Þú finnur kirkjuna einnig á   fr yt Tw fb

Þjóðkirkjan

biðjandi boðandi þjónandi

Dagbók - 20. mars 2010

Kyrrðardagar í Skálholti: LífsganganVeffang: http://kirkjan.is/dagbok/atburdur/2099

Helgina 19.-21. mars nk. verða haldnir kyrrðardagar undir yfirskriftinni Lífsgangan. Leiðbeinandi er séra Solveig Lára Guðmundsdóttir.

Þetta stef hefur verið afar vinsælt í kyrrðardagastarfinu hér á síðustu árum. Hvaðan komum við, hvar stöndum við og hvert stefnum við? Á þessum dögum erum við leidd um æviveginn og hvött til að hugleiða þann þroskaferil sem í lífsgöngunni felst. Vegferð manneskjunnar frammi fyrir Guði er eitt af þeim stefum sem koma til umræðu á þessum dögum.

Þessi dagskrá hefst kl. 18.00 á föstudegi og henni lýkur um kl. 14.00 á sunnudegi. Rafræn skráning hér eða í síma 486 8870.

Verið hjartanlega velkomin á kyrrðardaga.

Verð fyrir gistingu í einsmannaherbergi með salerni og sturtu og fullu fæði aðeins 17.000.- kr.

Sjá nánar: http://skalholt.is

Daglega frá 19. mars 2010 til 21. mars 2010