá þér og það að eiga slík gæði þegar mótvindar lífsins blása er magnaðra en orð fá lýst.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Kærleikurinn fórnar
Það sem ég gerði var ekki nóg. Fyrir það bið ég hana fyrirgefningar. Henni brást ég greinilega. Ég hélt áfram mína leið, gekk áfram til þess að sinna skyldum mínum og margvíslegum verkefnum.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Vegurinn
Síðastliðina viku hefur margt verið sagt og skrifað um Þjóðkirkjuna. Tilefnið eru átakanlegar frásagnir kvenna um kynferðislegt áreiti, ofbeldi og sifjaspell eins af fyrrum biskupum Íslands. Einnig hefur verið mikið rætt og skrifað um hvernig Þjóðkirkjan tók á málinu þegar það komst í fjölmiðla fyrir 14 árum síðan og hvernig viðbrögð hennar hafa verið að undanförnu.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Krísa í kirkjunni
Kirkjustofnunin er í krísu en ekki kristindómurinn. Eigum að afbyggja stofnunina? Hver er tilgangur kristninnar? Jú, að elska Guð og elska fólk. Allt sem hindrar, siðvenjur og kirkjukerfi, eiga að lúta þeim kvörðum. Við viljum að kirkjan sé alltaf öruggur staður fyrir uppvaxandi líf og kynslóð, staður sem veitir vaxtarmöguleika, frið, stuðning og ást.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Ljótu sögurnar
Það sem hefur þó ekki breyst nægilega mikið er að enn eru konur sem verða fyrir ofbeldi að kenna sjálfum sér um verknaðinn. Að telja sér trú um að þær hafi átt þetta skilið. Að telja sér og öðrum trú um að þær hafi beðið um þetta með því að ögra.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Í ræningjahöndum
Kona nokkur fór frá Jerúsalem ofan til Jeríkó og féll í hendur ræningja. Hann fletti hana klæðum og barði hana, hvarf síðan á brott og lét hana eftir örvona og niðurlægða.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Þegar enginn sér til mín !
Liðna viku hefur kirkjan fengið að njóta hugrekkis og einurðar konu, sem hefur upplifað framhjá sér gengið í árafjöld. Af kirkju, af samfélagi og af þeim sem hún treysti.
Flokkar: Trú.is
Pistlar: Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum
Á borði mínu liggur bæklingurinn ,,Kirkjan mótmælir ofbeldi gegn konum“ sem Þjóðkirkjan gaf út árið 2003 í íslenskri þýðingu Ragnheiðar Margrétar Guðmundsdóttur. Bæklingurinn hefur að geyma framkvæmdaáætlun sem Lútherska heimssambandið stóð á bak við.
Flokkar: Trú.is
Pistlar: Að bragða af krásum illvirkja
Þegar vígður þjónn kirkjunnar misnotar manneskju með kynferði sínu, líkamlegum yfirburðum og valdi, gengur hann eins langt og hægt er frá heiti sínu og tekur sér stöðu með andstæðingum frelsarans, þeim sem vinna gegn lífinu.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Fjarkirkja, nærkirkja og ógn
Opnist þú er boðskapurinn. Liðna daga hefur tvennt leitað á hugann. Annað er hversu öflugt og skemmtilegt starf er í grasrót kirkjunnar, í safnaðarstarfinu. Hitt er skipan og þróun íslensku þjóðkirkjunnar. Hvert stefnir hún? Hvert stefna kennimenn henni, hvert stefna stjórnir hennar og hvert stefnir almenningur? Er traust til kirkjunnar orðið köflótt?
Flokkar: Trú.is
Spurt og svarað: Hvaða áhrif hefur úrsögn úr Þjóðkirkjunni?
Allt þar til stjórnarskráin 1874 tók gildi tilheyrðu allir Íslendingar hinni Evangelisk-lútersku kirkju sem með stjórnarskránni varð Þjóðkirkja Íslands. Allt til þess tíma var enginn Íslendingur utan trúfélags, enda óheimilt. Þó að trúfrelsi væri heimi...
Flokkar: Trú.is
Postilla: Mál og menning
En sjaldan er það metið sem skyldi og sýnt í orðum og gjörðum hve dásamleg Guðs gjöf það er að geta tjáð sig og talað. Gerðist það væru illu orðin og niðurdrepandi víðs fjarri og blekkingarnar líka og svikin. Orð koma til leiðar bæði góðu og illu.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Að opna tabú og rjúfa bannhelgi
Við megum aldrei láta illvirki viðgangast í okkar ranni og verðum að tala um slíkt og opna öll tabú, rjúfa alla bannhelgi. Við verðum að hafa einurð í okkur til að taka á erfiðum málum. Þar hefur kirkjan brugðist vegna vanþekkingar og vandræðagangs.
Flokkar: Trú.is
Pistlar: Þagnarskylda og vígsluheit
Börn sem sæta ofbeldi af hendi þeirra sem helst ættu að veita þeim skjól eru lítilmagnar. Ég get varla hugsað mér meiri lítilmagna en slík börn, varnarlaus og minnimáttar, beitt viðbjóðslegu ofbeldi af þeim sem þau treysta og elska. Prestar sem hafa vitneskju um barnaníð en þegja yfir því eru komnir í lið með níðingunum.
Flokkar: Trú.is
Postilla: Hvar eru lærimeistararnir?
Asi hversdagsins hindrar okkur í því að taka okkur tíma til samfélagsins við Drottinn og þar með rænum við sjálf okkur því tækifæri að koma fram fyrir hann sem skapaði okkur og gefur okkur lausn, með iðrun okkar og beiðni um fyrirgefningu.
Flokkar: Trú.is
Pistlar: Kirkjan og kynferðisofbeldi
Kynferðislegt ofbeldi er alvarleg staðreynd í samfélaginu. Allar stofnanir og félagasamtök, ekki síst þau sem vinna með og í þágu barna og unglinga þurfa að vera á varðbergi og skoða starfshætti sína í því ljósi. Umliðin ár hefur verið markvisst unnið að bættum vinnubrögðum í þessum efnum innan þjóðkirkjunnar.
Flokkar: Trú.is
|
|||||