17. mars kl. 20:00. Föstutónleikaröðin: Leyndardómur trúarinnar. Sigrún Magna Þórsteinsdóttir organisti leikur tónlist eftir Mendelssohn, Samuel Scheidt og fleiri.
Þriðja föstuvakan í röð fjögurra verður haldin í Hallgrímskirkju miðvikudagskvöldið 17. mars kl. 20. Stundin er byggð upp í kring um Passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar með söng og lestri en einnig gefur leikmaður vitnisburð um hlutverk trúarinnar í lífi sínu. Leitað er kyrrðar í tónlist og bæn. Allir eru velkomnir og boðið upp á samfélag í safnaðarsal á eftir.