[Merki Stefnumótunar] Stefnumótun
Stefnumótun
Laugavegi 31, 150 Rvk
stefnumotun@kirkjan.is

Kynningarstarf haustsins

Á námskeiðinu Innandyra sem fræðslusvið heldur á hverju hausti fyrir starfsfólk barnastarfsins voru kynntar áherslur kirkjunnar á þessu ári samkvæmt samþykktri stefnu. Yfirskrift vetrarins er Samfélag - í trú og gleði og er lögð sérstök áhersla á einföld, hagnýt ráð og að hvetja söfnði á hverjum stað til að skoða hvað hægt sé að gera.

Adda Steina 18.08 07/09

Meira

Helgihald og kirkjutónlist: Styrkur, veikleiki og væntingar

Innlegg í umræður á ráðstefnu um kirkjutónlist þann 26. september 2003.

Í þessu innleggi verður gerð grein fyrir svörum úr stefnumótunarvinnu þjóðkirkjunnar sem snerta helgihald og kirkjutónlist og komu fram í greiningarvinnu stefnumótunarinnar vorið 2003.

Adda Steina 16.32 15/10

Meira

Um sjálfstæði kirkjunnar í stefnuskjalinu

Í umræðu um stefnuskjalið á netinu hafa sumir gagnrýnt hve lítið er sagt um samband ríkis og kirkju í stefnuskjalinu sem liggur fyrir kirkjuþingi.

Adda Steina 15.15 15/10

Meira

Stefnumótun og helgihald

Kristín Þórunn Tómasdóttir ritar um stefnumótun og helgihald á annál sínum. Þar er að finna ýmsar vangaveltur um áhrif stefnumótunarinnar á helgihaldið og mikilvægi helgihaldsins í stefnumótunarskjalinu.

Adda Steina 14.59 15/10

Meira

Hlutverk stefnuskjalsins og áherslur

Stefnuskjalið sem liggur fyrir kirkjuþingi hefur vakið nokkur viðbrögð lesenda og fjölmargar spurningar vaknað. Ég ætla því að reyna að gera grein fyrir skjalinu og því hvernig það verði notað í vinnunni framundan.

Adda Steina 14.45 15/10

Meira

Ríki og kirkja í SVÓT greiningunni

Vegna umræðu um ríki og kirkju langar mig að draga fram þau svör í svót greiningunni sem við flokkuðum sem ríki-kirkja. Þau fjalla á einn eða annan hátt um tengsl ríkis og kirkju og voru öll skráð af þátttakendum sem ÓGNANIR.

Adda Steina 12.38 09/10 + 1 ath.

Meira

Umræður rýnihóps um stefnuskjalið.

Rýnihópur kom saman 17. september og ræddi um stefnuskjalið. Fólkið í hópnum þekkti misvel til kirkjulegs starfs en öll voru þau kunnug hugmyndum stefnumótunar. Hér fylgja punktar úr almennum umræðum um skjalið.

Adda Steina 11.32 02/10 + 4 ath.

Meira

Umræður um framtíðarsýn

Á prestastefnu var tekist á við stefumótun að nýju, í þetta sinn var unnið út frá SVÓT greiningunni sem gerð hefur verið og reynt að draga saman hvernig stefnumótunarskjal kirkjunnar á að líta út.

Hér má sjá punkta sem skráðir voru um leið og hópar kynntu niðurstöður sínar.

Adda Steina 16.09 26/06

Meira

Enn af héraðsfundum

Um síðustu helgi sótti ég tvo héraðsfundi til að kynna stefnumótunarvinnuna. Þetta var í Eyjafirði og Árnesþingi. Það hefur aðeins háð kynningum á héraðsfundum að tími er naumur vegna annarra mála en ég er þakklát fyrir þetta tækifæri til að kynna vinnuna og fá viðbrögð.

Adda Steina 16.12 28/05

Meira

Líflegar umræður á Borgarnesfundi Stefnumótunar

Þörf á guðfræðilegri umræðu um kirkjuna, meiri fræðsla og ógnanir í ytra umhverfi kirkjunnar voru meðal umræðuefna á vorfundi um stefnumótun sem var haldinn í Borgarnesi þriðjudaginn 20. maí. Prestar prófastsdæmisins og fulltrúar sóknarnefnda sóttu fundinn og spunnust líflegar umræður um stefnumótunarferlið.

Adda Steina 16.32 22/05 + 4 ath.

Meira

Leikmannastefnan - Kirkja, kærleikur - kraftur!

Leikmannastefnan var haldin 12. apríl og fjallaði um Stefnumótun frá ýmsum hliðum, meðal annars velta fyrir sér hver grunnþjónusta kirkjunnar sé og hverjir geti sinnt henni. Þátttakendur voru meðal annars beðnir að segja í einni setningu hvers vegna kirkjan skipti þá máli. Niðurstöðurnar sýndu sterklega þann auð sem kirkjan á í leikmönnum sem oftar en ekki starfa sem sjálfboðaliðar í kirkjulegu starfi og hlúa að því. Þarna kom fram mikill velvilji og áhugi í garð kirkjunnar og einlæg trú.

Adda Steina 16.31 09/05

Meira

Gildin

Þegar svörin í stefnumótunargögnunum eru flokkuð er reynt að greina þau í fimm flokka. Fyrsti snýr að innra starfi kirkjunnar og áherslum (t.d. fræðsla), Næsti að umhverfi kirkjunnar (t.d. heimili - skóli), þriðji tiltekur þau sem svörin fjalla um (t.d. börn, fjölskyldur, ), fjórði skilgreinir hver tæki við ábendingunum (sóknarnefnd, prestar, kirkjuþing osfrv.) og sá fimmti hvaða kristnu gildi komi fram í svörunum. Það er rétt að ítreka að hér er ég að ræða um vinnsluferlið, það er að segja það hvernig við flokkum svörin til að reyna að skoða þær meginlínur sem svörin birta. Það hjálpar okkur síðan að túlka svörin.

Adda Steina 14.35 09/05

Meira

Héraðsfundir

Starfsfólk stefnumótunar hefur sótt fjóra héraðsfundi til að kynna fyrstu niðurstöður úr SVÓT greiningu og Framtíðarsýn. Fyrsti fundurinn var í Skagafirði þann 27. apríl en um síðustu helgi voru niðurstöður kynntar í Þingeyjarprófastsdæmi, Húnaþingi og Barðaströnd. Þetta er tækifæri fyrir okkur sem vinnum við greininguna til að kynna okkar hugmyndir og fá viðbrögð við þeim. Þetta er ekki síður tækifæri fyrir þau sem tóku þátt í stefnumótunarvinnunni að fylgjast með ferlinu og gera athugasemdir ef fólki þykir ekki rétt að staðið.

Adda Steina 14.17 06/05

Meira

Greining innsendra svara hafin

Það eru mjög spennandi dagar hér á Biskupsstofu núna því að við erum byrjuð að greina innsend svör við stefnumótuninni. Alls er um tæplega 3000 atriði að ræða svo að starfmenn þurfa að bretta upp ermarnar.

Adda Steina 09.01 02/04

Meira

Unnið úr svörum við stefnumótun

Svarheftin vegna stefnumótunar eru enn að berast en reiknað er með að flest séu komin og innslætti að ljúka. Það hefur flýtt verulega fyrir vinnunni hve margir skiluðu rafrænt.

Adda Steina 10.41 25/03

Meira

[Merki Þjóðkirkjunnar]